Vikan - 29.01.1981, Side 34
Handavinna
Höfundur: Margrét K. Björnsdóttir
Peysa þessi var áður á dagskrá hjá
okkur i 2. tölublaði þessa árs, en er
endurbirt hér vegna þess að svo
slysalega vildi til að i fyrra skiptið
skarst framan af munstrinu. Við biðj-
um hlutaðeigandi velvirðingar á
þessum mistökum, en það leynir sér
ekki af fyrirspurnum að þessi peysa
er vinsæl.
Garn: Indiecita lama-ull, fæst í
Hofi, Ingólfsstræti og Storknum,
Kiörgarði, þrir litir.
Priónastærð: hringpriónar nr.
4 1/2 og 5, sokkaprjónar nr. 4 1/2
og 5.
Þessi uppskrift miðar við peysu
stærð 39 40.
hvítt
I jósbrúnt
drapplitað
grunnlitur: brúnn
Efnið i þessa peysu er sótt til
Suður-Ameríku. Þar býr lama
tegund (Lama pacos) loðin og
langhærð eins og ofvaxinn púðlu
hundur. Hún lifir hátt til fjalla og
var nytiuð sem húsdýr af indi
ánum. Ullin er sérlega létt og
mjúk og veitir miög góða vörn
gegn kulda og regni. Priónaflikur
úr lama-ullinni hafa sléttari og
finlegri áferðen til dæmis úr ull
af islensku sauðkindinni.
Fitjið upp 180 I. á prión nr. 4
1/2. Priónið 1 sl., 1 br. um 4 cm.
Skiptið yfir á prjón nr. 5.
Prjónið 5 umf. sl. og takið til við
mynstrið. Prjónið um 36 cm upp
að handvegi. Fellið af 10 I. sitt
hvorum megin.
Ermar: Fitjið upp 40 I. á prjóna
nr. 4 1/2. Prjónið 1 sl., 1 br., um 3
cm. Skiptið yfir á prióna nr. 5,
aukið í 1 I. sitt hvorum megin.
Prjónið slétt. Aukið i 18 I. jafnt
og þétt upp ermina. Ath. að
ermin á aðallega að vikka frá
olnboga og upp ur. Þegar
ermarnar eru orðnar nógu langar
eru felldar af 10 I. undir höndum.
Mynsturbekkur og urtaka:
Setjið ermar og bol upp á einn
hringprjón. Priónið3 umf. með
grunnlit. Byrjið þvi næst á
mynstrinu. Takið úr samkvæmt
teikningu.
1. úrtaka: Prjóniðsaman 15. og 16.
hverja lykkiu.
2. úrtaka: Prjónið saman 10. og
11. hverja lykkju.
3. úrtaka: Priónið saman 8. og 9.
hveria lykkju.
4. úrtaka: Prjónið saman 6. og 7.
hveria lykkju.
5. úrtaka: Prjónið saman 5. og 6.
hveria lykkju.
6. og 7. úrtaka: Prjónið saman 3.
og 4. hveria lykkju.
Þegar nálægt 60 I. eru eftir á
prióninum er prjónaður lítill
kragi, 1 sl., 1 br., um 3 cm.
Opið undir höndunum er
lykkjað saman.
34 Vikan s. tbl.