Vikan


Vikan - 29.01.1981, Blaðsíða 43

Vikan - 29.01.1981, Blaðsíða 43
Sigurður Hreiðar tók saman Eiríkur á Brúnum og Paradísarheimt Samhentur hópur reisir hlöðu. Þarna var það samvinnan sem gilti og allir hjálpuðust að. REYNDU AÐ RÆNA BARNII REYKJAVÍK Hér höldum við áfram að segja sögu Eiríks á Brúnum, mannsins sem kalla má fvrirmyndina að Steinari í Hlíðum í Paradísarheimt. Nú segjum við frá brottför hans frá Islandi sem varð nokkuð söguleg. EFTIR þessa ferð undi Eiríkur ekki lenji um kyrrt í fásinninu á Brúnum. Hann seldi jörð sína og keypti Ártún, sem taldist þá í Mosfellssveit, nú i Reykjavík. Þar komst hann í kynni við boðskap mormóna — hefur ef til vill eitthvað heyrt af þeim áður, en syðra hitti hann sendimenn þeirra og sann- færðist um að mormónatrú væri lúthers- trúnni réttari í ýmsum greinum:....að bamaskírnin sé ónýt manna setning, konfirmationin (fermingin) mannaboð, altarissakramentið rangfært . . ." og fleira. Þar kom að hann lét skírast með niðurdýfingu, eins og mormónskan kenndi hina einu réttu skírn, ásamt konu sinni Rúnveldi Runólfsdóttur og líklega hefur Ingveldur dóttir þeirra líka tekið mormónaskirn, þótt þess sé hvergi getið. Upp úr þessu varð honum illa vært á landinu, því þetta þólti hin mesta ósvinna, að láta skírast til villutrúar. Það var því úr að hann ásamt fleira fólki réðst til farar vestur um haf, til Utah, þangað sem mormónar höfðu komið sér 42 Vikan 5. tbl. upp sínu fyrirheitna landi hér á jörð. Við grípum nú niður í bókinni í Annarri litilli ferðasögu (1882), sem segir frá ferðinni utan, en skjótum inn í hana rétt í upphafi frásögninni Tólf manna árás. sem er í Sögum og sögnum, bálki sagna sem hann lét sjálfur prenta eða geymst hafa annars staðar, en teknir eru upp í bókina sem við erum sífellt að vitna í: Frá íslandi til Spanish Fork „Kvöldið þann 8. júlí 1881 fór ég um borð I skipið Camoens, hestaflutninga- skip Kökkels, eftir að ég með striði. handalögmáli og þrengingu nokkri á sál og líkama, varð að verja dótturson Hér er mynd af einni fjölskyldunni, sem flutti vestur um haf til hins fyrir- heitna lands mormóna og settist að i Utah. Harla lítið vitum við um þetta fólk, annað en að heimilisfaðirinn hét Þórarinn Björnsson. minn, 14 mánaða gamlan, fyrir 10 frískum karlmönnum úr Reykjavik, er ætluðu að ráðast á hana og rífa barnið úr fangi hennar eftir skipun barnsföður hennar, sem þá vildi vera það, en vildi ekki meðganga hann nýfæddan. Ég sá þá engin ráð til að verja barnið fyrir þessum herflokki. nema ég beiddi Guð, eins og ég hafði vit á, að haga því svo til. að þeir næðu ekki barninu, og hann bænheyrði mig um það, að hún komst um borð með barnið og hingað, og þykir vera mjög efnilegur. Við vorum að tölu 24, 8 karlmenn, 10 kvenmenn, 6 börn. öll fyrir innan 8 ára. og eru öll hér lifandi enn. Tólf manna árás Þegar ég var búinn að vera á Brúnum i 23 ár, fór ég árið 1879 að Ártúni í Mos- fellssveit og komu þá margir fjallamenn til mín, kunningjar mínir. meðal hverra var einn, Þorvaldur bóndi, og gisli hann hjá mér nokkrar nætur um lestatimann. og var hann allkátur og gamansamur við Ingveldi dóttur mina og hafði komið henni til að spila tveggja manna alkorl við sig; hafði hann vinninginn, því að seint um veturinn eftir átti hún dreng, er hún kenndi Þorvaldi og látinn heita Þorbjörn; hálft nafn hans og hálft föður hans. Séra Jóhann á Mosfelli skírði hann og skrifaði Þorvaldi, hvort hann vildi gangast við barninu. Þorvaldur skrifaði presti aftur og gerði hvorki að játa né neita, að hann ætti barnið og sagði. að það væri fleiri til en hann, sem gætu átt barnið, með nokkuð fleiri vifilengjum. Svo skrifaði séra Jóhann séra Kjartan í Skógum að yfirheyra Þorvald. hvort hann væri sattnur faðir drengsins. Prestur yfirheyrði hann og fór á sömu leið. að Þorvaldur meðgekk ekki drenginn og neitaði heldurekki. Svo leið og beið, þar til drengurinn var um það ársgamall, þá kom maður austan af Eyrarbakka til dóttur minnar, er átti að sækja barnið hennar; fullmaktaður og í fullu umboði frá Þorvaldi bónda. Hún 5. tbl. Vikan 43 Jr ..
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.