Vikan


Vikan - 29.10.1981, Blaðsíða 37

Vikan - 29.10.1981, Blaðsíða 37
Ljósmyndaskóli Vikunnar XX Við stækkum sjálf fimm króna pening liggja ofan á honum þennan sama tima. Pappírinn er síðan framkallaður og ef allt er með felldu á hann að vera alveg hvítur en hafi ljós náð að hafa áhrif á hann mun sá hluti pappírsins sem peningurinn huldi einn vera hvítur en pappírinn að öðru leyti grátónaður. Að verki Ef sóst er eftir gæðum í myndum er góð stækkunarlinsa mjög mikilvæg og stækkari sem ekki fer á fleygiferð við minnsta titring. Til að halda pappírnum alveg flötum á stækkaraborðinu er gott að hafa pappírshaldara en önnur leið er að leggja gott og ógallað gler yfir pappír- inn en þá verður að gæta þess mjög vel að það sé alltaf hremt. Þegar fram- köllunarbakkar eru keyptir ber að gæta þess að þeir séu nokkru stærri en pappírsstærðin sem ætlunin er að nota þá fyrir. Þá er mjög til bóta að nota framköllunartangir í bakkana til að þurfa ekki að vera með fmguma niðri í vökvunum sem aftur kallar á stöðuga handþvotta og þurrkun milli þess sem pappírinn er framkallaður og nýr pappír lýstur. Nú skulum við vinda okkur að verki og athuga aðeins nánar handtökin í myrkvaherberginu. Fyrst er náttúrlega að blanda framköllunarefnin, sjálfan framkallarann, stopp-baðið og fixerinn. Til að framkalla pappír er notaður annar framkallari en fyrir filmu en oftast má nota sama stopp-bað og fixer, venjulega vægari blöndur þó. Yfirleitt er blöndun- in leikur einn en rétt að taka það fram að sjaldnast borgar sig að blanda minna en lítra í einu (vökvinn á að hálffylla bakkana eða þar um bil). Framköllunar- efni fyrir pappír eru oft í fljótandi formi og hægt að blanda þau beint út í kalt vatn. Æskilegast er að hitastigið fyrir pappirsframköllun sé 20 gráður (18-24 gráður) og rétt að leyfa framköllunar- efnunum að ná herbergishita fyrir notkun, sem jafnframt ætti að vera til- tölulega auðvelt að halda í kringum 20 gráður. Bökkunum er nú raðað hlið við hlið, með svolitlu millibili þó, og efnunum hellt út í þá. Bakkarnir mega ekki standa á viðkvæmum efnum sem hætt er við að framköllunarefnin geti blettað en heilt plast getur leyst þann vanda þó æskileg- ast sé að bakkamir standi þar sem eitthvert frárennsli er. Þegar búið er að byrgja úti allt Ijós nema rauða ljósið sem á að gefa næga birtu til að maður sjái sæmilega vel til verka, er kominn tími til að hyggja að pappírnum og sjálfri stækkuninni. Við byrjum á því að koma filmunni fyrir í stækkaranum. Myndin snýr rétt á stækkaraborðinu ef sá hluti filmunnar snýr upp í stækkaranum sem gefur aug- anu rétta mynd við skoðun (hægt að lesa númer og stafi) en filmunni síðan snúið þannig að efri hluti filmumyndarinnar snúi fram, á móti okkur þegar við stöndum fyrir framan stækkarann. Nú þurfum viðaðfórna einni pappírs- örk til að fókusa á (eða við fókusum á borðið og notum síðan bakhliðina á fyrstu prufumyndinni til að fókusa nákvæmar þegar til alvörunnar kemur). Fyrst þurfum við sem sagt að gera prufumynd þvi án hennar rennum við alveg blint í sjóinn með réttan lýsingar- tíma og ljósop á stækkunarlinsunni. Til að prufumyndin komi að sem bestu gagni er rétt að gera hana með stækkar- ann í þeirri hæð sem hann verður þegar endanlega myndin verður lýst. 1 hvert skipti sem fjarlægð stækkarans frá stækkunarborðinu breytist þarf annað- hvort að breyta ljósopi eða lýsingartíma til að fá rétta lýsingu fyrir einhverja til- tekna mynd. Lýsingartiminn eykst eftir þvi sem stækkarinn færist fjær borðinu og myndin sem hann varpar stækkar eða með öðrum orðum eftir því sem stækkunin er meiri. Þó er hægt að kaupa útreikningsskífur til að reikna út breytinguna á lýsingartíma eða ljósopi til samræmis við breytta stækkun en i sumum tilvikum fylgja stækkurum ein- hverjar töflur eða útreikningsskífur. Prufumynd Langbesta aðferðin er þó að gera prufumyndina alltaf með sömu stækkun og endanlega myndin á að vera. Við byrjum því á þvi að velta fyrir okkur hvernig við viljum hafa endanlegu 44- tbl. Vikan 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.