Vikan


Vikan - 29.10.1981, Blaðsíða 50

Vikan - 29.10.1981, Blaðsíða 50
Eldhús Vikannar r Spönsk fiskisúpa 750 g soöinn humar 4 msk. ólífuolía 2 rif úr hvítlauk 2 matarlaukar 2 ferskar paprikur 80 g soðin skinka 500 g tómatar 1 lárviðarlauf salt og nýmalaður pipar 1 hnífsoddur saffranduft 1/8 I hvítvín 15 kræklingar 15-20 báruskeljar (ferskar eða úr dós) 1 msk. sítrónusafi Tilreiðsla: Losið humarinn úr skelinni og bitið niður. Setjið pressaðan hvítlauk, smásaxaða laukana, rand- skornar paprikur og skinku- teninga í pott með heitri ólífuolíu og látið krauma. Afhýddum og smáskornum tómötum bætt útí, ennfremur lárviðarlaufi, salti, pipar, saffran, hvítvíninu og 3/4 lítr- um af vatni. Þegar allt hefur soðið í átta mínútur skal humar, hreinsuðum krækl- ingum og báruskeljum bætt útí. Setjið lok á pottinn og látið smásjóða í fimm til tíu mínútur að auki. Fjarlægið þær skeljar sem ekki hafa opnað sig. Bragðbætið súpuna með sítrónusafa. Snæðið hana svo ásamt franskbrauði og sama góða hvítvíninu og notað var við matseldina. Jón flsgeir tók saman Nýru með skinku (Rinores con jamón) 500 g kálfanýru salt 2 matarlaukar 1 hvítlaukslauf hvítur pipar, nýmalaður hveiti til að velta uppúr 1 slétt tesk. paprikuduft pínupons Cayennapipar 1 bolli steinlausar grænar ólífur 2 msk. tómatmauk 1 bolli sérrí 200 g soðin skinka 1 sítróna Tilreiðsla: Hreinsið fitu og húð af nýrunum og sneiðið þunnt. Geymið nýrnafituna. Stráið einni teskeið af salti yfir nýrnasneiðarnar og látið standa í 20 mínútur. Skrælið og sneiðið laukana, skrælið og smásaxið hvít- laukinn. Skolið og þerrið nýrnasneiðarnar, stráið pipar á þær og veltið þeim í hveiti. Skerið helming nýrna- fitunnar í smáteninga, hitið á pönnu og steikið nýrna- sneiðarnar í þrjár mínútur. Bætið í lauksneiðunum, söxuðum hvítlauknum, paprikuduftinu og Cayenne- piparnum. Hrærið vel saman og látið stikna í skamman tíma. Smásaxið ólífurnar og bætið út í. Blandið saman tómatmauki og sérríi, hellið yfir nýrun og látið allt krauma við vægan hita. Sneiðið skinkuna í þunnar lengjur sem er bætt síðast af öllu út á pönnuna, auk þess sem bragðbætt er með salti. Skerið sítrónuna í átta hluta og berið fram ásamt nýrunum og hrís- grjónum. Litlar kjötbollur (filbóndigas) 2 stórir matarlaukar 1 hvítlaukslauf 50 g smjör 400 g nautakjöt 100 g magurtflesk 1 egg 1 salthrista 1 piparhrista eggjahvíta hveiti feiti til að steikja í TiIreiðsla: Smásaxið lauk- ana, pressið hvítlaukinn, steikið hvort tveggja Ijós- brúnt í smjöri. Blandið útí hökkuðu kjöti og fleski ásamt hrærðu egginu. Bragðbætið með salti og pipar og hnoðið í litlar kúlur. Veltið þeim í eggjahvítu og hveiti og steikið í heitri feiti. Látið feitina drjúpa vel af og berið fram með kartöflusalati. Hvítlaukssúpa (Sopa dc ajos) 4 hvítlaukslauf 1/2 bolli ólífuolía 1 hnífsoddur Cayennepipar 4 sneiðar franskbrauð salt svartur pipar, nýmalaður 3 egg Tilreiðsla: Flysjið hvítlauks- laufin og steikið þau óskorin í heitri ólífuolíu þar til þau eru Ijósbrún. Fjarlægið hvítlauk- inn úr olíunni en bætið cayennepipar útí. Skerið franskbrauðið í jafnstóra ten- inga og steikið það Ijósbrúnt í olíunni. Sjóðið einn lítra af vatni og hellið varlega yfir franskbrauðsbitana. Saxið hvítlaukinn, bætið salti og pipar saman við, þeytið eggin með og hellið öllu útí súpuna, sem er látin krauma þar til eggin hafa stirðnað. 50 Vikan 44. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.