Vikan - 29.10.1981, Side 44
Systa, 14 ára, flýtti sér að borða og
reikna heimadæmin um leið. Hún var
alltaf á síðustu stundu með að vinna
verkefni fyrir skólann.
„Hvað segið þið? Henda blöðum.
Henda blöðunum mínum. Þið skuluð
ekki fleygja neinu því ég hef ekkert
lesið undanfarið nema námsbækurn-
ar.
„Pabbi, heyrðu nú. Sjáðu þetta
dæmi. Ég skil ekki þennan reikning.
Ég er að verða of sein í skólann. Alltaf
sama sagan.” Systa flýtti sér enn og
pabbi rýndi i reikningsbókina hennar.
„Mamma, með málvöndunina,”
sagði sonurinn nú.
„Þú ert ágæt og ómissandi þegar ég
á að gera heimaritgerðir og ýmislegt
fyrir skólann en hvers vegna gerirðu
bara ekki sjálf sögur og sendir i blöðin.
Þá verða blöðin sem við lesum betri
og við sjálf skánum líka við að lesa
góðar sögur og — og — já, af hverju
skrifarðu ekki sögur sjálf?”
Ég heyrði minnst fjórar raddir i við-
bót segja: „Já, hvers vegna skrifarðu
ekki sögur sjálf? Þarna hefurðu það,
skálda bara sjálf.
Allir hlógu og minnsta barnið, 4ra
ára, reyndi að vera eins og hinir og
segja þessa skemmtilegu setningu:
„Mamma bara skrifa sjálf,” svo
skellihló litla krílið.
Ég hló lika en um leið hugði ég á
hefndir. Bíðið þið bara hæg. Hver veit
nema ég lumi á einhverju sem ykkur
órarekki fyrir.
Nú voru allir á þönum. Börnin fóru
í skólann og eiginmaðurinn til vinnu
sinnar. Ég tók yngsta barnið og skund-
aði með það á gæsluvöllinn og flýtti
mérsíðan heim.
Heimilið beið mín með óþrjótandi
verkefnum. Meðan ég vann, án þess
að hangsa, þessi venjulegu störf innan
sömu veggja og ég hafði verið að
mestu síðustu ár lét ég hugann reika.
Nú átti ég óvenjulegt verk framundan.
Þetta var nokkuð sem ég hafði ekki
fengist viðáður.
Mér yrði að takast að gera sögu og
fá hana birta á prenti. Ég þyrfti að
halda vel á spöðunum og byrja sem
fyrst.
Ég hugsaði og hugsaði. Fann efni i
imw
eina heimilisblaðiö, besta
auglýsingablaðið.
Auglýsingasími: 85320.
huganum og reyndi að spinna utan
um það.
Ég hætti við eitt og byrjaði á öðru
enekkert varð til.
Næstu dagar liðu án þess að ég festi
svo mikið sem linu á blað en hugurinn
var að verki þrátt fyrir allt.
Enginn á heimilinu virtist muna til-
efni hlátursins mikla, sem kvað við
umhverfis morgunverðarborðið hér á
dögunum.
Allt gekk sinn vanagang og ég
reyndi að gera það sem ég áleit best til
að eiginmanninum og barnahópnum
liði vel.
Næði og ró var hið eina er ég þráði
en slíkt gat verið erfitt að fá.
Mér fannst að lokum ég hafa í koll-
inum dálítið verk, sem gæti verið saga.
Sú saga hafði orðið til á meðan ég
vann heimilisverkin og brá þar hvergi
útaf vananum.
Ég hugsaði ýmislegt. Það sá enginn.
Leyndarmál mátti ég þó eiga.
Dag nokkurn gat ég sest við ritvél-
ina og byrjað að vélrita.
Ég komst að raun um að ég hafði
búið til mjög smáa smásögu.
Engu að síður tók það mig langan
tima að vélrita þessar fáu blaðsíður.
Frágangur skyldi vera góður hvað sem
um annað mætti segja.
Þegar ég las söguna og ímyndaði
mér hana sjálfri mér óviðkomandi
fannst mér hún nokkuð góð.
Eiginlega var ég ánægð með hana.
En þetta varekki nóg. Ætlunarverk-
inu var ekki lokið og eldraunin var
eftir.
Hvað skyldu aðrir segja?
Sagan hafði upphaf, söguþráð og
farsælan endi.
Endirinn var bestur.
Líklega vegna þess að þá var ég svo
ánægð að vera komin að sögulokum
að allt fór vel. Annars var það ekki til
siðs núna að láta sögur enda vel.
Mest um vert var að sagan mín var
fullgerð og ég ætlaði að senda hana til
einhvers blaðsins. Bréfið til ritstjórans
varð mér erfitt að semja. Vel orðað og
rétt skrifað bréf hlaut að vekja áhuga
og yrði liklega lesiðá undan sögunni.
Hr. ritstjóri eða heiðraði ritstjóri
eða kannski hr. heiðraði ritstjóri. Voru
ekki allir hættir að nota svona orð?
Ég gat engan spurt svo ég skrifaði:
Hr. ritstjóri,
Ég leyfi mér að senda þér sögukorn
til birtingar í blaðinu. Þetta er frum-
raun mín á þessu sviði svo ég býst ekki
við mikluen------
Nei, ég orðlengi ekki frekar hvaðég
skrifaði ritstjóranum.
Þegar ég hafði póstlagt söguna með
virðulegu bréfinu fannst mér allt skelf-
ing tómlegt, rétt eins og ég hefði misst
eitthvað.
Síðan tóku aðrar hugsanir við.
Ég sá eftir öllu. Iðraðist gjörða
minna.
Hvað hélt ég mig eiginlega vera?
Hvað hafði ég gert? Hvernig átti ég að
geta samið nokkuð af viti til að láta
koma fyrir almenningsjónir á prenti.
Ég var ekki skáld.
Hvernig sem ég skoðaði hug minn
fann ég aðeins hræðslutilfinningu.
Auðvitað yrði ég mér til minnkunar
og fengi söguna endursenda. Fjöl-
skyldan kæmist að þessu tiltæki og þá
yrði fyrst hlegið svo um munaði. Ég
hræddistenn.
Mér duttu í hug frásagnir sem ég
hafði lesið eða heyrt um ung skáld,
sem gengu milli blaða- eða bókaútgef-
enda með handrit til birtingar.
Ævinlega voru þetta hinar mestu
píslargöngur. Skáldið þótti ekki gera
nógu vel. Fékk að heyra óbliðum
orðum að það væri ekki á réttri hillu.
Það kynni ekki að yrkja Ijóð eða setja
saman sögu svo prenthæft þætti.
Nóg væri til af leirskáldunum.
Skáldið tók við ritverki sínu aftur og
hélt til hins næsta. með vonarneista i
brjósti. Þar fékk það ef til vill líkar við-
tökur eða verri. En svo gerðist það að
ungt skáld fékk verk sitt prentað eða
gefið út. Stórum áfanga var náð. Sæla
hugans ríkti en áráttan hélt áfram og
skáldið hélt enn áfram að semja og
yrkja.
Þess vegna eigum við svo mörg
stórskáld og góða rithöfunda að jreir
gáfust ekki upp I byrjun.
Mikið dáði ég þetta fólk af verkum
þess.
Dagar liðu. Ég reyndi að hugsa sem
minnst um bækur, sögur og allt I þá
átt en varð stöðugt kvíðnari.
Nú hlaut að komast upp um mig.
Pósturinn færi að koma með bréf til
min. En það dróst að nokkuð gerðist.
Ætti ég að hringja til ritstjórans?
Kjarkurinn brast þegar ég hafði
fundið simanúmerið á skrifstofu hans.
Enn beið ég og enn — já, alveg
þangað til mánudagsmorgun einn
skömmu fyrir hádegi.
Síminn hringdi. Hr. ritstjórinn var i
símanum.
Hann heilsaði glaðlega og kynnti sig
eftir að hafa fullvissað sig um að hann
talaði við rétta manneskju.
„Þú sendir mér sögu,” sagði hann.
„Hún verður I blaðinu eftir 3—4
vikur. Við megum birta hana. Er það
ekki klárt?"
Mér varð svarafátt en hafði ekki
tíma til umhugsunar.
Ég svaraði: „Jú. Birta söguna. Til
þess sendi ég hana.
Er hún nógu góð?”
Þótt ég reyndi að tala hægt og láta
ekki bera á geðshræringu fannst mér
ég vera skjálfrödduð og kjánaleg.
„Nógu góð. Hún er stórfín. Við
lásum hana yfir hér nokkur á blaðinu
og fannst sagan óvenjuleg og — já —
ágæt. Áttu ekki fleiri svona?”
„Þarf ekkert að lagfæra eða er, —”
ég gat ekki lokið við spurninguna enda
var hún svo sem óþörf.
„Nei, ekki að breyta neinu, ekkert
að laga.” hélt ritstjórinn áfram, hress.
„Ég kýli þetta þá inn í prósessinn
sem fyrst. Ekki klárt?”
„Kýla hvað i hvað, nú skil ég ekki.”
Hann hló.
„Nei, maður talar svona hérna. En
sem sagt, sagan kemur í blaðinu. Þú
færð borgun fljótlega senda heim og
þetta rúllar þá allt. Vertu bless.”
Ég þakkaði kærlega. Sagði honum
að vera blessuðum og sælum og meinti
þaðaföllu hjarta.
Skyldi hann, þessi hr. ritstj., eiga
sinn líka í stéttinni eða var hann einn á
báti meðal allra hinna?
Að simtalinu loknu sat ég litla stund
kyrr og gladdist meðsjálfri mér.
Sjálfsálitið tók stökk upp á við.
Auðvitað gat ég samið eina litla
sögu. Skárra væri það. Eftir nokkrar
vikur gæti ég gengið út I næstu
verslun og keypt tiltekið blað, rekið
það upp að fimm nefjum og sagt án
yfirlætis:
„Ég keypti þetta blað nú bara af þvi
að það er saga eftir mig í þvi.” Tíu
augu myndu horfa á mig þegar ég
segði:
„Þetta er enginn vandi. Bara að
kýla þetta inn i prósessinn og láta það
svo rúlla. Það er allt og sumt.”
Svo eru sagðar lifsreynslusögur um
ritstjóra og útgefendur, sem tala oft
með litilsvirðingu við óhörðnuð, við-
kvæm skáld og fara óvirðulegum
orðum um ritsmiðar þeirra.
Nú mega þeir góðu menn vera varir
um sig. Ég er komin út á hina hálu rit-
höfundabraut og sný ekki við.
Þrjú
„Þú ert eitt af skáldunum. Semur
Ijóð og skrifar sögur og allt skal á
prent,” sagði ritstjórinn og bar ótt á.
Hann var önnum kafinn. Sumarfri-
ið var á næsta leiti og mikill tími fór i
að skipuleggja útgáfu þeirra rita er
kæmu út á meðan hann yrði fjarver-
andi.
Allt átti að vera I föstum skorðum
og vel gengið frá öllu I hvívetna.
Ritstjórinn var samviskusamur
maður og vildi vinna störf sín vel.
En það var ekki eitt heldur allt sem
tafði hann þessa dagana.
Þarna sat til dæmis eitt skáldið og
beiðeftir viðtali.
Töluvert barst af frumsömdu efni til
ritsins en minnst af því var nothæft.
Þess vegna var mest af sögum og frá-
sögnum, þýddum úr erlendum
blöðum, sem fylltu síður ritsins.
44 Vikan 44. tbl,