Vikan


Vikan - 25.02.1982, Side 21

Vikan - 25.02.1982, Side 21
Hollustuhættir mestan partinn koma dilkar og sauðfé í sláturhúsið beint af jörðinni. Búfénaður er mikið til alinn á heyfóðri en kjötneysla af öðrum dýrum tiltölulega litil. „En við framkvæmum að staðaldri nákvæma athugun á sýnishornum af kjöti með tilliti til skaðlegra efna. Á þetta sérlega við um þau sláturhús sem hafa leyfi til útflutnings á kjöti. Við miðum í þeim efnum meðal annars við kröfur bæði Matvæla- og landbúnaðar- stofnunar (FAO) og Heilbrigðis- stofnunar (WHO) Sameinuðu þjóðanna. Við tökum einnig sýnishorn úr svína- sláturhúsum og athugum til dæmis sérstaklega líffæri með tilliti til hugsan- legrar fúkalyfjamengunar. En við höfum aldrei fundið neitt athugavert.” í Vestur-Þýskalandi hefur verið notað fúkalyfið klóramfeníkol sem skilur ekki eftir sig neinar leifar i nýrunum, þannig að ekki er hægt að greina það með vísindarannsóknum. En — eins og hér verður skýrt, kemur vart til greina að það hafi verið notað hérlendis. Dýralæknar verða eins og aðrir læknar að hlíta lögum og reglum um gerð lyfseðla og afgreiðslu lyfja. í reglu- gerð nr. 291 frá árinu 1979, um afgreiðslu lyfja, segir á einum stað: „Lyf, sem innihalda eftirtalin efni, má eingöngu nota handa dýrum að fengnu skriflegu samþykki yfirdýralæknis hverju sinni: Arsenik, klófenótan, samtengd efnasambönd með verkan kynhormóna, skjaldkirtilslyf.” Fúkalyfið klóramfeníkól hefur alls ekki verið flutt inn til dýralækninga að sögn Reynis Eyjólfssonar hjá Lyfjaeftir- liti ríkisins. Reynir sagði Vikunni einnig að þau gervi-hormón, sem áður hefur verið minnst á og mótmælt var harðlega af vestur-þýsku neytendasamtökunum, hefðu heldur ekki verið flutt til landsins. Allt mcð eðlilegum hætti? Niðurstaðan af þessari athugun Vikunnar á eftirliti með lyfjanotkun við kjötframleiðslu á Islandi er I höfuð- dráttum jákvæð. Hér gilda strangar reglur um innflutning og notkun lyfja og eftirlit hefur ekkert misjafnt leitt i ljós. Er þá bara allt I stakasta lagi? „Ég get nefnt eitt dæmi um það sem ég tel óeðlilega viðskiptahætti og snertir þau mál sem við höfum hér fjallað um," sagði Páll Agnar yfirdýralæknir. „Engar reglur banna það en sumir eggjafram leiðendur nota litarefni í fóður handa varphænum. Þetta er ekki skaðlegt efni og notkun þess ekki brot á lögum. En þetta litarefni gerir eggja- rauðurnar litsterkari, þær verða mun rauðgulari að sjá. Að likindum seljast þessi egg betur en önnur og að mínu mati er hér ekki farið að eins og rétt væri. Svíar vilja láta banna notkun þessara litarefna og mér þætti ekki óliklegt að notkun þeirra hérlendis yrði einnig látin hlíta einhverjum t reglum fljótlega.” L_i 8. tbl. Vikan 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.