Vikan


Vikan - 25.02.1982, Blaðsíða 31

Vikan - 25.02.1982, Blaðsíða 31
Opnuplakat Aðþessu sinni fjöllum við um nafn sem er fremur lítt þekkt hér á landi enn sem komið er en er sem óðast að ávinna sér frægðog vinsældir ínágrannalöndunum. Dúettinn Soft Cell skipa þeir Marc Almond og David Ball, tveir ungir menn að norðan eins og sagt er í heimalandi þeirra sem er (að sjálfsögðu) Bretland. Saga Soft Cell er ekki löng og til skamms tíma voru þeir bara enn ein hljómsveitin (er hægt að tala um tveggja manna hljómsveit?) sem gutlaði á hljóð- gervla með tilheyrandi glansútbúnaði og ýmiss konar uppákomum. Á síðasta ári vænkaðist hagur þeirra með laginu Tainted Love sem sló i gegn og varð söluhæsta lag I Bretlandi árið 1981. Soft Cell er nú talin ein efnilegasta hljóm- Nýjasta lag Soft Cell heitir Say Hcllo, Wave Goodbye og á án cfa eftir að hljóma oft. SOFT CELL sveitin í heimalandi sínu og sú sem hvað mestar vonir eru bundnar við á þessu ári að mati sérfræðinga um þessi mál. Meginland Evrópu hefur heldur ekki farið alveg varhluta af tví- menningunum, Tainted Love hefur komist ofarlega á vinsældalista og þeir víða hátt skrifaðir. Marc Almond er 24 ára og David Ball 22 ára.Þeir eru frá Leeds og kynntust í listaháskólanum þar i borg. Marc lagði stund á gjörninga en David fiktaði við hljóðgervla. Þegar þeir eru inntir eftir því hvort námið hafi reynst þeint gagnlegt á tónlistarbrautinni vilja þeir sem minnst úr því gera, segja þó að það hafi eflt sjálfstraustið og gert þeim (og þá sérstaklega Marc) auðveldara að fara á svið og láta öllum illum látum. Eins og ljóst má vera setja rafeinda- hljóðfærin svip sinn á tónlist þeirra félaga en að auki má þar greina ýmis önnur áhrif, aðallega það sem nefnt er norðurslóðarsoul og diskó. Danstónlist unglingsáranna hefur ogreynst áhrifarik og er lagið Tainted Love eins konar virðingarvottur við þá tónlist. Þeir vilja gæða rafeindavædda tónlist lífi og til- finningu og vilja ekki láta stimpla sig sem neina yfirborðskennda tölvu- poppara. „Hljóðgervlareru aðeins hljóð- færi sem við leikum á — þeir bjóða upp á marga möguleika og við kunnum því velogbasta.” Fyrsta. lagiðsem þeir léku inn á plötu var Memorabilia sem kom út á safnplötu með tónlist ýmissa óþekktra hljómsveita undir heitinu Some Bizzare Boys. En það var siðar umboðsmaður þeirra, Stevo, alræmdur fútúristi og plötu- snúður i East End í London, sem stóð fyrir gerð þessarar plötu og fékk mest- megnis skömm í hattinn fyrir tiltækið því ekki þótti platan neitt meistaraverk. En í það minnsta fengu óþekktar hljóm- sveitir þarna tækifæri til að láta til sin heyra. Þar á meðal var hljómsveitin Depeche Mode sem eins og Soft Cell átti síðareftiraðgera þaðgott. Nýjasta smáskifa Soft Cell er Bedsitter og fyrsta breiðskífa þeirra, Non Stop Erotic Cabaret, kom á markað undir árslok og hefur verið vel tekið. Nafn plötunnar segjast þeir hafa séð á neonskilti skemmtistaðar í Soho i London og „sagði ekki Liza Minelli að lífið væri kabarett? Mitt er endalaus eró- tiskur,” segir Marc forvitnum til glöggvunar. Það er vert að sperra eyrun þegar Soft Cell heyrist nefnd því margt bendir til þess að þeir eigi framtiðina fyrir sér (í það minnsta þá nánustu) með tónlist sem sameinar margt það besta sem popptónlistin hefur upp á að bjóða og nýtir tækninýjungar til að skapa til- finningaríka og áheyrilega tónlist. iW Tónlistarmcnn Vikunnar og Hollywood: 8. tbl. Vikan 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.