Vikan - 20.05.1982, Blaðsíða 35
,v - -'Á
ÍC j 1V i s y Þýö.: Anna
/S/f f/VOFI IffM
veröfd
sveitarforingi, undirsveitarforingi og
óbreyttur hermaður í landhernum og
einn góðan veðurdag er hann laus úr
herþjónustu.
Á átján ára afmæli sínu er hann fyrst
með stelpu í stúdentapartíi, hann fer
síðan í menntaskóla, þá í gagnfræða-
skóla, síðan í grunnskóla og loks í for-
skóla. Hann veröur fáfróðari með
hverjum deginum sem hann lifir og er
hættur að hafa áhuga á stelpum.
Þessar vitlausu tuörur, það er það sem
þæreru!
Hann er látinn hætta í skóla þegar
hann er búinn með forskólann og nú
kemst ekkert annaö aö en bófahasar og
hermannaleikir, slagsmál, hasar og að
koma heim með slitinn buxnarass og
peysuna í tætlum. Hann er kominn á
leikskóla, en svo verður hann of lítill til
að vera þar og nú er orðið auðvelt að
ráða við hann, en smátt og smátt, án
þess eiginlega nokkur taki eftir því,
hættir hann aö geta talað, þar til svo er
komiö að hann getur bara sagt
„pabbi” og „mamma”. Hann fer að
eiga erfitt með gang, loks fer hann í
barnagrind, hann er farinn að skríða,
tennurnar fara ein eftir aðra og loks er
aðeins ein lítil sæt eftir. Hann er hættur
að geta haldiö sér þurrum sjálfur, fer
að fá tanntökuverki, sýgur þumal-
fingurinn og svo fer mamma hans að
gefa honum brjóstið. Það er óendan-
legt stúss í kringum bleyjurnar hans
og barnapúðrið og svo rennur upp dag-
urinn þegar hann fer meö mömmu
sinni á fæðingardeildina, og er þar í
um það bil viku, og svo allt í einu gerist
það eina nóttina. Oskur — og svo er
Zero ekki lengur til. Mamma hans fer
af fæðingardeildinni með stóra kúlu út
í loftið og er í óléttukjól, en eftir því
sem mánuðirnir líða fer hún að fá aftur
línurnar og eftir níu mánuði er hún
búin að gleyma öllu um Zero litla.
Hann er bara nafn í bókum fæðingar-
deildarinnar.
k
Icuisines r
lenti l<
oumier
ranskt
yrir
agurkera
Við höfum hafið innflutning á eldhús- og baðinn-
réttingum frá Henri Fournier, Frakklandi. Innrétt-
ingarnar eru glæsilegar og vandaðar, enda hefur
fyrirtækið áratuga reynslu að baki í framleiðslu og
sölu slíkra innréttinga.
í húsnæði okkar að Borgartúni 33 eru nú til sýnis nokkrar innréttingar af því fjölbreytta úrvali, sem
Henri Fournier býður upp á. Verið velkomin að sjá og fræðast nánar um þessar innréttingar.
Sendum upplýsingabæklinga til þeirra sem þess óska.
• •
| ] T T_3 Borgartúni 33, Reykjavík.
il U UJj LJ J\ sf., Sími 21490 - 21846. /
___
20. tbl. Vikan 35