Vikan - 20.05.1982, Blaðsíða 51
Draumar
Leðja og
snjór
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig um
að ráða tvo drauma fyrir mig
sem mig dreymdi fyrir stuttu
með stuttu miUibili.
Fyrri draumurinn var á
þessa leið:
Mér fannst ég vera að synda
í vatni sem ég þekki og er í
Svíþjóð, með um það bil sjö
manneskjum sem ég þekki ekki
neitt. Við erum að synda og
leika okkur en svo fer vatnið
að verða gruggugt og það
endar með því að mér finnst
það orðið að leðju. Þá heyri ég
einn úr hópnum segja að það
sé stórhœttulegt að lenda í
svona leðju og að margir hafi
farist. Mér verður þá litið til
hliðar og sé ég hest, jarpan,
og liggur hann hálfur upp úr
leðjunni og hálfur ofan í henni,
en sú hliðin sem stóð upp úr var
öll með skrælnaðri, þurri mold
sem þornað hafði I sólinni. Mér
varð svo um þetta að ég sökk í
leðjuna og þurfti að krafsa mig
upp. Þegar ég kom upp úr sá
ég stóran hól og var hann allur
úr mold, allur þýfður og
hæðóttur (nokkurs konar eyja)
og hann var þurr. Ég synti að
hólnum og það var ekki erftt
en þegar ég var skriðin upp á
hann hitti ég móðursystur
mína, sem heitir J., ogfannst
mér hún vera að bíða eftir mér
þarna. Hún fylgdi mér yfir
hólinn og við komum þá að
lækjarsprænu sem ég stökk yfr
og þá var ég komin á grænt
gras. Þar skyrpti ég tvisvar og
fyrst kom bara leðja en í
seinna skiptið kom hreint
munnvatn.
Seinni draumurinn er á þessa
leið:
Mér fannst ég vera að labba
í fjallshlíð sem var þakin fann-
hvítum snjó, en þvert upp með
(í miðri) fjallshlíðinni var mjór
troðinn göngustígur sem ég var
að labba eftir. Mér fannst eins
og einhverjir væru þarna í
förinni með mér en ég veit ekki
hverjir.
Skyndilega kom ég að tveim
trjábolum sem lágu í vegi fyrir
mér og þar sem stígurinn var
mjór ætlaði ég að reyna að
fikra mig fram hjá en hrasaði
þannig að efri trjábolurinn var
á stígnum en hinn hékk niður
með fjallinu. Ég reyndi að
krækja í trjábolina en þeir
rúlluðu alltaf þannig að ég var
alltaf að detta lengra og lengra
og missa meira tak. Loks sá ég
að þetta þýddi ekki svo ég
ákvað að leggjast þversum í
brekkuna og láta mig rúlla
niður, sem ég og gerði. Þegar
ég kom niður bratta hlíðina
fylgdi mér mikill laus snjór og
var það fyrsta sem ég hugsaði
að fiýta mér burtu ef ske kynni
að kæmi snjóskriða á eftir mér.
Þegar ég var staðin upp sá ég í
hlíð fyrir framan mig sumar-
bústað móður minnar og stóð
systir min, sem heitir J., og
beið eftir mér. Sumar-
bústaðurinn er brúnn og í
kringum hann var bara órœkt,
það er mold og enginn snjór.
Fyrir um það bil 5-6 árum
dreymdi mig að ég væri á jörð
sem faðir minn á skammt fyrir
utan bæinn og var ég þar í litlu
hesthúsi ásamt tveim hestum
sem faðir minn átti. Annar er
jarpur og hinn gráskjóttur, en
þarna stóð ég mitt í öllum
hrossaskítnum og var með
mikla klígju því hendurnar á
mér voru svo skítugar. Sérstak-
lega var óþægilegt hvað
skíturinn var óþægilegur undir
nöglunum og ég var alltaf að
reyna að naga hann undan
með tönnunum og skyrpa, en
það gekk ekkert.
G.
Þig dreymir sterka og eindregna
drauma og hér kemur ráðning
sem þú ert ef til vill ekki fylli-
lega sátt við en mundu að
.draumar eru oft til að skýra
.veruleikann fyrir fólki og þeir
valda engu i sjálfu sér heldur
segja manni hvað getur gerst.
Fyrst er best að taka
drauminn sem þig dreymdi fyrir
5-6 árum. Þar virðist sem þig
hafi dreymt fyrir hjónabandi
(þínu að öllum líkindum) og þar
kemur fram að í þessu hjóna-
bandi skiptist á skin og skúrir
(eins og í flestum hjónaböndum)
og flest bendir til að í þessu
hjónabandi sé mikið um
peninga, ef til vill peninga-
eyðslu, og hjá þér kemur fram
viss ótti við að fást við fjármál
eins og þau séu þér mjög ógeð-
felld. Einhverjar deilur geta
verið eða hafa orðið um
peningamál og þú ert í einhverri
þeirri stöðu sem þér finnst
óþægileg og vekur með þér reiði
á stundum. Einhver í kringum
þig er meira úti á lífinu en þér
líkar (varla á það þó við um þig
sjálfa þó ekkert sé útilokaö).
Drykkja gæti verið með í
spilinu. Hins vegar er ákveðin
velgengni sterk í draumnum sem
þrátt fyrir þessi óþægindi er
ótvíræð.
Draumanafnið í hinum tveim
draumunum (nafn systur þinnar
og móðursystur) er ótvírætt gott
tákn og reyndar afskaplega
sterkt gæfumerki. Þú gætir hafa
átt við veikindi að stríða eða ein-
hver þér nákominn, jafnvel svo
að tvísýnt sé um líf á tímabili.
Það líf varðveitist þó eftir
draumnum að dæma. Erfið-
leikar eru í báðum draumunum,
þó greinilegri í þeim fyrri, og ef
til vill er einhver þér nærri ekki
nógu heill þér. Veikindin gætu
hafa breytt einhverju í lífi þess
veika. Ef til vill er um atvinnu-
missi að ræða og erfiðleikatíma-
bil gengur yfir og endar í tví-
mælalausri velgengni. Græna
túnið handan lækjarins merkir
nýtendraðan ástarneista og ekki
er hægt að sjá annað en eftir það
gangi flest í haginn. Snjórinn i
seinni draumnum er afskaplega
gott tákn og ef til vill kanntu
ekki alveg strax að njóta betri
tima þegar þeir koma. En það
kemur allt.
Skop
20. tbl. Vikan 51