Vikan


Vikan - 21.04.1983, Side 7

Vikan - 21.04.1983, Side 7
breyta umhverfi okkar og troða upp á okkur verkum sem eru úr varanlegasta efninu sem finnst, steinsteypu. Gagnrýnislaust! Myndlistarmenn eru aftur á móti að vinna fyrir eigiö fé og í eigin tíma og öllum þykir sjálfsagt aö þeir fái sína gagnrýni. Bygginga- nefndir gætu fengiö myndlistar- menntaöa menn sér til aðstoöar. Vissulega eru til góöir íslenskir arkitektar og hönnuðir. Þegar þeir halda sig við þaö sem þeir hafa lært er það ekki svo slæmt. Verst er þegar þeir fara út fyrir þaö og ætla að fara að leika kúnstnera með stórum staf. Innanhúss í kirkjunum er sjald- an leitaö til myndlistarmanna fyrr en skaöinn er skeður. Þá kemur í ljós laus veggur sem þarf aö bjarga eða hugmynd um einhvers konar myndskreytingu. í raun og veru ættu myndlistarmenn og arkitektar að vinna saman. Sem betur fer eru til heiðarlegar und- antekningar. Það getur verið mjög frjótt og skemmtilegt fyrir listamenn að vinna við opinberar byggingar. Þannig verkefni geta hins vegar aldrei verið alveg frjáls. Maður þarf að hafa átorítet eins og Picasso til að hafa frjálsar hend- ur. Venjulega kemur til einhver málamiölun og maður þarf aö taka tillit til höfundar byggingar og til hvers á að nota hana. Lista- maðurinn neyðist til aö vinna ein- göngu út frá fagurfræðilegu sjónarmiði á kostnaö einhvers annars. Þegar ég er að vinna fyrir sjálf- an mig er ég að vinna aö eigin hug- mynd og þarf ekki að taka tillit til smekks annarra. Þaö kemur mér á óvart hvað kirkjunnar menn eru opnari fyrir list en maður gæti gert sér í hugar- lund. Annaðhvort hafa prestar breyst í seinni tíö eöa ég hef breyst. Þetta kemur fram í svo mörgu, ekki síst afstöðu til þjóöfé- lagsmála. I stað vandlætingar er tekist á viö þau af alvöru. Ég hef oft gaman af að hlusta á útvarps- messurnar á sunnudögum. I kirkjum held ég aö séu ónýttir möguleikar fyrir myndlistar- menn, að vísu hafa menn haft góða möguleika til listsköpunar eins og sést til dæmis á gler- myndagerðinni. Og mér finnst það segja meira en flest annað sem ég hef heyrt um tengsl trúar og listar, sem ég heyrði í sögu eftir Sigvalda Hjálmarsson fyrir skömmu: Að listin væri farartæki milli sálna.” Magnús hefur átt annríkt að undanförnu. Eftir árs starf sem borgarlistamaður... „Þaö skapaði mér ákveðið vinnuöryggi. Áður var ég til skiptis í brauðstriti, leikhúsvinnu eða öðru skyldu myndlistinni eða alveg í myndlist- inni.” ...Þá tók við sex mánaða tímabil þegar hann vann stíft áfram og aö því loknu setti hann upp stóra sýningu að Kjarvals- stöðum í vor eð leiö. Síöan hélt hann áfram að vinna stíft, tók þátt í sýningu SUM-ara, NÖVEM ’82, í vetur: „Þegar SUM varð til var lítiö aö gerast í sýning- armálum á Islandi. Ungir mynd- listarmenn vildu ráöa hvenær og hvernig þeir sýndu. Ekki láta hið opinbera ráða. SUM skapaði aö- stöðu. Já, þetta er aö vissu leyti hliöstætt Gullströndinni nú í vetur. SUM hafði miklar ráöageröir aö kynna íslenska myndlist erlendis og erlenda hér á landi. Við vorum mjög ólíkir einstaklingar og það er eölilegt að við höfum vaxiö hver í sína áttina. Allir mjög miklir ein- staklingshy gg j umenn. Þegar viö byrjuðum tóku eldri myndlistarmenn því sem stríös- yfirlýsingu. Og það skrýtna var að þeir sem tóku okkur verst voru abstraktlistamennirnir. Aldrei hefur víst oröið.eins hairammt ástand í ólíkum hópum myndlist- armanna eins og þegar þeir voru aö brjóta abstraktinu leið. En þetta er víst alltaf svona. Þó held ég aö umburðarlyndið sé miklu meira núna. Núna er ég í bílaleik, í tveggja vikna fríi að gera upp bíl, en næst á dagskrá er ýmislegt. Ég er að fara að vinna í grafík, stóru málverkunum mínum, svo er ég með lítið verk í garðinum heima sem heitir Lindin og lækurinn og er sambland af garði og skúlptúr. Mig langar að vinna meir í skúlpt- úr, alla vega módel. Þaö er svo margt að vinna að ég þyrfti 36 tíma í sólarhringinn — eöa ráða mér aðstoöarfólk. . .” a Magnús Tómasson 16. tbl. Vikan 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.