Vikan


Vikan - 21.04.1983, Side 26

Vikan - 21.04.1983, Side 26
Vöðvarnir hnyklast á þeim — og þetta eru engir smávöðvar! Myndirnar voru teknar á nýaf- stöðnu íslandsmeistaramóti í vaxtarrækt og það fer vart fram hjá neinum aö þetta eru ofboðsleg- ir vöðvar. Hvernig fer þetta fólk að því að öölast slíkan og þvílíkan vöxt? Við báðum Sveinbjörn Guöjohn- sen aö lýsa fyrir okkur þeim undirbúningi sem vaxtarræktar- maður leggur á sig fyrir mót af þessu tagi. Þess er fyrst að geta að tíminn til undirbúnings var að þessu sinni helst til stuttur, aö mati Sveinbjörns. Hann hafði að- eins sex mánuði til stefnu. „Ég fer eftir ákveðnu æfingaprógrammi,” sagöi Svein- björn, „en jafnframt treysti ég á tilfinninguna. Ég er farinn að þpkkja skrokkinn ofsalega vel og veit hvenær líkamsþreytan er of mikil til aö halda stíft viö æfinga- skrána.” Sex mánuðum fyrir Islands- meistaramótið, sem var haldið 12. mars síðastliðinn, byrjaði Svein- björn á ströngum æfingum og nákvæmu mataræði. Hann fór á fætur klukkan hálfsjö á hverjum morgni, át hálft kíló af bláberja- VöðvafjöU og vaskar konur skyri með sykri, hálfan lítra af mjólk og tvær brauðsneiðar með smjöri og osti. Auk þess vítamín og bætiefni af ýmsu tagi. „Ég er brunafrík, brenni miklu og verð því fljótt svangur aftur,” segir Sveinbjörn. Hann æfði á morgnana á vinnustaönum, Orku- bót við Grensásveg, og fékk sér aftur aö boröa um níuleytið. Þá voru þaö fjórar brauðsneiöai (alltaf gróft kornbrauö) meö banönum, einn sopi af lýsi og Sveinbjörns-blanda: Þeytasaman tvær hyrnur af kókómjólk, 50 grömm af próteíni og tvo banana. Hádegismaturinn var venjuleg kjöt- eöa fiskmáltíð meö ávaxta- safa. Síðan aftur æfing frá þrjú til hálfsex og eftir hana hvíldi Svein- björn og borðaði svo aðalmáltíö dagsins, aftur kjöt- eða fiskmáltíð ásamt mjólk. Alla þessa mánuði sleppti Sveinbjörn algjörlega öllu grænmeti og ávöxtum en borðaði hins vegar drjúgt af sykri og sælgæti. Síðasta mánuðinn fyrir keppni breytir Sveinbjörn mataræðinu. Nú sleppir hann öllu salti úr öllum mat og hættir að boröa kvöldmat. Hálfum mánuöi fyrir keppni sleppir hann svo öllum sykri, allri fitu og fær sér aöeins smáslurk af lýsi. Viku fyrir keppn- ina minnkar hann brauöát og borðar einungis soðna lifur og soðna kjúklinga í hádeginu — allt saltlaust. Hann borðar grænmeti og ávexti en ekki banana. Hann vó 93,5 kíló viku fyrir keppnina en síðustu þrjá dagana innbyrðir hann engan vökva, fæðan er alveg þurr og hann er 86,5 kíló þegar keppendur eru vigtaðir daginn fyrir keppnina. „Líkaminn þráir viö svo búiö sykur og vökva,” segir Svein- björn, „og strax eftir vigtunina fer ég út í ísbúð og úða í mig einum lítra af ís. Vöðvarnir sjúga vökvann í sig um nóttina þannig að húðin liggur strekkt á þeim að morgni.” Ennfremur fær hann sér 3 hvítvínsglös til að æöarnar tútni sem mest. Þá fer Sveinbjörn á fætur klukkan 6 og keppnisdaginn étur hann hvers konar mat. Eftir tveggja til fjögurra tíma stífar æfingar sex daga vikunnar í sex mánuöi stendur Sveinbjörn á sviöinu ásamt félögum sínum í Landssambandi vaxtarræktar- manna, en þar er hann formaöur. Keppendur hafa sturtaö í sig vökva, makaö á sig olíu yfir brúnan húðlitinn sem settur er á í síöustu vikunni. Allir einbeita sér sem mest þeir mega að sameiginlegu æfingunum sem þeir þurfa allir aö kunna skil á. Jafnframt fara þeir yfir frjálsu æfingarnar sem hver og einn hefur sjálfur samið. „Þetta er mikil sjálfsögun sem fylgir vaxtarræktinni,” segir Sveinbjörn. „Hún er allt annað og meira en líkamsrækt sem margir stunda í því skyni að líta þokka- lega út, halda heilsunni og passa í fötin sín. Vaxtarræktin, eins og aörar íþróttagreinar, krefst þess að maður leggi sig allan fram. ” Stelpurnar allar á fullu við að undir- búa sviðsframkomuna: Aðalheiður, Steinunn Agnarsdóttir, Elín Viðarsdóttir og Alfa. 42 Víkan 16. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.