Vikan - 21.04.1983, Qupperneq 32
FRAMHALDSSAGA
un. Kom um klukkan hálfsex og þá
var búið að brjóta hurðina hjá mér
og á mottunni lá miði frá ungfrú
Craig þar sem hún býður mér að
heimsækja sig og ræða einhvern
misskilning á milli okkar. Eg
botna ekkertíþví.”
„Var það þess vegna sem þú
hringdir hjá henni? ”
„Eg ætlaði ekki að fara í heim-
sókn svona snemma en ég var
bara búinn að vera nokkrar
mínútur inni þegar ég heyrði þessi
læti að neðan, eins og fílar væru að
dansa rúmbu. Svo heyrðist brot-
hljóð, borð fauk út um gluggann
og glerbrot út um allan blettinn. ’ ’
„Svo þig hefur grunaö aö eitt-
hvaðværiaö.”
LEIKSOPPUR
„Af minni alkunnu kænsku gerði
ég ráö fyrir þeim möguleika.”
„Og hefur hraðað þér niður?
Hvernig leit hann út,” spurði
sjúkraliðinn forvitinn, „þegar
hann komtil dyra?”
„Rétt eins og þú eða ég. Hann
var með morgunslopp á hand-
leggnum. Eg spurði hvort nokkuð
væri að og hann sagði: Nei, en það
var vingjarnlegt af þér að athuga
það. . . Mjög kurteis. Síöan spurði
hann mig að nafni. Eg sagði hon-
um það, Peter Felgate. Og þá dró
hann hnífinn fram undan sloppn-
um og réðst að mér.”
„Haltu áfram. Náöi hann aö
stingaþig?”
„Sem betur fer gat ég vikið mér
til hliðar. Svo gaf ég honum kjafts-
högg og eftir það,” sagði Felgate
rólega, „var hann ekki til
óþæginda.”
„Ekki vildi ég lenda í þessu.”
Sjúkraliðinn varð lotningarfullur
á svipinn og leit síðan á Lindy.
Sagðirðu eitthvað, vinan?”
Felgate hallaði sér fram. „Hún
er sennilega undir of miklum
áhrifum deyfilyf ja. ’ ’
Hún muldraði eitthvað og Fel-
gate beygði sig að henni.
„Fyrirgefðu, ég heyri ekki.”
„Eg hélt. . .að þú. . .byggir
uppi.” Henni var þungt um andar-
dráttinn. „Og gerðir hávaðann.”
Felgate gretti sig. „Nú held ég
aö ég skilji miðann frá henni,”
sagði hann við sjúkraliðann. „Eg
er hræddur um að það hafi verið
Hal.”
„Hver er Hal?” Sjúkraliðinn
spurði fyrir hana og hún var hon-
um þakklát.
„Henry Braddock, vinur minn.
Eg hef þekkt hann í nokkur ár..
Skrítinn náungi. Leikur smáhlut-
verk í leikhúsunum. Hann var ný-
skilinn við konuna sína og ég sagði
honum að hann mætti nota íbúðina
mína á meðan ég væri í burtu.”
Felgate leit á hana. „Var hann til
óþæginda?”
„Eg held viö ættum að láta
vera.. .”
„Eg vil. . .koma þessu. . .á
hreint. Att þú stereo? ”
„Já.” sagði Felgate alvarlegur.
„Eg sagði honum að hafa það
lágt.”
„Það var líka annars konar háv-
aði. Eg heyröi. . .líka þegar þú
komst heim.”
Felgate varð vandræðalegur.
„Eg get ekki skilið. . .”
„Kannski fært til húsgögn?”
stakk sjúkraliöinn upp á.
„Eg hreyfði ekkert úr staö í
morgun. Fótatak? Eg geng hljóð-
lega um. Eg skil bara ekk-
ert. . .Bíðum nú.” Felgate smellti
fingrum. Eg hef einn af þessum
gashiturum yfir vaskinum. Það
heyrist hvellur í honum þegar
maður kveikir. En þaö getur
varla. . .”
„Þetta er svarið,” sagði sjúkra-
liðinn ákveðinn. „Tengdaforeldr-
ar mínir lentu í þessu líka. Þau
búa í háhýsi og í hvert skipti sem
þau kveikja á gashitaranum leiðir
hávaðinn niður með pípunum og
hræöir líftóruna úr fólkinu fyrir
neðan, það er aö segja þangað til
þaö vandist því. Hefurðu haft
þennan hitara lengi?”
„Eg lét setja hann upp rétt áður
en ég fór. Eg býst viö að Hal hafi
notað hann öðru hvoru. Ég verð að
látalítaáþetta.”
„Hafðu ekki áhyggjur. Þetta
bjargaði lífi mínu í morgun.” Hún
reyndi að brosa.
Mennirnir litu hvor á annan fyrir
ofan hana. Þeir sveigðust til með
hreyfingum bílsins. Peter Fel-
gate, hugsaöi hún með sér, var
eldri en hún hafði haldið. Nokkuð
á fimmtugsaldri. Stórskorið andlit,
snyrtilegt hár, nokkuð fariö að
grána og þynnast. Traustvekjandi
andlit, svolítið áhyggjufullt en
kímið um leiö. Ekki óþægilegt að
horfa á það úr sjúkrabörum.
Hún dró aö sér andann eins
djúpt og hún þoldi. „Ef þeir leita í
íbúðinni hans. . .”
„Já?” sagði Felgate í hvatning-
artón.
„Smokey erþar.”
„Smokey?”
„Kötturinn hans. Það þarf að
líta eftirhonum.”
„Eg skal sjá um það,” lofaði
Felgate.
Húnsofnaði. sðgulok
/
/
f
TOSHIBAER—562 KR. 7.555.
Nú geta allir
eignast stórkostlegan örbylgjuofn frá
TOSHIBA
og sparað tíma og verulegar f járhæðir í mat
og orkukostnaði
Toshiba er stærsti framleiðandi heims á örbylgjuofnum og
búnaði fyrir þá. Tækninýjungar koma frá Toshiba, — það
nýjasta, DELTAWAVE dreifing, gefur þér besta fáanleg-
an árangur í matseld og bakstri.
Þjónusta sem þér býðst ekki betri. Þú færð íslenskan
leiðarvísi aðofninum, matreiðslubók og þér er boðiðá mat-
reiðslunámskeið hjá Dröfn H. Farestveit hússtjórnar-
kennara, menntaðri ítilraunaeldhúsi Toshiba í Englandi. Á
námskeiðinu færðu fullkomin kennslugögn og uppskriftir á
íslensku — Já, þetta allt stendur þér til boöa án auka-
kostnaðar.
Verðogkjör
bjóðast ekki betri:
Toshiba ER—562 kr. 7.500
— útborgun kr. 2.000
og eftirstöðvar kr. 1.500 á
mánuði (að viðb. kostnaöi).
Sláðu nú til og vertu velkominn
íhóp ánægðra
Toshiba örbylgjuofnaeigenda
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A Sími 16995
48 Vikan 16. tbl.