Vikan - 28.07.1983, Side 7
EKKERTA THUGA1(ERT VID AD GRÆDA
900 milljónir á brúðkaupinu
Ævintýrið um einkaritarann
sem gekk að eiga yfirmann sinn
rættist fyrir Janni Spies. Áður var
hún sendistúlka hjá ferðaskrif-
stofukónginum Simoni Spies, fyrir
innan við tíu þúsund á mánuði, en
Það vakti víða athygli þegar danski ferðaskrifstofukóngurinn Simon
Spies, 63 ára, gekk að eiga tvítuga stúlku úr starfsliði sínu. Margar
sögusagnir spunnust þegar í stað um þetta hjónaband, grundvöll þess
og hugsanlega endingu, og eftir því sem Vikan best veit hafa þau
hjónakornin þegar hlaupið sitt í hvora áttina einu sinni en sæst á ný -
það er að segja þegar gengið var frá þessu blaði í prentun.
En skömmu eftir brúðkaupið fóru þau Spieshjón í ferðalag til Sví-
þjóðar og þar var meðfylgjandi viótal tekið, svo og myndirnar, sem
Vikan hefur nú fengið einkarétt á. Þar á meðal eru einu myndirnar
sem Spieshjónin hafa leyft að taka í svefnherbergi sínu!
nú er hún frú Spies og hefur úr
milljónumaðspila.
Simon Spies er Daninn sem
græddi milljaröa á að selja sólar-
landaferöir. I margra augum er
hann einkum þekktur sem sér-
vitringur sem meö fáránlegustu
uppátækjum hefur heppnast að
láta blöðin skrifa um sig dálka upp
og dálka niður. Hann hefur alltaf
hirð fólks í kringum sig. í þessari
hirð er fólk sem hefur það hlut-
verk að snyrta á honum neglurnar
og allt upp í að vera fjármálaráð-
gjafar.
Þegar Janni byrjaði að vinna
hjá Spies var hún gjaldkeri og lét
sér ekki detta í hug að eignast
Simon fyrir eiginmann. Einn dag-
inn, þegar Simon átti leiö fram hjá
Kannski er það lán fyrir
Simon að Janni er bara
48 kíló!
kassanum, tók hann eftir Janni og
gaf tafarlaust fyrirmæli um að
hún skyldi verða einkaritari hans
og ein af hirðinni. Simon Spies hef-
ur ævinlega kringum tíu fallegar
stúlkur í hirð sinni og þær eiga að
sjá um að snyrta á honum
neglurnar, velja föt á hann og
þjóna honum í einu og öðru. A
hverjum morgni eiga tvær þeirra
að baka handa honum morgun-
brauðiö og morgunmatinn vill
hann fá stundvíslega klukkan
hálffimm.
í framtíðinni
ætlum við að
eignast börn —
mörg börn, seg-
ir Janni.
Janni var „einkaritari” Simon-
ar Spies á þennan hátt í tvö ár.
Þetta hlutskipti þýddi að hún ferð-
aðist mikið. Simon fer nefnilega
alltaf sjálfur og prófar þau hótel
sem á að nota í sambandi við þau
ferðalög sem hann selur. Það fer
ekki hjá því að á „reiðskapnum
kennist hvar heldri menn fara”.
F’öruneytið vekur alltaf athygli
Öar sem það fer í tveimur Cadillac
bílum, einum Mercedes Benz og
aokkrum öðrum. Eftirtektin sem
Spies vekur á feröum sínum er
álíka og þegar þjóðhöfðingjar eru
á ferð.
Brúðkaupið var haldið í maí og
öró viðlíka mannfjölda út á götur
Kaupmannahafnar og þegar
örottningin í Danmörku sýnir sig
opinberlega. Raunar voru þeir á
meðal áhorfenda sem efuðust
11111 að þetta hjónaband byggðist á
^ærleiksríkum tilfinningum.
Aldursmunur á Simoni og Janni er
43 ár. Það, að því viðbættu að
Simon græddi 900 milljónir
danskra króna á því að gifta sig og
losnaði þannig við að borga erfða-
fjárskatt, fékk marga til aö efast
arnástina.
Þegar Spies er að ferðast með
airð sína er áætlunin næsta þétt-
Sett en samt heppnaðist okkur að
fá viðtal viö nýgiftan tvítugan
miUjónamæringinn Janni Spies er
Þau hjónin voru á ferð í Svíþjóð:
Hvernig er að fá aðgang að svo
miklu fé sem þú hefur nú fengið
uieð þvi að giftast Simoni?
~ Þaö er augljóslega gott að
K!ukkan hálf-
fitT*ni um
^orguninn fær
Simon Spies
^Ofgunmatinn
°9 rnorgunblöð-
ir> í bólið.
Brauðið baka
tveir „einka-
r'tarar" sem
ferðast alltaf
Jfoð kóng-
'iutn.
eiga peninga en þeir eru ekki allt.
Fólk heldur kannski að ég hafi
fullt að gera að eyða peningum en
það er ekki rétt. Þegar maður veit
að maður hefur mikil fjárráð fer
maður að meta allt ööruvísi það
sem ekki veröur keypt við fé.
Mikilvægast er að eiga sanna vini
sem hægt er að treysta og sem
ekki umgangast mig bara af því
ég er rík. En það er augljóslega
gott að eiga peninga og geta keypt
það sem mann langar til.
Svo þú gekkst ekki að eiga
Simon peninganna vegna?
— Nei, alls ekki. Mér finnst
Simon sætur og góður. Ég giftist
honum af því mér þykir vænt um
hann. En peningarnir eru mikils
virði. Fram hjá því verður ekki
horft.
Hjónaband ykkar þýðir að Simon
sleppur við að borga 900 milljónir i
erfðaskatt. Heldur þú að það hafi
haft áhrif á hann?
— Simon segist elska mig og
hafa gifst mér þess vegna. Eg
treysti því. Ferðaskrifstofan
gengur vel svo að hann hefur mik-
ið fé handa á milli. Þar fyrir utan
sé ég ekkert athugavert við það
þótt viö græðum 900 milljónir á að
gifta okkur.
Hvenær ákváðuð þið að giftast?
— I október í fyrra fékk ég
bréf frá Simoni þar sem hann bað
mín. Ég var þá í Róm og mánuð-
inn sem ég var þar fékk ég þrjú
bréf frá honum þar sem hann
spurði hvort ég vildi ganga að eiga
hann.
Hvernig leist þér á tilboðið?
— Ég varð undrandi og glöð.
Við höfðum verið mikið saman um
langan tíma og það var eitthvað
gott á milli okkar.
6 Vikan 30. tbl.
Fyrsta og eina myndin sem til er
af Janni og Simoni í rúminu.
TEXTI: PETER MATTSSOIM
MYNDIR: TORSTEN LAURSEN
Einkaréttur: VIKAN
Simon er 43 árum eldri en þú.
Hvernig er það að vera gift svo
miklu eldri manni?
— Mér finnst aldurinn engu
máli skipta. Ég tel mestu máli
skipta að fólki þyki vænt hvoru um
annað.
Lifshættir Simonar eru öðruvisi
en ungt fólk á að venjast. Er það til
dæmis ekki skrýtið að fara í háttinn
um hálftiuleytið?
— Ég fer ekki í háttinn á þeim
tíma. Þá er ég með vinum mínum
og Simoni þykir ekkert athugavert
við það.
Simon er alltaf með hóp af ung-
um og fallegum stúlkum í kringum
sig, kyssir þær og daðrar við þær.
Hvað finnst þér um það?
— Þannig hefur Simon alltaf
haft það og mun halda því áfram.
Ég læt mig það engu varða. Hann
gerir þetta til að sýna starfsliðinu
aö hann kann að meta það.
Hefur lif þitt breyst við að giftast
Simoni?
— Að sjálfsögðu. Áður fyrr
vann ég fyrir hann. Nú eru það
fyrrverandi vinnufélagar mínir
sem vinna fyrir okkur. Þaö var
dálítið skrýtið til að byrja með en
mér finnst það allt í lagi.
Hvernig lifi lifðir þú áður en þú
giftist Simoni?
— Ég lifði ósköp venjulegu lífi,
held ég. Ég vann sem sagt hjá
Spies, sem þýðir að maöur ferðast
mikið. I frítímanum var ég meö
vinum mínum, fór á diskótek og
þess háttar.
Ferð þú enn á diskótek og
skemmtir þér?
— Nei, það er orðið lítiö um
það. Simon vill alltaf hafa mig í
nágrenninu.
Hvað hyggist þið fyrir í framtið-
inni?
— Ég vildi gjarna eignast börn
en við höfum komið okkur saman
um aö bíða aö minnsta kosti í eitt
ár áður en við reynum það. Sjálf
ætla ég að læra hvernig fyrirtækið
gengur. Simon vill að ég setji mig
inn í fjármálin. Ég á að taka viö
þessu öllu einhvern tíma. I haust
er ég skráð á viðskiptanámskeiö í
háskólanum í Kaupmannahöfn.
Ég kem úr verkamannaf jölskyldu
og hef aldrei haft efni á að mennt-
ast.
Umgengstu enn þá sem þú
þekktir áður en þú giftist Simoni?
— Já, ég umgengst svo aö segja
ekki aðra. Ég er dálítið smeyk um
að einhverjir leiti eftir vináttu við
mig eingöngu peninganna vegna.
Ég finn öryggi í hópi minna gömlu
vina. Þeir voru orðnir vinir mínir
áöur en ég komst yfir þessa fjár-
muni.
Er alls ekkert neikvætt við hjóna-
bandið?
— Jú, ég hef fengið morðhótun
og það er skelfilegt. Það er greini-
lega einhver öfundsjúk mann-
eskja einhvers staöar sem ekki
getur sætt sig við að við Simon
séum hjón. Það er agalegt.
Peningarnir eru jákvæöur þáttur í
málinu en um leiö skapa þeir
vandamál. Það þarf sífellt að fjár-
festa og þá er um aö gera að veðja
á rétta þætti. Það er dálítið stress-
andi.
Þetta viðtal átti aðeins að taka
tíu mínútur en hefur nú tekiö
fjörutíu. Janni Spies er opin og ær-
leg og þaö kemur fram þegar
spjallað er við hana. Grundvöllur
þessa hjónabands veröur örugg-
lega ræddur manna á meðal. Orð-
rómur frá Danmörku segir að bú-
ist sé við skilnaðarmáli hvenær
sem er. Hvort þetta er aðeins
málamyndahjónaband til að
bjarga 900 milljónum getur fram-
tíðin ein skorið úr um. En brúð-
hjónin líta alltént út fyrir aö vera
hamingjusöm.
Hér sýnir Janni hringana tvo sem Simon gaf henni.
Verðmætið er ein milljón danskra króna — hvor!
30. tbl. Vikan 7