Vikan - 28.07.1983, Page 14
Saga og þróun skynd
Eitt mikilvægasta framlag
Bandaríkjamanna til heimsmenn-
ingarinnar eru hamborgarastaðir.
Um allan heim má finna slíka
staði, McDonald’s, Kentucky Fri-
ed Chicken, Burger King. Við höf-
um okkar eigin Tommaborgara og
stóru amerísku keðjurnar hafa
ekki náð verulegri fótfestu hér á
landi. Allir vita hvernig þessir
staðir eru, þar má fá ódýra og
(oft) bragðgóða hamborgara með
skömmum fyrirvara. Þetta kem-
ur sér vel í hraða nútímalífsins,
þar sem allur tími er vandlega
skammtaður og flokkaður.
Þegar hestarnir
breyttust í
hamborgara. . .
Fyrir aldamót þróaðist fyrsti
vísirinn að slíkum stööum í
Bandaríkjunum. Hestvagnar fóru
þá um verksmiðjuhverfi hinna
iðnvæddu Norðausturríkja og úr
þeim var seldur matur til verka-
manna. Þessir hreyfanlegu mat-
staöir urðu þekktir fyrir góðan,
einfaldan og ódýran mat. Síðar
urðu þeir svo vinsælir að árið 1912
var þeim bannað að nota vegina.
Þeir ollu umferðartruflunum. Þar
með losuðu eigendurnir sig við
hestana (sumir segja að þeir hafi
verið notaðir í fyrstu hamborgar-
ana) og tóku hjólin undan vögnun-
um. Þar með urðu skyndibitastað-
irnir til.
Á árunum 1920—1940 voru ham-
borgarastaðir mjög vinsælir, bæði
á austur- og vesturströnd Banda-
ríkjanna. I Kaliforníu voru ham-
borgarar seldir úr hinum ótrúleg-
ustu byggingum: húsum sem líkt-
ust hænum, svínum, hvölum og
pulsum með öllu. Fátt eitt er nú
eftir af þessum byggingum því
þær voru ekki byggðar úr mjög
varanlegu efni. Einnig tíðkaðist
að menn keyptu járnbrautar-
vagna fyrir lítið fé, breyttu þeim í
skyndibitastaði og kæmu fyrir
meðfram fjölförnum leiðum.
Eftir heimsstyrjöldina síðari
breyttist útlit staðanna. í stað
ódýrra og óvandaðra húsa voru nú
byggð nútímaleg, vönduð hús með
stórum gluggum og hallandi þaki.
Skyndibitastaðirnir fóru að líkjast
fínum veitingastöðum.
McDonald's
1954 fékk sölumaður mjólkur-
hristivéla pöntun á átta slíkum
vélum frá tveimur bræðrum, Dick
14 Vikan 30. tbl.