Vikan - 28.07.1983, Page 51
Hawaiibrauð
Efni í tvö brauð:
350 grömm hveiti
55 grömm pressuger
40 grömm sykur
135 grömm smjörlíki
3/4 desílítrar (75 grömm) mjólk
1—2 egg
50 grömm rúsínur
Hnoðið öllu saman í deig og látið lyfta
sér. Hnoðið upp aftur, leggið i tvö fransk-
brauðsform og látið deigið lyfta sér þar til
stærðin hefur tvöfaldast. Myndið rauf í
miðjunni, til dæmis með því að þrýsta
breiðum spaða ofan í deigið.
Notið hrærivél til að blanda saman svo-
litlu af sykri, marsípanmassa (fæst í búðum
undir heitinu „rámasse") og smjörlíki.
Dreifið blöndunni ofan í brauðraufarnar og
skreytið með hnetuflögum.
Bakið við 240 gráða hita þar til brauðið er
Ijósbrúnt eins og myndin sýnir.
Rabarbaraterta (Fynrómanns)
Tilbúin eftir eina og hálfa klukkustund
35 grömm rabarbari
125 grömm smjör og smjör í formið
150 grömm sykur
3 egg
1 salthrista
200 grömm hveiti
2 sléttfullar teskeiðar lyftiduft
2—3 matskeiðar mjólk
3 eggjahvítur
125 grömm sykur (fínn, jafnvel púðursykur)
Þvoið og hreinsið rabarbaraleggina og brytjið þá
í um það bil tveggja sentímetra langa búta. Leggið
þá á pappírsþurrku eða klút til þerris.
Þeytið upp smjörið og bætið saman við sykri,
eggjum og salti.
Hrærið rólega út í blöndu af hveiti og lyftidufti.
Ef deigið verður of þurrt skal blandað út t það
mjólk þar til það loðir vel við sleifina.
Berið smjör í kringlótt bökunarform sem hefur
losanlegan kant. Setjið deigið í formið og breiðið
úr því með skeið sem er oft bleytt í vatni.
Dreifið rabarbaranum yfir deigið og setjið
formið t kaldan bökunarofn, sem síðan er stilltur á
millihita. Bakið kökuna í 40 mínútur.
Rétt áður en kakan er bökuð þarf að stífþeyta
eggjahvíturnar og bæta síðan sykrinum smátt og
smátt saman við.
Takið kökuna úr ofninum og lækkið hitann
talsvert.
Dreifið eggjahvítuþeytunniyfir kökuna og setjið
hana aftur inn í ofninn. Látið hana bakast í um
það bil 10 mínútur eða þar til eggjahvíturnar eru
Ijósbrúnar. Takið kökuna úr ofninum og látið
hana kólna.
50 Vikan 30. tbl.
Strákar á hjólum
Kæri draumráðandi.
Mikið værir þú vænn ef
þú réðir þennan draum.
^Lig hefur dreymt hann
tvisvar. Ég er hrifin af strák
Sem við skulum kalla S.
Mig dreymdi að ég væri hjá
Vlnkonu minni. Þegar ég
Var á leið heim hitti ég
nokkra krakka úr götunni
°g þeir spurðu mig hvort
ég vildi koma t leiki. Ég
Sagði að ég væri að fara
heim að borða og kæmi út
a eftir. Þegar ég kom heim
Sa ég mörg hjól. Eg flýtti
^nér mn til mömmu og
sÞurði hver ætti hjólin.
Ídún sagði að margir strákar
^efðu komið og spurt eftir
7nér síðan hefðu þeir skilið
hjólm eftir. Ég flýtti mér út
an þess að borða og fór til
Vlnkonu minnar og bað
hcina að koma út í leiki og
Sagði henni að ég þyrfti að
Segja henni svolítið. Þegar
^ún kom út sagði ég henni
hvað ég hefði séð heima og
það sem mamma sagði
rner. Við löbbuðum niður
, eftlr götunni til krakkanna.
Pegar við komum þangað
s°gðu krakkarnir okkur að
Snúa aftur við og þá sáum
v*ð strákana á hjólunum og
Var fremstur. Þeir stopp-
uðu hjá okkur og fóru af
J'ólunum. Ég fór að tala
Vlð S og vin hans, en vin-
kona mín fór að tala við vin
sinn. Hann sagði henm að
öllum fyndist ég vera sæt.
Hún sagði mér þetta og þá
roðnaði ég en lét sem ekk-
ert væri og hélt áfram að
tala við S.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna,
7595-3917.
Þú skalt fara varlega
gagnvart vinum þínum,
ekki láta hafa þig út í
neina vitleysu og treysta
varlega fagurgala. Hætt er
við að þeir sem hrósa þér í
draumi séu falskir. Þú mátt
eiga von á skömmum en ef
þú tekur þessari viðvörun
máttu búast við að betur
gangi en á horfist og aðrir
reynist þér vinir í raun.
Þjófur og
bóndabær
Kæri draumráðandil
Þetta byrjaði með því að
ég var inni í stóru húsi sem
ég átti sjálf og var að tala
við strák sem ég þekkti
ekki, hann var dökkhærður
með liðað hár og sítt heim
að eyrum og hár. Við
vorum að tala saman í
traktor sem var inni í hús-
inu. Mér fannst ég kannast
við hann. Svo kom gestur
sem ég kannaðist ekki við
en mér fannst hún leiðin-
leg. Þegar ég var að kveðja
hana kom maður sem ég
þekkti ekki. Hann vildi fá
að tala við mig, mér sýndist
hann vera sölumaður. Eg
bauð honum inn í eldhús
meðan ég var að kveðja
konuna og þegar ég kom
aftur inn í eldhús voru allir
skápar opnir og ekkert inni
í þeim. Þá fattaði ég að
hann var þjófur svo ég
hljóp inn í forstofu og
ætlaði í skó en fann enga,
hljóp þá niður á tröppur á
ullarsokkum og elti þjóf-
inn. Hann fór inn í litla
búð en er hann sá mig þar
inni fór hann aftur út úr
búðinni og ég á eftir
honum. En ég sá að ég
myndi ekki ná honum. Þá
fór ég að svífa í loftinu en
notaði sundtökin. Eg var
um 1 metra frá jörðu, ég
var að fara yfir malarveg og
allt í kringum hann var
gras. Eg var að fara upp
brekku og ég var alveg að
ná þjófnum en þegar ég
leit upp í brekkuna sá ég
bóndabæ, það voru mörg
hús þar.
Eg vona að þú getir ráðið
drauminn.
Margt í þessum draumi
bendir til að eitthvað sé
mikið að brjótast í þér og
þú sért annaðhvort að gera
upp við þig hvort þú eigir
að taka þátt í áhættusömu
fyrirtæki eða gera eitthvað
óvenjulegt. Draumurinn
endurspeglar áhyggjur en
sé hann talinn tákndraum-
ur er hann fremur jákvæð-
ur.
Trúlofunar-
hringur
Kæri draumráðandi.
Stuttu eftir páska
dreymdi mig draum sem
mig langar að vita hvað
táknar.
Draumurinn ersvona:
Eg sat á rúmi inni í ein-
hverju herbergi, það var
dálítið af fólki þar. Svo
kom maður inn í herberg-
ið. Hann settist hjá mér og
gaf mér páskaegg. Það var
rós á egginu. Hann tók
pakka úr vasanum og
opnaði hann. í pakkanum
var gylltur trúlofunarhring-
ur. Hann lét hringinn á
vinstra baugfingur en þá
hrökk ég upp og glaðvakn-
aði. Mig hefur dreyrnt
drauminn tvisvar stðan. Eg
þekki manninn í draumn-
um, hef verið með honum
og er hrifin af honum. Mig
langar að vita hvað
draumurinn táknar. Viltu
vera svo elskulegur að birta
þetta bréf?
Ein þungt hugsi.
Það er gott að geta sagt
við þig að þessi draumur er
fyrir öllu góðu í ástum, að
þú munir eiga þann sem
þú elskar og verða láns-
manneskja í ástum. Hvort
draumurinn varðar mann-
inn sem fram kemur í
honum er ekkert hægt að
segja afdráttarlaust um, þó
er það fremur líklegt. Það
getur varla liðið langt þar
til dregur til tíðinda.
Það er mjög ólíklegt, en
þó rétt hugsanlegt, að
svona draumar byggist á
óskhyggju dreymanda.
Draumráðanda finnst skylt
að geta þess en hefur þá
skoðun sjálfur að hér sé um
tákndraum að ræða, og þá
er merkingin sú sem að
ofan greinir, ekkert nema
ástarsæla.
30. tbl. Víkan 51