Vikan - 04.07.1985, Síða 27
V.
Osk skáti át slátrið með gát.
Hún vildi ekki rúsínurnar, veiddi
þær úr og stakk beim í vasann
sinn. Mamma hennar skildi
slátursneiðina og ákvað að gera
aldrei aftur rúsínuslátur. Annars
var Osk að hugsa um veturinn
sem vofði yfir. Hann minnti á allt
sem byrjaði á kái: kulda, kvef,
kvíða og kennslu. Og á nýja
kennarann. Henni fannst hann
vera undarlegur, hann virtist ósof-
inn á morgnana. Hvað var hann
eiginlega aö bauka allar nætur?
Osk hafði tekið eftir logandi ljósi
hjá honum um hánótt. Ætti hún að
kanna málið betur? Hún hafði
lesið allar bækurnar eftir Enid
Blyton og spennan í brjósti hennar
var eins og á blaðsíðu 100 í Dular-
fullu ævintýrabókunum fimm. Ein
sín liðs, Snatalaus og með engan
kíki ákvaö hún að láta til skarar
skríða.
Klukkan hálftvö um nóttina
læddist hún út og hélt í humáttina
að Bjálkanum. Þar logaði dauft
ljós í svefnherberginu. Osk fór
eins nálægt húsinu og hún þorði;
þá fékk hún sting í hjartað: það
var einhver inni hjá kennaran-
um. Þessi maður stóð á miðju
gólfi og sneri baki að glugganum.
Kennarinn þrammaði hins vegar
um gólf og ávarpaði ókunna
manninn sem virtist svara fáu
heldur stóö hann teinréttur og
steinþagði. Allt í einu slökkti
Oscar kennari ljósið og allt varð
hljótt um leið. Osk varð dauð-
skelkuð og tók sprettinn heim.
Henni létti ekki fyrr en hún var
komin undir sæng og farið að
hlýna. Fötin lágu í hrúgu á gólfinu
— kramdar rúsínur í buxnavös-
unum.
VI.
Oscar kennari var farinn að
hafa áhyggjur af sjálfum sér.
Kennslan gekk að vísu þokkalega
en hann þoldi illa einveruna í
Bjálkanum. Hann rifjaði upp að
enginn annar en hann hafði stigið
fæti þangað inn síðan formaðurinn
forðum. En eftir umgengninni að
dæma gat maður haldið að heill
karlakór hefði riðið bar húsum
dag og nótt. Brókum og bókum
hafði verið peðrað um allt. Hann
haföi ekki vaskað upp síðan í
nóvember og síðan í janúar haföi
hann keypt borðbúnað úr pappa og
plasti í Kaufffélaginu. Slík útgerð
hafði reyndar þekkst áður hjá
honum en hans eigið sálarástand
olli honum meiri áhyggjum.
Einveran hafði gert hann
þunglyndan, honum fannst vetur-
inn fergja sig niður og draga úr
sér allan mátt. Hann langaði að
gera uppreisn gegn myrkra-
völdunum svo þessi dimmi vetur
myndi skilja eftir sig einhverja
ljósa punkta í vor. Hann vildi
hvorki samflot né samvinnu með
þessum vetri, ekki skíðaferðir
ellegar skauta — heldur eitthvað
meira krassandi, eitthvað
leyndardómsfullt, kannski ólög-
legt? Á hlaupársdaginn hringdi
síminn eins og kallaður. Það var
fermingarbróðir hans sem hann
hafði ekki séð síðan þeir fóru úr
kyrtlunum fyrir 15 árum.
— Ég var að frétta að þú værir
búinn að höndla óskasteininn.
— Huh, það er víst.
— Og hvernig kanntu við þig?
— Bara vel.
— Er mikill snjór?
— Svona soldið.
— Ertu ekkert á skíðum?
— Nei, þaö er nú lítið.
Oscar kennari skildi ekkert í því
af hverju þessi maöur væri að
hringja í sig. Loksins eftir fjögur
viðtalsbil komst hann að efninu.
— Heyrðu, mér datt í hug að
hringja í þig af sérstöku tilefni. . .
VII.
Undir vor sást Oscar kennari
venja komur sínar niður að höfn.
Grásleppukarlamir voru í óðaönn
að gera klárt og Oscar spurði þá í
þaula um landið og miðin. Þeim
þótti þetta einkennilegt. Maðurinn
haföi varla yrt á mann allan
veturinn en nú spurði hann
fjörunum úr. Var hann fréttaritari
eða hvað? Hann spurði hverjir
ætluðu að gera út á grásleppu um
vorið, hvenær þeir byrjuðu og
hvað þeir færu langt. Síðan tók
hann að færa sig upp á skaftið og
spurði hvort mögulegt væri að fá
leigöan bát til að gera út. Þeir
spurðu hvort hann kynni eitthvað
til verka. Maður lærir þaö eða
þarf maður að hafa einhvern sér-
stakan rauðmagaverk? sagöi
Oscar og endurtók spuminguna.
Það kom upp úr dúmum að einn
grásleppukarlinn, Hrognkell að
nafni, var tilbúinn að leigja Oscari
bátinn sinn. Kennarinn hófst strax
handa að gera bátinn sjókláran
enda stuttur tími til stefnu. Þorps-
búar glottu flestir út í annað þegar
fréttist að kennarinn yrði út-
gerðarmaður með vorinu. Þeir
voru farnir að hlakka til að sjá afl-
ann hjá kennarablókinni. Kennar-
inn var reyndar sjálfur farinn að
hlakka til að sjá þann afla sem
hann var að fiska eftir. En sá afli
yrði ekki borinn á torg í þessu
torglausa krummaskuöi.
VIII.
Osk fylgdist álengdar með bauki
kennarans í kringum bátinn sinn.
Faðir hennar var líka aö fara á
grásleppu svo hún hafði tylli-
ástæðu til að snudda niöri við
höfnina og fylgjast með kennar-
anum. Hann virtist iða allur í
skinninu eftir því að komast af
stað. I fyrstu skiptin fékk hann
hvorki haus né sporð en hann
virtist kæra sig sköllóttan. Hinir
fengu heldur ekki neitt og grá-
slepptu sér alveg í bölvi og ragni.
Eitthvað fannst Osk bogið við
útgerðina kennarans. Hún tók
eftir því að hann reri stundum á
önnur miö en hinir en hafði samt
ekkert upp úr því. Það kastaði þó
fyrst tólfunum þegar hún veitti því
eftirtekt að Oscar reri stundum að
næturlagi og virtist hringsóla á
svipuöum slóðum. Öllum sem sáu
til kennarans þótti þetta furðulegt
uppátæki en enginn var jafnstór-
furðulostinn og Osk. Hún vissi að
kennarinn haföi engin net þar sem
hann var að dóla sér um nætur.
Hvert var hann að seila? Hún vildi
kanna málið en það var hægara
sagten gert.
IX.
— Hvernig gengur? spuröi
Kyrtilinn.
— Mér gengur bara ekkert að
finna þetta.
— Ertu ekki ábyggilega á rétt-
um stað?
— Jú, þaö held ég örugglega.
— Hefurðuekkiséðbaujuna?
— Nei, ekkienn.
— Ertu ekki örugglega á réttum
stað?
— Jú, það held ég ábyggilega.
Kyrtillinn hringdi daglega en
þaðgagnaðilítið.
— Þú verður aö finna þetta,
maður, þú ert búinn aö fá borgað
fyrir þetta og allt.
— Já, þaö er satt.
— Þú verður bara að finna
þetta í nótt.
— Já, ég reyni það.
— Ég hringi í þig snemma í
fyrramálið.
— Okei.
Leitið og þér munuð finna, hugs-
aöi Oscar á meðan hann var að
troða sér í sjóstígvélin sín.
Tuttugu mínútum síðar var
hann búinn að setja bátinn í gang
og sigldi út úr höfninni.
X.
Ekki vissi hann um laumufar-
þegann sem kúrði undir þiljum.
Ösk hafði farið að heiman eftir
veðurfréttirnar klukkan 22.20 og
ranglað niður að höfn. Þriggja
vikna skammtur af forvitni knúði
hana til að læðast um borð í bát-
inn. Tíu mínútum síðar var hann
búinn að setja í gang og sigldi út
úr höfninni. Nú reiö á að láta hann
ekki finna sig og vera vel með á
nótunum. Hún heyrði að kennar-
ínn söng fyrir munni sér:
Holt ygglir greyiö sig
bjórsjónum á.
Hvað hafði bjórinn meö þetta
mál að gera? hugsaöi Osk. Hún fór
að setja þessi orð í samband viö
flestar íslenskar barnabækur sem
hún hafði lesið en þær fjölluðu
yfirleitt um það dularfulla fyrir-
bæri SMYGL.
Nú sló kennarinn af ferðinni og
hún heyrði betur í honum:
— Nei, þarna er baujan, maöur
— og allt góssið orðiö blautt eöa
hvað? Það er best að kíkja á þetta
— nei, þetta er líklega allt í lagi —
allt efnið efnilegt, maður minn.
Nú heyrði Ösk aö kennarinn
setti á fulla ferð og hann söng:
Góður dráttur, ég er sáttur,
beint í háttinn held ég.
Osk botnaði ekkert í þessu.
Hvað hafði hann veriö aö meina:
efnið efnilegt? Hún hafði að vísu
heyrt um sniff og kókaín í barna-
tímanum en hér var eitthvaö enn
skuggalegra á ferðinni.
Ösk heyrði að þau voru komin
að landi og kennarinn var að binda
bátinn. Þegar hún var viss um að
Oscar var horfinn úr augsýn stökk
hún í land og tók sprettinn heim.
Hjartað sló í takt við bátsvélina
sem lögst var til hvílu á sínum
staðvið bryggjuna.
XI.
Daginn eftir var síðasti skóla-
dagur og allir í besta skapi í
skólanum. Ef grannt var skoöað
voru þó tveir sem skáru sig úr
fjöldanum. Það voru kennarinn og
laumufarþeginn hans frá því um
nóttina. Þau voru bæði með úfið
hárið, rauðeygð og lófageispuðu
hvað eftir annaö. Oscar fann
hvernig þreytuleg augun í Osk
hvíldu á honum en hann var
orðinn því alvanur eftir veturinn.
Það var ekki þar með sagt að hann
væri sáttur við þetta þráláta
augnaráð. Honum haföi alltaf
fundist það þrúgandi líkt og snjór-
inn. Hann langaði til að svara
þessu augnaráði — nú var síðasta
tækifærið til að stinga þessa stelpu
á hol með augunum.
Hann leit upp leiftursnöggt —
augu þeirra mættust eitt andar-
tak. Osk leit undan og glúpnaöi í
sætinu sínu.
— Hvenær feröu suður? heyrði
hún að einhver spuröi kennarann.
— Með fyrstu ferð aö sjálf-
sögðu.
Meö fyrstu ferð, ég verð að láta
til óskarar skríða, hugsaði Osk.
27. tbl. Vikan 27