Vikan - 06.02.1986, Side 17
vera einhver erfiðasta og leiðinlegasta vinna sem til
er og ég get ekki imyndað mér þann sérvitring sem
vildi skipta við mig. Þetta er skemmtilegt þegar vel
gengur en um leið voðalega leiðinlegt þegar illa
gengur. Og yfirlega yfir texta getur verið hreinasta
plága. Það er hægt að fá heilmikið út úr því að
strika út en þegar maður er að velta einhverju fyrir
sér i hundraðasta sinn getur maður orðið vitlaus.
Ég sé mikla framför og timasparnað i tölvunum
hvað þetta snertir og er alveg ákveðin i að fá mér
eina eins fljótt og ég get. Kollegi minn einn ráð-
lagði mér að fá mér mann sem vélritaði fyrir mig.
En ég held ég fái mér frekar tölvu. Nei, ég get ekki
bæði verið rithöfundur og um leið i baslinu. Ég er
liklega eins og Ford, fyrrverandi Bandaríkjaforseti.
Það var sagt að hann gæti ekki gengið og tuggið
tyggigúmmí um leið. Ég hef prófað að vera að
vinna í ýmsu meðfram ritstörfunum en siðan
1980 hafa þau verið mitt aðalstarf. Ég finn stund-
um að ég hef þrátt fyrir allt ýmis sérréttindi og að
ég ræð miklu meira um eigið lif en margir gera en
það er fullt af fólki sem gæti haft það svona, það
bara gerir það ekki. Mér fannst til dæmis mjög
gott þegar stelpan mín var lítil að fá að hugsa ein-
göngu um hana og ekkert annað og mér finnst líka
rnjög gott núna að geta verið á staðnum fyrir hana
en þetta eru lika sérréttindi hér á landi. Ég skamm-
ast mín nú hreinlega þegar ég hugsa um hvernig
sumar einstæðar mæður hafa það. En i sambandi
við starfið þá finnst mér það sama og Halldóri
Laxness, að þetta starf sé aðallega fyrir masokista.
Nei, það er heilmikið óöryggi að vera einn og ekki
með fastar tekjur. En um leið get ég leyft mér að
vera dálitið undarleg i háttum eins og að vinna þeg-
ar mér sýnist og að sofa hjá handritunum minum.
Eitur að vera kvenmaður í
sviðsljósi
— Eru það kannski áhrif frá Dublinarárunum
sem gera það að þú kýst að vera ein?
,,Nei, og ég kýs það ekkert endilega. Ég bjó með
yndislegum manni i sex ár og það hafa nú verið
gerðar tilraunir siðan sem að visu sumar hafa end-
að með brotlendingum. En það þýðir ekki að væla
yfir þvi, maður tekur vissa áhættu þegar maður
hellir sér út i samband með annarri manneskju. En
það er hins vegar staðreynd að þetta starf gerir
manni dálítið erfitt fyrir i einkalifinu þótt mér finnist
að það ætti ekki að gera það. Ég held að það sé
einfaldlega vegna þess hversu frábrugðið það er
flestu þvi sem fólk er að sýsla. Nú, að vera kven-
maður i sviðsljósinu er alveg eitur. Strákum finnst
þetta svolitið skemmtilegt til að byrja með en svo
bara þola þeir þetta ekki margir, þvi miður."
Maður á að halda sig meira
á mottunni
— Einu sinni byrjaði gagnrýni, sem þú varst
heldur óhress með, á því að Steinunn væri alltaf
létt og indæl og einhvern tima var skrifað um þig
að þú værir sætasti kvenrithöfundurinn okkar.
,,Sko, karlmaður sem skrifaði svona um karlrit-
höfund yrði nú bara stimplaður öfugur með það
sama og ég vil nú meina að ég hafi samkeppni
hvað fegurðina varðar. Það sem mér finnst skipta
máli er hvort svona lagað kemur fram i viðtali eða
ritdómi. Það getur verið gaman að lesa svona um
sig i viðtali því maður er nú hégómlegur og það er
alltaf gaman ef einhverjum finnst litandi á mann,
en i ritdómi koma svona hlutir málinu bara ekkert
við. Það er aftur staðreynd að kvenmenn eru alltaf i
meiri vandræðum með að vera teknir alvarlega. Ég
hugsa reyndar ekki mikið um þessi mál og er alls
ekkert meðvituð um mig sem kvenrithöfund en
mér finnast dómar um kvenrithöfunda oft óballans-
eraðri en dómar um karlrithöfunda. Ég held til
dæmis að ef strákur hefði skrifað þetta jólaleikrit
mitt þá hefði fólk kannski ekki spekúlerað i ýmsum
hlutum þar. Maður á að halda sig meira á mott-
unni. Nei, ég geri mér alveg grein fyrir því að það
eru karlmenn sem hafa búið til þessa bókmennta-
hefð og ég geng inn i karlahefðina og ætla mér
ekkert að reyna að búa til neina nýja hefð, en ég er
ekki sá asni að ég sjái ekki að kvenfólk fer einhvern
veginn svo miklu oftar verr út úr lifinu en karlmenn.
Við sjáum bara þessi sambönd þar sem karlinn er
að skilja við konuna þegar hún er orðin dálítið öldr-
uð. Nei, þá má jafnvel finna réttlæti hjá kaþólsku
kirkjunni sem bannar hjónaskilnaði."
Líður ofsalega vel þegar ég
er búin að berja saman það
sem ég held að sé svolítið
gbtt Ijóð
— Þótt sögurnar þinar og leikrit fjalli sameigin-
lega um fólk þá er eins og þú komir alltaf á óvart
með hverju nýju verki.
,,Það er ekki stefna hjá mér en hins vegar veit ég
að það sem ég hef látið frá mér er innbyrðis mjög
ólikt. Ég held að það sé varla hægt að hugsa sér
ólíkari sjónvarpsleikrit en Líkamlegt samband í
norðurbænum og svo Bleikar slaufur."
— Og svo semurðu rómantisk Ijóð?
,,Já, ég tala nú ekki um. Þau eru lika allt frá smá-
myndum, tveimur til þremur línum, og allt upp i
heilarfrásögur."
— Þú ert mjög rómantisk?
,,Já, guð minn góður, en ég get lika verið eitt-
hvaðalltannað."
— Finnst þér neikvætt ef fólk getur sagt um verk
frá þér: Þetta er Steinunn?
,,Eg er ánægð ef ég hef afmörkuð höfundarein-
kenni. Eg byrjaði i Ijóðunum, fór siðan út i að skrifa
leikrit sem ég birti nú aldrei, svo komu smásögurn-
ar og sjónvarpsleikritin og ég ætti nú fyrir alvöru að
koma á óvart með næsta verki," segir Steinunn og
er þar með komin að þessari sígildu spurningu: Að
hverju ertu að vinna núna?
,,Ég hef eiginlega í sex ár verið að glima við
skáldsögu. Það er nú kannski svolítið frjálslega
með farið að kalla þetta skáldsögu, og þó, en ég er
þarna með dálitið af Ijóðum og eins sendibréf og
ýmsar hugleiðingar. Þetta verkefni hefur reynst
mér alveg óskaplega erfitt. Ég hef auðvitað gert
margt i millitíðinni en ástæðan fyrir því að bókin er
ekki komin út er sú að hún hefur bara ekki verið til-
búin. Ég hef oft verið komin að þvi að gefast upp
og jafnoft bölvað henni i sand og ösku en nú held
ég að ég sé að verða búin að berja blessaða bókina
saman. En þetta er sem sagt fyrsta skáldsagan
mín. Það er auðvitað auðveldara að halda sig við
eitthvert ákveðið form en um leið gefur það visst
frelsi að fara úr einu formi yfir i annað. Mér finnst
samt alltaf á vissan hátt mest gaman að skrifa Ijóð.
Ljóð er lika afmarkað, þú hefur betra vald yfir einu
Ijóði en yfir kannski tvö hundruð blaðsíðna bók.
Mér liður alveg ofsalega vel þegar ég hef barið
saman það sem ég held að sé vel heppnað Ijóð."
Steinunn blaðar í bók og sýnir mér ýmsar útgáf-
ur af Ijóði sem ber nafnið Vor dans. Allar út-
gáfurnar eru dagsverk, byrjað á morgni og endað
að kvöldi. — Kannski samið eftir 68-kynslóðarball-
ið?
,,Nei, nei," segir Steinunn, ,,og ég get meira að
segja sannað það vegna þess að ég las það upp
opinberlega siðastliðið vor."
1970 var Steinunn fréttamaður útvarpsins í
sumarfrii frá Dublin og vann á fréttastofu af og til
til 1980. Hún var einnig fréttaritari útvarpsins þau
tvö ár sem hún bjó i Sviþjóð, frá 1980 til 1982. Hún
á.að baki nokkra viðtalsþætti í sjónvarpi.
— Ertu búin að segja skilið við fréttamanninn
sem er i simaskrá síðasta árs?
,,Já, fréttamanninn er ég búin að segja skilið við
en ég tek nú viðtal við og við og þá kannski helpt til
að drýgja tekjur rithöfundarins. En nú einbeiti ég
mér að ritstörfunum."
— Og sex ára skáldverkið fáum við þá í næsta
jólabókaf lóði?
,,Já, tvær af bókum minum hafa komið út að
vori svo mér finnst ég vera búin að gera skyldu
mina hvað það varðar að brjótast gegn þessum
markaðslögmálum i bóksölu á islandi. Ég var að
visu ánægð með útkomu þessara bóka en veit að
þær hefðu selst betur ef þær hefðu komið út fyrir
jól. En nú ætla ég að beygja mig undir markaðslög-
málin."
— Og efnið?
,,Þetta er ódulbúin ástarsaga, hún var að visu
með alls kyns atriðum sem ekki komu beint ástar-
sögu við en nú er ég næstum búin að skafa það
utan af svo þetta er bara ástarsaga og eiginlega
ekkert annað."
. . . eitthvað af sjálfri þér í persónunum?
.....ég held að flestir sem þekkja mig sjái að
þetta getur ekki verið ég en hitt er svo annað mál
að ég gæti ekki hafa skrifað þessa bók ef ég hefði
aldrei orðið ástfangin og þetta er bók sem ég held
að aðeins kvenmaður gæti skrifað."
Vikan 6. tbl. 17