Vikan - 15.05.1986, Síða 28
V2W
KARTÖFLU-
KJÖTHÁLFMÁNAR
Kartöflukaka:
1 bolli kartöflumús
14 bolli smjör
1 /i bolli hveiti
Kartöflumús sett í pott og smjöri
bætt í. Þá er hveitið sett út í smátt
og smátt og þeytt þar til deigið
verður stíft og slétt. Látið bíða í
30 mínútur.
FYLLING:
300 g hakk, brúnað
/i bolli laukur, saxaður
1 bolli kartöflur, hráar og skornar
í teninga
2 stk. egg, harðsoðin og söxuð
/i bolli kotasæla
2 tsk. salt
Kartöfluteningar soðnir þar til
þeir byrja að mýkjast. Vatninu
hellt af og öllu öðru blandað sam-
an við.
Deiginu skipt í 4 kúlur. Hver
kúla flött út þar til hún er ca /i
cm þykk. Fyllingunni skipt í 4
hluta og 1 hluti látinn á hvern
deighluta sem síðan er brotinn til
helminga þannig að hálfmáni
myndast. Köntunum þrýst vel
saman. Bakað í 30-35 mínútur við
180°. Tómatsósa höfð með ef vill.
SVEITAEGGJAKAKA
8 sneiðar beikon, sneitt
/i bolli græn paprika, sneidd
1 /i bolli kartöflur, soðnar, skorn-
ar í teninga
/i bolli laukur, rifinn
/i tsk. salt
14 tsk. pipar
6 egg
14 bolli rjómi
14 bolli mjólk
paprika
Beikon steikt á pönnu þar til það
er stökkt. Tekið af pönnunni og
allri fitu hellt nema 3 msk. Síðan
eru laukur og paprika steikt í 5
mínútur, kartöflum bætt út í og
brúnað þar til þær hafa fengið
örlítinn lit, hrært af og til. Bragð-
bætt með salti og pipar.
Eggjum, rjóma og mjólk hrært
vel saman og hellt varlega yfir
grænmetið á pönnunni. Hitað við
lágan hita - hrært varlega í - þar
til eggin eru hlaupin en eru enn
blaut. Papriku stráð yfir og
steiktu beikoni ef vill. Borið fram
strax.
KARTÖFLUPÖNNUKÖKUR
5 msk. hveiti
700 g kartöflur, flysjaðar
1 lítill laukur, rifinn
1 egg
1 tsk. salt
1/8 tsk. pipar
Hveiti sett í stóra skál. Kartöfl-
urnar raspaðar mjög fínt þar ofan
Öllu öðru blandað út í. Örlítil
ta sett á pönnu og hituð við
eðalhita. Þegar hún er vel heit
| ■ kúfuð matskeið af deiginu sett
H sinu á pönnuna og kakan steikt
ayj ir til hún verður stökk og gullin,
íúið við og steikt eins hinum
í egin. Sett á pappír sem sýgur í
fituna. Kartöflupönnukökurn-
eru borðaðar sem grænmeti
leð aðalrétti eða einar sér.
RTÖFLUGRATÍN
bollar kartöflur, hráar, flysjað-
sneiddar
bollar laukur, saxaður
sk. smjörlíki
bolli ostur, tilsitter, rifinn
sk. hveiti
||tsk. salt
jlpar á hnífsoddi
Jma bolli mjólk
sneiðar skinka, ef vill í striml-
fninn hitaður í 180°. Ofnfast
t smurt og í það raðað til skipt-
iskartöflum, lauk, (skinku), hveiti
og salti og piparblöndu stráð yfir
hvert lag, ásamt klípu af smjöri.
Mjólkin er hituð ásamt ostinum,
henni síðan hellt yfir kartöflu-
blönduna og paprikudufti stráð
yfir. Lok sett yfir og þetta er bak-
að í 45 mínútur, þá er lokið tekið
af og bakað í 15 mínútur í viðbót.
Og ef tíminn er naumur má
svindla dálítið:
KARTÖFLUGRATÍN í FLÝTI
Sjóðið saman 4 bolla af kartöflu-
teningum, 1 bolla af söxuðum
lauk, 2 tsk. salt, 14 bolla sjóðandi
vatn í lokuðum potti í 10 mínút-
ur. Lokið tekið af og látið malla
þar til nær allt vatn er horfið,
hrært af og til. Þá er bætt út í '4
bolla af hvoru, mjólk og rifnum
osti, og örlitlum pipar. Hitað.
(Nóg fyrir 5 6 manns.)
UMSJÚN BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR