Vikan - 11.06.1987, Side 14
Smásaga eftir Halla Teits
sjálfur í hlut. Hins vegar var það yndi
hans að leita uppi snögga bletti á öðrum
og núa salti í sárin.
Vegna þessarar áráttu Togga hlakkaði
nú í mörgum manninum sem hafði orð-
ið að þola kvikindislegar athugasemdir
hans þegar síst skyldi.
- Sá á nú eftir að fá á gumpinn af
þessu! rumdi í Pétri pakk sem hafði
æðioft orðið undir í viðureigninni við
Togga og hans menn í pólitíkinni. Pétur
hafði setið í hreppsnefndinni í mörg ár
en verið einangraður af mönnum Togga
og nánast alveg áhrifalaus. Þetta sveið
honum og var kalt til sveitarstjórans.
Magga Ármanns hafði unnið á skrif-
stofu kaupfélagsins alveg frá því hún
skildi við karlinn sinn, hann Bjarna
Sveins, bílstjóra á kaupfélagsbílnum.
Þau eignuðust tvö börn. pilt og stúlku,
og þegar búið var að ferma þau hafði
Magga skilið við hann rétt eins og ekk-
ert væri eðlilegra. Það hafði aldrei verið
upp á marga fiska, samkomulagið hjá
þeim, og ástin ekki verið fyrirferðarmik-
il. Okkur var öllum kunnugt um að hún
hafði ekki aldeilis verið við eina fjölina
felld í ástamálunum. Það hafði verið
heilmikið talað um Hallberg kennara
og hana fyrst eftir að hann kom í pláss-
ið til að endursmíða bryggjuna en það
hafði ekkert orðið úr því. Hallbergur
fékk augastað á Maríu hans Elíasar.
Hún var þá nokkru áður komin úr ljós-
móðurnámi í Reykjavík.
Málið var nú rætt frá öllum hliðum
og menn skiptust á ýmsum upplýsingum
og söfnuðu þeim í sameiginlegan sjóð.
Allt var tínt til sem að gagni kom við
að upplýsa málið.
Það kom í ljós að um ótvíræðan sam-
drátt hafði verið að ræða hjá þeim
Möggu og Togga. Það hafði víða og
oft sést til þeirra saman og bíllinn hans
hafði iðulega staðið framan við Ösp,
litla húsið hennar sem stóð ofarlega i
byggðinni. Þaðan var gott útsýni yfir
höfnina sem að sjálfsögðu var aðaíat-
hafnasvæði staðarins. Húsinu hafði hún
haldið eftir við skilnaðinn en Bjarni
flutti þá heim til foreldra sinna sem
bjuggu á Borg, ágælri jörð skammt aust-
an við þorpið. Hann hafði ekki kvænst
á ný og Magga ekki gifst aftur. En þrátt
fyrir þessar ökuferðir þeirra tveggja
hafði engan grunað hið minnsta. Það
virtist svo ofur eðlilegt að Toggi keyrði
hana heim og hún byði honum upp á
kaffi að enginn leiddi hugann að því að
þarna væri annað og meira á ferðinni
heldur en greiðasemi hjá Togga. Menn
sáu nú að slikt var auðvitað fásinna.
Toggi var enginn greiðamaður og aug-
ljóst hefði átt að vera að eitthvað byggi
þar undir.
Helst var hægt að segja að Steina í
Hlíð væri vinkona Möggu. Samt var það
svo að hún vissi mest lítið um samdrátt
á milli Möggu og Togga, þó var ekki
fyrir að synja að hana hefði grunað sitt
af hverju um tíma. Það var orðið æði-
langt síðan henni flaug í hug hvað Toggi
gerði sér dælt við Möggu og þá ekki
síður að hún skyldi líta við honum eða
yfirleitt fá sig til þess að láta hann keyra
sig svona oft heim úr vinnunni. En svo
hugsaði hún ekki meira um það - og
nú kom þetta i ljós! En hún sagði þetta
nú eftir á og þá sjálfsagt mest til að
sýnast.
Magga og Toggi létu eins og ekkert
hefði í skorist. Þau stunduðu dagleg
störf sín óbreytt í fasi og á allan máta
eðlileg. Þó var það svo að ýmislegt í
fari Möggu breyttist eftir því sem vik-
urnar liðu. Hún hafði einn daginn
brugðið sér austur á Núpsfjörð og kom-
ið til baka stuttklippt með ljósa lokka
í svörtu hárinu. Hún hafði líka keypl
sér nýjan fatnað; fallega rauða úlpu með
loðkraga og hettu og sitthvað fleira. Það
varð ekki annað sagt en Magga væri
glæsileg. Hún hafði frítt andlit, var
grönn og vel vaxin. En svo farið væri i
samanburð þá var Guðlaug líka mjög
myndarleg kona. Hún var kannski full-
holdskörp og hörkuleg á svip en hún
var ákaflega alúðleg og glaðvær þrátt
fyrir hægláta framkomu.
- Já, hún er svo sem engin herfa, hún
Guðlaug, þrumaði Jóna í Búð þegar hún
tiplaði inn á kaffistofuna i frystihúsinu
í morgunkaffið. Annars get ég ekki
skilið hvað hann Toggi svo sem sér við
hana Möggu í Ösp. Það er kannski
ekki ófrítt á henni fésið, en drottinn
minn, það er nú mikill mannamunur á
þeim tveim, henni Möggu og henni
Guðlaugu!
Sannarlega var þetla ævintýri hvalreki
á fjörur fólks í plássinu Annað eins eða
svipað hafði ekki gerst síðan Héðinn á
Oddsstöðum stökk af heimilinu frá
konu og tjórum börnum og fór alla leið
vestur á firði og tók saman við ein-
hverja stelpu, miklu yngri en hann var.
Hann hafði aldrei komið heim síðan og
ekki einu sinni frést af honum, hvað þá
meira, og það voru liðin sex ár. En henni
hafði samt farnast vel. konunni hans,
henni Guggu á Oddsstöðum, og hún
komist vel af með öll sín börn enda
voru þau sum orðin þroskaðir unglingar
og léttu mikið undir með henni.
Steina í Hlíð hafði mikinn áhuga á
því að komast að einhverju Heiru um
„kvennafarið hans Togga“, eins og farið
var að nefna þessa sambúð í þorpinu.
Hún dreif sig því einn daginn, skömmu
eftir að Toggi flutti til Möggu, á kaup-
félagsskrifstofuna til þess að hitta
Möggu. En Magga var siður en svo
skrafhreifin við hana, nálgaðist reyndar
að vera afundin. Þegar Steina hafði svo
orð á því að líta inn í kaffisopa heima
hjá Möggu fékk hún það svarað Magga
hefði í svo miklu að stússast þessa dag-
ana að það yrði víst að verða svolitil
bið á þvi. Og Steina fór og var heldur
óhress með heimsóknina.
Þau Magga og Toggi virtust una sér
vel í þessu nýstofnaða sambandi - hvað
átti svo sem að nefna það? Eftir því sem
dagarnir liðu og urðu að vikum straukst
hógværðin og leyndin af Möggu og í
staðinn rann á hana eins konar upp-
hafning og viss sigurvima að því er
virtist. Toggi, sem hafði mest llogið lágt
í byrjun, varð líka frjálsari í fasi og fór
aftur að venja komur sínar niður á
bryggjuna að spjalla við okkur sem
söfnuðumst þar saman.
Menn voru hálfvandræðalegir i l'yrsl-
unni en það rauk af þeim með timanum
og þá var farið að snerta á þessu máli,
ósköp varlega í fyrstunni en smám sam-
an færðist galsi í karlana og þeir létu
hill og þetta fjúka.
Toggi lók því furðanlega vel en kærði
sig samt augsýnilega ekki um það og
leiddi talið strax að einhverju öðru.
Auðvitað kom svo að því að Magga
í Ösp bauð Steinu í Hlíð að skreppa
með sér heim í kaffisopa. Toggi var
ekki heima enda upplýsli Magga að
hann hel'ði skroppið austurá Núpsfjörð
síðdegis einhverra erinda.
Magga varð skrafhreifin um sambúð-
ina og aðdraganda hennar. Hún sagði
Steinu frá því að Guðlaug hefði vitað
um samdráttinn milli þeirra Togga nær
alveg frá upphall en aldrei gefið honum
neitt í skyn um vitneskju sína fyrr en
eina nóltina þegar hann kom frá Möggu
14 VIKAN 24 TBL