Vikan - 24.09.1987, Qupperneq 30
annað fyrir stafni en umgangast stjörnuliðið
í New York.
Anna Erla vill ekki gera mikið úr því en
segir svo: „Ég hef kynnst frægum og skemmti-
legum persónum, Élizabeth Taylor, Richard
Burton, Jack Palace, sem er þekktur fyrir að
leika Drakúla, Vince Edward, ég var dálítinn
tíma að slá mér upp með honum. Svo hef ég
nokkrum sinnum verið með Jacqueline
Kennedy Onassis, hún er mjög indæl mann-
eskja en hlédræg, jafnvel svo að stundum
finnst manni hún næstum feimin. Elizabeth
Taylor er á hinn bóginn voðalega fjörug og
talar alveg óskaplega mikið. Á Miami kynnt-
ist ég líka Liberace heitnum, hann var ansi
skrautlegur en óskaplega indæll og skemmti-
legur. Nú, ég get nefnt Engelbert Humper-
dinck, Tom Jones og Söru Cougart og marga
fleiri."
- Þig hefur ekki langað til að verða stór-
stjarna sjálf?
Anna fer að hlæja þegar spurningin er bor-
in fram og segir: „Ég mátti ekki vera að því
að verða stórstjarna, ég var alltaf svo upptek-
in í skemmtanalifinu. Maður hafði engan tima
til að fara á fætur klukkan fimm á morgnana
til að fara í kvikmyndaverið. Almáttugur!“
Svo lítur hún á mig og segir: „Nei, ég held
annars að ég hafi aldrei velt því fyrir mér að
verða stjarna, ég hef verið ánægð með það
sem ég hef haft.
Sama ár og við Ross kynntumst keypti ég
lítinn poodle-hund og nefndi hann The Óðin
of Iceland. Mér þykir alveg óskaplega vænt
um hunda. Ég átti poodle-tík í Argentínu sem
ég kallaði Dillu eftir tík sem við áttum í Stapa-
seli en ég varð að skilja hana eftir í Argentínu,
ég fékk ekki leyfi til að taka hana með mér
inn til Bandaríkjanna. Óðinn of Iceland var
mjög þekktur meðal þeirra Islendinga sem
komu að heimsækja okkur hjónin. Það hefur
komið mikið af Islendingum að heimsækja
mig í Bandaríkjunum, ég á mjög auðvelt með
að kynnast fólki og hef mjög gaman af því
að fá gesti. Ég held að ég sé gestrisin í eðli
mínu. Ég fæ aldrei of marga gesti, sérstaklega
ekki íslendinga."
- Hvernig hefur sambandi þínu við ísland
verið háttað öll þessi ár sem þú hefur búið úti?
„Ég á mikið af skyldmennum hér á landi,
hér er öll fjölskylda mín fyrir utan móðursyst-
ur mína sem býr í Kanada. Þar á ég víst
stóran hóp af ættingjum en ég hef aldrei haft
neitt samband við þá.
Til íslands reyni ég alltaf að koma einu sinni
eða tvisvar á ári. Mér finnst það alveg nauð-
synlegt. Ég er voðalega mikill íslendingur í
mér, öll þessi ár hef ég til dæmis haldið íslensk-
um ríkisborgararétti; ég fæddist íslensk og
mun deyja íslensk.
Á meðan ég bjó í Argentínu gekk mér ágæt-
lega að halda tengslum við ísland þó að vík
væri milli vina. Égskrifaði heim, hringdi eða
sendi skeyti. Fáir íslendingar höfðu þó tæki-
færi til að heimsækja mig á þessum árum.
Friðrik Ólafsson skákmeistari kom þó til að
keppa í Argentínu. Ég hafði beðið bróður
minn um að láta mig vita þegar hann kæmi
svo ég gæti farið og tekið á móti honum á
flugvellinum. Ég bauð honum að vera gestur
Anna Erla og Gravinhorst skildu. Þá ákvað
hún að flytja um tíma til draumaborgarinnar,
Parísar, lagði þó lykkju á leið sína og ákvað
að koma við í New York og stoppa þar í
nokkra klukkutíma hjá vinkonu sinni. En
dvölin varð öllu lengri en til hafði verið ætlast
í byrjun.
„Ég flutti til New York og bjó þar ein í sex
ár svo þessi stutta dvöl teygðist og teygðist.
Ég fór að vinna í skartgripavgrslun og vann
þar í tæp þrjú ár. Þau ár, sem ég átti heima
í New York, bjó ég á East Side á Manhattan
sem er fyrir ofan Fimmtugasta stræti. Á sjö-
unda áratugnum mátti maður ekki búa neins
staðar annars staðar ef maður var einn en
vildi vera eitthvað - þá varð maður að búa á
East Side, þar bjó allt fina fólkið. Frægasti
næturklúbbur borgarinnar á þessum tíma var
E1 Morocco. Þar fór maður ekki inn nema
ganga inn um „the great grand entrance“.
Þar stoppaði maður svo til að sýna sjálfan
sig og sjá aðra.
Þegar ég flutti til New York naut ég þess
að hafa kynnst mörgum frægum og þekkti'm
persónum í Argentínu og fólki sem vann hja
Sameinuðu þjóðunum því ég hélt áfram kunn-
ingsskap við það fólk eftir að ég var flutt.“
- Einhver sagði mér að þú hefðir ekki haft
Anna Erla og Herman Pilnik.
30 VIKAN 39. TBL