Vikan - 24.09.1987, Síða 61
bótar. Kleópatra drottning í Egyptalandi sótti
í heilsulindir við Dauðahafið og hún notaði
leðjuna úr hafinu sem smyrsl til fegrunar.
Salómon konungur rómaði lækningamátt
heitu lindanna. Rómverjar byggðu baðhús við
heitu uppspretturnar s_em sögur fóru af og lifa
enn. Heilsusvæðin í ísrael eru tvö. Það er
annars vegar svæðið við Dauðahafið og hins
vegar við Galileuvatn. Áin Jórdan rennur á
milli þeirra. Dauðahafið er íjögur hundruð
metra undir sjávarmáli en Galileuvatn tvö
hundruð metra. Aðstæður þarna eru sérstak-
lega góðar fyrir sjúklinga sem hafa gikt eða
þjást af öndunar- og húðsjúkdómum.
Við Dáuðahafið var sem sagt hlustað á fyr-
irlestra um veðurfar á svæðinu, um geisla
sólarinnar sem þarna skín á réttláta sem rang-
láta með öðrum hætti en annars staðar á
jarðarkringlunni. í andrúmsloftinu er bróm
(bromine) sem blandast súrefninu og hefur
einkar góð og róandi áhrif á fólkið. Það voru
fyrirlestrar um baðlæknisfræði, gildi heita
vatnsins fyrir til dæmis giktarsjúklinga og
psoriasissjúklinga. Annar íslendingur var
samferðamaður minn og naut hann sjálfsagt
fyrirlestranna betur en ég enda maðurinn
læknir og sérfræðingur í giktarsjúkdómum.
Jón Þorsteinsson heitir hann.
Heimsóknir voru farnar á hótel við hafið,
fyrir giktarsjúklinga, og könnuð aðstaða
psoriasissjúklinga. Ferðast var til Arad sem
er í tuttugu og fimm kílómetra fjarlægð frá
Dauðahafinu en í sex hundruð og tuttugu
metra hæð. Arad er borg sem nú búa í um
fimmtán þúsund manns, hornsteinninn að
borginni var lagður árið 1962. í dag eru þarna
heilsugæslustöðvar fyrir fólk með astma og
lungnasjúkdóma. Loftslagið er milt í Arad en
borgin er reist norðaustur af Negeveyðimörk-
inni og á fjallstoppi.
Um leið og farið var til Arad var gengið á
Masada og borgarvirkið, sem Heródes
byggði, skoðað. Það var stórkostleg tilfinning
að standa uppi á Masada og virða fyrir sér
hin fornu mannvirki sem grafin hafa verið
upp. Það er auðvelt að setja sig í spor inn-
lendra og skilja hvers vegna þeir segja: Aldrei
aftur Masada. Einu sinni féll virkið í óvina-
hendur sem kunnugt er og því er þetta sagt.
Og vegna þess að hópurinn, sem tölt var
með í þennan leiðangur, var að kynna sér
aðstæður til heilsuræktar var mönnum bent á
baðhús Heródesar sem er að finna á Masada.
Þá var hugsað fyrir öllu eins og nú.
Samyrkjubúin eru sérfyrirbæri í ísraelsku
samfélagi. Eitt það elsta heitir Ein Gedi og
er við Dauðahafið. Þar er búið að reisa heilsu-
hótel og margur ferðalangurinn sækir betri
heilsu þangað. Einungis var grænmetisfæði
þar á boðstólum, innisundlaug og hafið salta
til að baða sig í og sólin. Það er einkennileg
tilfinning að leggjast til sunds í Dauðahafinu.
Vatnið er þykkt og ákaflega salt og sannar-
lega erfiður róður að synda í því. En þar
sekkur enginn.
Borgin Tiberias við Galileuvatn er þekkt
fyrir margt, meðal annars heitu lindirnar og
gömlu rómversku böðin. Þangað er mikill
ferðamannastraumur og eru heitu lindimar
og sundlaugamar með sinn lækningamátt
Tveir giktarlæknar, annar islenskur og hinn sænskur, ræða saman við fornar, rómverskar lindii
i Tiberias.
Hammat Gader við landamæri Jórdaniu. í síkjum eru krókódílar en á þessu samyrkjubúi eru
þeir ræktaðir. Þarna sést yfir til Jórdaníu.
39. TBL VIKAN 61