Vikan - 29.10.1987, Qupperneq 32
Naustið er / rauninni „nýr"
staíur fyrir tóik undir þrítugu
- segir unga fólkið sem tekið hefur við
rekstri elsta veitingahúss borgarinnar
Geirsbúð er glæsileg en um
leið hlýleg krá.
Allir innviðlr voru rifiiir út
og komu þá í ljós forláta
gluggar, þannig að nú er hægt
að sjá út á sjó og Esjuna.
Gamlir hlutir og
ljósakrónurnar fengust hjá
Friðu frænku, hinum megin
við götuna.
Ungt og harðduglegt fólk
hefúr teklð við rekstri elsta
veitingahúss borgarinnar,
Naustsins, og ætla sér að
gera það aftur að vinsælasta
veitingastaðnum. Þau hafa
breytt staðnum örlitið, en
gamlir fastakúnnar myndu
þekkja sig þar samstundls,
því þetta unga fólk ber mlkla
virðingu fyrir gömlum og
sögulegum innviðum húss-
ins og ekkert sem skiptir
máli hefúr verið fjarlægt -
mesta lagi fært úr stað.
Þetta unga fólk þekkja margir
því þau hafa verið viðloðandi
veitingahús í mörg ár og öðiast
þar ómetanlega reynslu sem
þau ætla að nýta sér nú. Hjónin
Kristjönu Geirsdóttur og Svein
Hjörieifsson, Jönu og Svenna,
þekkja menn t.d. úr Broadway,
þar sem Jana var veitingastjóri
og Sveinn var lengi yfirþjónn í
Hollywood og síðan „svissuðu"
þau hjónin vinnustöðunum og
Svenni varð veitingastjóri í
Broadway og Jana í Hollywood.
Sturla Pétursson er einnig þjónn
og þeir Svenni byrjuðu að vinna
saman á Grillinu á Sögu fyrir
tæpum 14 árum. „Ég kenndi
honum allt sem hann kann,“
segir Sturla um Svenna, sem
hann vill nú ekki alveg viður-
kenna en aftur á móti hafa þeir
starfað saman meira og minna
þessi 14 ár en síðast starfaði
Sturla á Þórscafé. Það er því
óhætt að segja að Naustið sé nú
komið í samhentar hendur.
Rúmlega 100 ára
gamalt fiskhús
Laugardaginn 6. nóvember
1954, nokkrum mínútum fyrir
klukkan fjögur, löbbuðu síðustu
iðnaðarmennirnir út úr 100 ára
gömlu fiskhúsi, sem þeir höfðu
lokið við að breyta t fádæma
glæsilegan veitingastað sem
Naust átti að heita. Allir innviðir
gamla fiskhússins voru rifiiir
niður og nýjar innréttingar
smíðaðar eftir teikningum
Sveins Kjarvals arkitekts, sem
einnig sá um að skreyta staðinn.
Þetta eru innréttingarnar sem
enn eru í Naustinu og í fullu
gildi og meira en það, enda
segja iðnaðarmenn nú að það sé
varla þann mann að finna sem
myndi leggja í svona mikla
vinnu eins og viðhöfð var við
32 VIKAN