Vikan - 29.10.1987, Side 50
Keflavíkur- I Er óhætt ai opna
flugvelli: I ■ m %
Idyrffynr
I íslenskri konu?
„Hefur einhver vkkar heyrt
um alla kommana sem bíða
vígreifir fyrir utan hllðið?"
Einstaka hermaður brosti
vandræðalega og nokkrir
hreyfðu sig órólega í sæt-
unum. Ræðumaður glotti
kankvíslega. „Ég safna nefiii-
lega svona tröllasögum um
ísland," sagði hann. „Þið
þurfið hins vegar ekkert að
óttast. Ykkur er alveg óhætt
að ferðast utan vallar. Það er
engin hætta á að þið verðið
fyrir óþægindum ef þið eruð
ekki sjálf með dónaskap eða
derring. Sögur um Kanahat-
ur og hættulega kommún-
ista á íslandi eru stórlega
ýktar, en íslendingar eiga al-
mennt erfitt með að sætta sig
við að þörf sé á erlendu her-
liði í landinu þeirra, svo það
getur verið að þeir sýni ykk-
ur ákveðið fálæti í umgengni
án þess að nokkur andúð
liggi að baki. íslendingar eru
líka einfaldlega töluvert
feimnir í samskiptum við út-
lendinga."
Friðþór Kr. Eydal, blaðafull-
trúi varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli, hefur orðið. Eitt af
vikulegum hlutverkum hans er
að ffæða nýliða á vellinum um
ísland og sögulegar forsendur
þess að bandarískt herlið hefur
aðsetur á íslensku landsvæði.
Varnarliðið endurnýjar hluta af
mannafla sínum í hverri einustu
viku og eru nýliðarnir oft á milli
35 til 70 manns, sem eru lang-
flestir að koma til þessa fram-
andi lands í fýrsta sinn.
5 milljóna útlendur
her í nágrenni
Washington DC?
Friðþór talar enga tæpitungu
við nýliðana þegar hann gerir
þeim grein fyrir forsendum
veru þeirra á íslandi.
Sjóliði rétti upp hönd og
spurði hvort það væri ekki
ákveðið vanþakídæti ef íslend-
ingar þæðu hervernd af Banda-
ríkjunum og væru svo jafhvel
lítt hrifnir af verndurunum.
„íslendingar hafa í raun aldrei
beðið um amerískt herlið til
landsins og ef einhver hefur tal-
ið ykkur trú um að þið hafið
verið beðnir um að koma hing-
að til að vernda íslendinga gegn
„the big bad Russians", stóru
vondu Rússunum, þá hefur við-
komandi einfaldlega ekki sagt
ykkur satt.
Það voru löndin sem stóðu að
baki stofriun NATO 1949 sem
lögðu mikinn þrýsting á ísland a
vera með og Islendingar féllust
á það gegn því að ekkert herlið
væri í landinu á friðartímum.
Síðar féllust íslensk stjórnvöld á,
með ströngum skilyrðum, að
hafa amerískt herlið í landinu.
Varnarliðið gætir hernaðar-
legs öryggis íslands, en það
voru fyrst og fremst hernaðar-
legir hagsmunir Bandaríkjanna,
sem voru hafðir að leiðarljósi,
þegar Bandaríkin fengu hernað-
araðstöðu á Grænlandi og ís-
landi. Flestir fslendingar líta á
veru ykkar hér sem illa nauðsyn,
en reynið fyrir alla muni ekki að
telja þeim trú um í samtölum að
þeir eigi að vera ykkur þakklátir.
Það eruð þið sjálf sem eigið að
sýna þakklæti, ef eitthvað er.“
Áheyrendur kinkuðu kolli
með skilningssvip þegar blaða-
fulltrúinn lagði fyrir þá dæmi
sem útskýrði meir en mörg orð:
„Hvernig þætti ykkur til dæmis,
ef herstöð með fimm milljón-
um útlendra hermanna væri
á Dulles flugvelli í nágrenni
Washington DC? Stærðarhlut-
föllin eru þau sömu. Ætli Amerí-
könum þætti það ekki dálítið
óþægilegt?" sagði Friðþór.
íslendingar
þróuð þjóð
Á samræðum Friðþórs við
nýliðana mátti heyra að íslenskt
þjóðfélag var þeim algjörlega
framandi. „íslendingar eru mikl-
ir einstaklingshyggjumenn en
þeir hafa samt háþróað félags-
legt samstarf, sem er ykkur að
mörgu leyti framandi. Heil-
brigðisþjónusta og menntun
eru til dæmis kostuð af sameig-
inlegum sjóðum landsmanna og
ég hygg að það séu fáir íslend-
ingar það öðruvísi.
Almennt hegðunarmynstur
íslendinga er líka oft öðruvísi en
Friðþór reynir að útskýra íslenskt nafnakerfi: ,„\Ida
og Gunnar eru bömjóns Gunnarssonar, sem hann á
með Helgu Ragnarsdóttur. Ef þið hafið áhuga á að
hafa samband við soninn eða dótturina þá er vissara
að fá símanúmerið þeirra á fyrsta stefnumótinu, ann-
ars er hætta á að þið finnið þau aldrei aftur.“
„Það er nú allt ffekar nepjulegt héma.“
Bandarískir sjóliðar horfa yfir nýjar
heimastöðvar.
50 VIKAN