Vikan - 26.05.1988, Síða 31
Ég hef alltaf verið mikill dýravinur, átti hamstra og páfagauk og ætla að fá mér hund....“
„Mér finnst ég eiga gott að vera heilbrigður og finnast gaman
í vinnunni."
stjörnuspeking til að finna
réttan dag fyrir opnun Stjörn-
unnar! Ég trúi hins vegar á
fyrri og seinni tilverustig og að
fólk hafi ákveðinn tilgang í líf-
inu sem er fyrirfram ákveð-
inn.“
— Hvað gerirðu annað en að
vinna við útvarp?
„Hvað geri ég annað? Er það
ekki nóg? Ég svara nú ekki
svona spurningu. Ég er með
morgunþátt alla virka daga og
stjóma útsendingunni í hádeg-
isútvarpinu hjá Bjarna Degi,
þess utan er maður á fúndum
og það má eiginlega segja að
ég sé í vinnunni tólf tíma á dag
alla daga vikunnar. Á þessu ári
hef ég tvisvar farið í ffí, eina
viku í New York, og eina helgi
sem ég eyddi á Laugavatni."
— En ef þú værir ekki í útvarp-
inu, hvað værirðu þá að gera?
„Petta er erfið spurning. Ég
er sveinn í húsasmíði, en ég
hætti í því áður en ég fór í út-
varpið. Það á ekki við mig að
vinna í byggingarvinnu á vet-
urna. Húsasmíðin er að því
leyti skemmtileg að maður sér
áþreifanlegan árangur af vinn-
unni, en það er bara of lítið um
að vera. Ég vil hafa mikið
stress og læti í kringum mig,
þá líður mér vel. Golf hefur til
dæmis aldrei heillað mig, en
íþróttir eins og skíði og segl-
bretti em meira að mínu skapi.
Ætli ég segi ekki bara upp-
tökustjóri í sjónvarpi (produc
ent). Ég hef aðeins fengið
nasasjón af vinnu við sjónvarp.
Það var þegar ég kynnti rokk-
tónleika í beinni útsendingu á
afmæli Reykjavíkurborgar.
Innst inni er ég frekar feiminn,
fyrir fimm ámm hefði ég aldrei
trúað því að ég gæti staðið uppi
á sviði og verið kynnir í beinni
útsendingu fyrir framan
alþjóð."
Órakaður með
úffið hár
Gunnlaugur hefúr verið
kynnir á fegurðarsamkeppn-
um, tískusýningum og tónleik-
um, m.a. Fegurðarsamkeppni
íslands og Ungfrú Hollywood.
Hvernig er tilfinningin að vera
í návígi við allar þessar fegurð-
ardísir?
„Það hafa sumir sagst öfúnda
mig að vera innan um allar
þessar fegurðardrottningar, en
þær em flestar ósköp venju-
legar íslenskar stelpur. Ég
kann annars vel við að vera
kynnir, fæ ákveðið „kikk“ út úr
spennunni og álaginu sem því
fylgir. Stundin er hrikaleg þeg-
ar ég geng upp á svið og heyri
minn eigin hjartslátt, en það er
of seint að hætta við. Svo byrja
ég „Gott kvöld..." og þá slappa
ég af og hef bara gaman af
þessu.“
Áður en varir emm við aftur
farin að ræða um fyrri tilveru-
stig og dulræn efni almennt,
sem Gunnlaugur hefur mikinn
áhuga á. „Það hefur oft sýnt sig
að fslendingar spá mikið í dul-
ræn málefhi, en fólk virðist
hálfþartinn skammast sín fyrir
það. Til dæmis er það oft þann-
ig að ef farið er að ræða þessi
mál í kafifi á vinnustað þá em
þeir sení sýna þessu áhuga oft
álitnir eitthvað skrítnir."
— Svo við snúum okkur aftur
að persónunni Gunnlaugi
Helgasyni: Hugsar maður sem
hefúr verið viðloðandi fegurð-
arsamkeppnir og tískusýningar
mikið um útlitið?
„Mér líður náttúrlega betur
þegar ég er vel til fara, en dags
daglega er ég oft dmslulega
klæddur. Ef ég vakna seint þá
gríp ég bara það sem hendi er
næst. Kosturinn við útvarpið
er sá að maður getur mætt ó-
rakaður í trimmgalla með úfið
hár — eins og ég geri oft. Mér
líður líka mjög vel í smóking.
Finnst ekki öllum gaman að
fara í spariföt? Af fjárhagsá-
stæðum er ég samt ekki dag-
lega hjá Sævari Karli og Garð-
ari.“
Útvarpið er
mitt dóp
— Ferðu mikið út að skemmta
þér?
„Nei, ég gerði mikið af því
hér áður fyrr, en ætli ég sé ekki
farinn að róast með aldrinum.
Böll em ekki efst á vinsældar-
listanum hjá mér. Ég reyni að
fara út á land ef ég á frí yfir
helgi, komast aðeins úr skark-
alanum. Síðan ég kynntist írisi
fýrir nokkrum mánuðum er ég
meira heima við. Ætli ég sé
ekki frekar heimakær, alla vega
er ágætt að slappa af heima á
kvöldin þegar maður er að
vinna allt upp í tólf tíma á
dag.“
Þess má geta að íris er rit-
stjóri Gestgjafans.
Gunnlaugur hikar svolítið
þegar ég spyr hvort hann fái
eitthvað út úr því að vera í
sviðsljósinu. „Auðvitað er
maður svolítið fyrir „showið".
Það býr í okkur öllum ákveðið
egó sem verður á fá útrás. Það
er svolítill galli í svona litlu
landi hvað lítið þarf til að
menn verði almenningseign,
en ég er aðallega að gera það
sem ég hef gaman af. Ég veit að
það er fjöldinn allur af fólki
sem hundleiðist í vinnunni, en
neyðist til að pína sig áffam
peninganna vegna. Mér finnst
ég eiga gott að vera heilbrigð-
ur og finnast gaman í vinn-
unni. Útvarpið er mitt dóp.“
VIKAN 31