Vikan - 26.05.1988, Blaðsíða 40
SNYRTING TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR MYNDIR: PÁLL KJARTANSSON
Mjúkar andlitslínur og
dökkar, þrýstnar varir
Nú eru það eplakinnar!
Andlitsfardinn er fölur og litill litur umhverfis
augun. Þá kemur það vel út að setja lit efst á
kinnbeinin.
Engar loðnar
augnabrúnir meir!
Nú eru brúnirnar burstaðar til og þær for-
maðar um augun og augnskuggann. Gott er
að þurrka mesta litinn úr maskaraburstanum
og nota hann síðan til að laga augnabrúnir
Punkta undir augun!
Notið plómulitan eða svartan augnblýant
undir augun, alveg upp við augnhárin. Gerið
litla punkta, aldrei þykka iínu, til að forma
augun og fá hvítuna til að virka hvítari.
Bogadregnar línur!
„Nýju“ varirnareiga að vera bogadregnarog
virka þrýstnar. Dragið mjúka, bogadregna
linu aðeins fyrir ofan og neðan eigin varal-
ínu og betrumbætið þannig öriítið það sem
náttúran gaf.
Litur og aftur litur!
Gleymdu ekki að setja kinnalit á kjálkann.
Dragið boga undir kjálkann frá eyra til eyra.
Dreifið vel úr svo ekki myndist skörp skil.
Andlitslitapróf: Til að athuga hvort andlits-
farðinn hæfi húðlitnum, setjið þá örlítið á
andlitið nálægt kjálkanum, í staðinn fyrir á
handarbakið.
Sýnikennsla var haldin fyrir snyrtifræð-
inga í Evrópu í vor þar sem förðunarmeist-
ari ffá Los Angeles í Bandaríkjunum
kenndi kollegum sínum hér það nýjasta í
förðun. Hún notaði Trúcco snyrtivörur
sem eru framleiddar af Sebastian snyrti-
vörufyrirtækinu en á vegum þeirra var
hún hér.
Samkvæmt snyrtifræðingum Trúcco er í
vor og sumar lögð áhersla á að húðin sé,
eða virðist vera, slétt og hrein og að and-
litsmálning sé fínleg og ekki mjög sterk,
eða áberandi.
Kim Carillo, förðunarmeistari frá Sebastian,
málar hér íslenska stúlku eins og færi vel ef
hún væri að fara í kvikmyndatöku.
Þessi stúlka var máluö fyrir Ijósmyndatöku
og þessi málning á að henta einkar vel fyrir
svart-hvítar myndir, en einnig lit. Útlithennar
átti að vera dálítið í Gretu Garbo stíl, eða frá
árunum 1930-40. Meiri áhersla erlögð á að
nota andlitspúður en „meik“ því þannig fást
mýkri iínur og áhersla lögð á varirnar. Litirnir
umhverfis augun eru hafðir Ijósir.
Þessi er aftur á móti máluð eins og hún væri
að fara í kvikmyndatöku. Innan í neðri augn-
hvarmana er hún máluð með húðlitum
augnblýanti, sem lætur augun virka stærri. í
hár hennar var borið efni sem kallast „mud",
sem lætur hárið virka þykkara og meira
gljáandi, auk þess sem það verður mjög
meðfærilegt. Snúið var þétt upp á hárlokk-
ana og þeir haldast í föstum skorðum með
„mud“.
\
38 VIKAN