Vikan - 26.05.1988, Side 49
Eddy Raven er annar „Coun-
try“ söngvarinn sem kemur
lagi inn á Islenska listann, lagið
sem hann flytur er „I’m
gonna get you“ og er að
finna á safnplötu sem hann
sendi írá sér nú í febrúar. Það
er skemmtileg saga á bak við
vinsældir þessa lags hér heima.
Magnús Pálsson og Anna
kona hans voru á ferðalagi í
Bandaríkjunum, en þau bjuggu
þar í mörg ár en eru nú flutt
heim. Þau eru miklir aðdáend-
ur „Country" tónlistar og þeg-
ar þau heyrðu þetta lag í út-
varpinu hugsa þau með sér að
best sé að kaupa þetta lag og
færa heim. Plötuna sendu þau
undirrituðum sem um hæl
skellti því undir nálina og viti
menn, það var ekki liðin nema
ein mínúta af Iaginu þegar
símalínur urðu glóandi, allir
vildu vita hvaða lag þetta væri.
Bergþór Pálsson, sá ágæti
söngvari, söng þetta lag svo í
beinni útsendingu hjá
Hemma Gunn og tveimur
vikum síðar var þetta lag kom-
ið á íslenska listann. Lagið er
sérlega vel til fallið að syngja
með því og þegar maður hefur
heyrt það einu sinni kann
maður það nógu vel til að
syngja með. Ég er þakklátur
þeim Önnu og Magnúsi fyrir
velvildina.
• ••
Climie Fisher er dúett sem
samanstendur af Rob Fisher
og Simon Climie. Báðir hafa
um árabil unnið að tónlist og
vegnað vel á sínu sviði. Rob
Fisher hóf ungur að spila á pí-
anó og spilaði í mörgum
hljómsveitum á meðan hann
gekk í skóla. Það var svo í des-
ember 1979 að hann hitti Peter
Byrne söngvara og þeir stofn-
uðu hljómsveitina Neon en til
liðs við sig fengu þeir Roland
Orzabel og Curt Smith úr Te-
ars for Fears. Þremur árum síð-
ar breyttu þeir nafninu í Nak-
ed Eyes en þá voru Orzabel og
Smith löngu hættir með þeim.
Fyrsta plata Naked Eyes gekk
illa í Bretlandi en mun betur í
Bandaríkjunum og náðu þeir
tveimur lögum inn á topp 10.
Rob Fisher þykir afburðargóð-
ur lagasmiður og má í því
sambandi nefna lag eins og
„When the going gets Tough,
the Toughe get going“ sem
Billy Ocean gerði þekkt. Simon
Climie er einnig Breti og
fékkst við spilamennsku á
unga aldri. Hann hætti í skóla
15 ára til að gerast gítarleikari
með ýmsum hljómsveitum.
Hann vissi hvað hann vildi og
tók um það ákvörðun að ganga
þann veg til enda. Um tíma
samdi hann lög fyrir Leo Sayer
og Roger Daltrey (The Who).
Undanfarin tvö ár hefúr hon-
um þó vegnað betur og hefúr
samið lög fyrir Pat Benatar og
Smokey Robinson. Það lag sem
er líklegast þekktast af þeim
lögum sem hann hefur samið
er „I Knew You Were Waiting
For Me“ sem Aretha Frankl-
in og George Michael sungu
saman. Þessi Dúett hefúr sent
frá sér eina breiðskífu sem út
kom 1. febrúar og þaðan er
lagið „Love Changes Ever-
ything" sem komið er á ís-
íenska listann.
Föstudagurinn 13. maí var ekki
med öllu illur; fimmta platan frá
Mannakornum kom þá út. Á
myndinni eru þeir félagarnir
Magnús Eiríksson og Pálmi
Gunnarsson, sem mest komu
þar við sögu.
VIKAN 47