Vikan - 01.09.1988, Qupperneq 64
Roðna
af minnsta tilefni
Elsku besti Vikupóstur!
Ég er með nokkrar spurningar sem ég
vonast til að fá svör við. Þannig er mál
með vexti að ég roðna nokkuð oft á dag.
Það er sama hvort það er karl- eða kven-
maður sem horflr á mig...þá bara kafroðna
ég. Hvað get ég gert til að hætta að roðna?
Og hvernig er hægt að losna við feimni?
Ég er eins og svo margar stelpur óánægð
með útlitið og mig skortir sjálfstraust. Mér
flnnst eins og fólk (foreldrar og systkini)
séu að brjóta niður það sem ég er að reyna
að byggja upp. Hvernig er hægt að losna
við viðkvæmni og byggja upp sterkt sjálfs-
traust?
Dísa á Flateyri
Póstinwn hefðiþótt betra efþú hefðirsagt
hvað þú ert gömul, en ef þú ert á aldrinum
11-14 ára, eðaþarum hil, þá ermjögeðli-
legt að þú séri viðkvæm. Eins og þú
kannski veist þá eru miklar breytmgar að
gerast í líkamanum á þessum tíma sem
hafa margs konar áhrif á skaþið. Eitt ein-
ketinið er viðkvœmnin, annað er geð-
votiska, þtiðja að finnast maður sjálfur
ómögulegur, fjórða að foreldrar manns
og s)’stkini séu olómöguleg og allra ann-
atra mun betri, fimmta erfeimni og með
henni og viðkvœmninni fylgir gjaman að
viðkomandi roðnar auðveldlega af
minmta tiiefni. Mörg önnur einkenni er
hœgt að telja uþþ, en af þessu sérðu að
margt á við þig - en líka við alla aðra á
sama aldti. Sumir leyna því kanttski betur.
Ef boðið er uþþ á leiklistamámskeið,
rœðutnennsku eða annað þar sem fólk.
þatf að tjá sig í bœnum hjá þér eða ná-
grenninu, taktu þá endilega þátt. Þetta
íojálþar þér til að öðiast sjálfstraust og
vinna bug á feimninni. Einnig er mjög
gott að taka þátt í námskeiðum hjáJC.
Er „það" verra
þegar maður
er þybbinn?
Kæri póstur!
Takk fyrir góð blöð, en allra mest vil ég
þakka póstinum því hann hefur hjálpað
ntörgum og þess vegna langar mig að biðja
hann að gefa mér góð ráð og svara spurn-
ingum mínum.
1. Er verra að „sofa hjá“ strák þegar maður
er þybbinn?
2. Er hægt að fá pilluna þó maður sé ekki
farinn að vera með strák?
3. Þegar strákar eru alltaf að káfa á manni,
gefúr það eitthvað til kynna eða eru þeir
bara að strrða manni, þó þeir séu alvarlegir
á svipinn? Ætti maður að taka við þeim?
4. Fara ekki strákar oftast eftir því hvort
maður er grannur eða ekki? Og líka hvort
maður er sætur, eða fara þeir eítir innra
manni?
Vona að pósturinn eigi svör við þessunt
spurningum mínum.
Ein forvitin
Þú sþyrð ekki um lítið, finmt þóstinum.
Svarið við fyrstu sþumingunni gœti verið
á þessa leið. Líkamsstarfsemin á þessu svið
er söm, hvori sem fólk er grannt eða feitt.
Aftur á móti á akfeitt fólk kannski heldur
erfiðara með hreyfingar en hinir.
Svarið við annarri sþumingunni erþað
að lœknar ákveða hvenær þeir afgreiða
þilluna til viðkomandi, eti varla er það
gott fyrir nokkra konu að taka þilluna ef
hún þatf ekki að nota hana - hvað þá
unga stúlku. Þú veist að það eru tilfleiri
getnaðarverjur og sumar hafa engin áhrif
á líkamsstarfsemina, eins og þillan gerir.
Svo erþað þetta með strákana og káfið.
Strákar hafa víst alltaf og munu líklega
alltaf reyna að fá að káfa á líkama stelþn-
anna. Þetta má að vissu marki kalla for-
vittii -þrófa eitthvað nýtt og áður óþekkt -
en einnig er þetta fylgifiskur kynþroska-
aldursins. Blessuð vertu ekkert að láta
strákana káfa á þér. Alveg sama hversu al-
varlegir þeir eru á sviþinn. Efþti gerirþað,
þá er það nœsta sem þú heyrir að al/ir í
bœnum vita að þú leyfir strákum að káfa
á þér: Þú fœrð á þig slœmt orð.
Síðasta atriðið, þetta með útlitið. Því er
nokkuð vandsvarað, en yfirleitt hefurþað
viljað vera svo að strákamir líta fyrst á út-
litið þegarþeir horfa á stelþu og eins og þú
veist þá þykir nú betra að vera grannur!
Þegar strákar fara að þekkja stelþumar,
þá skiþtir manngerðin, eða innri maðttr-
inn, oft jafnmiklu eða meira máli en útlit-
ið. Fýlulegar og leiðihlegar en jafnframt
sœtar stelþur, hafa kannski alls ekkeri
meiri „sjéns" en þcersem ent ekkijafn sœt-
ar eða vel vaxnar.
Eitt aukaráð frá þóstinum: Sleþþtu því
að kauþa þérscelgœti og gosdtykki, minnk-
aðu við þig matinn - sérstaklega fitu og
sœtindi - og þú verður œðisleg á árshátíð-
inni!
Pennavinir
Myndarlegur, bandarískur karlmaður
óskar eftir að skrifast á við íslenska konu.
Hann segirst vera urn 190 cm á hæð og
fæddur 19. ágúst. Hann vill skrifast á við
aðlaðandi, gáfaða konu á aldrinum 25-35
ára.
llann segist vera viðkvæmur og einlæg-
ur og njóta lífsins. Honum finnst gaman að
ferðast, hlusta á tónlist og hitta nýtt fólk.
Hann langar að flnna einhverja sem er sér-
stök til að eyða lífinu með.
„Ef þú ert hláturmild kona sem þorir að
taka áhættu og lifa lífinu til fúllnustu þá
hlakka ég mikið til að fá fyrsta bréfið frá
þér. Bréfum sem mynd fylgir verður svar-
að um hæl.“
Don Warren
1001 Tumstone Dr.
Rocky Mount, N.C. 27803
USA
Annar Bandaríkjamaður er einnig á
höttunum eftir íslenskum kvenmanni.
Hann langar að skrifast á við ljóshærða
konu. Hann segist vera aðlaðandi Andalús-
íu/grískur Ameríkani, 30 ára gamall. Ilann
hefur áhuga á útilífi, ferðalögum, aust-
rænni tónlist og matreiðslu. Skrifið til:
Francisco Barea
4722 Bentham Dr., Apt. 201
Columbus Ohio 43220
USA
Ótrúlega margir í Ghana óska eftir ís-
lenskum pennavinum og hér eru bréf frá
fjórum sem öll skrifa á ensku.
Michael C. Mefiful
Box 904 Cape Coast
Ghana-West Africa
Hann er 25 ára og hefur áhuga á útilegum,
ferðalögum, tónlist, bréfaskriftum, íþrótt-
um, kvikmyndum og að skiptast á skoðun-
um.
Miss Anía Emma
Box 1012 - Oomaa Central Region
Ghana
W-A£rica
Hún er 24 ára og hefur áhuga á öllu.
Miss Hannah Thompson Cobbah
P.O. Box 101 Cape Coast
Ghana
West Afirica
Hún er 23 ára og hefúr áltuga á tonlist,
ferðalögum, íþróttum, matreiðslu, kvik-
myndum, póstkortum og hjónabandi.
Hér er bréf frá ungum manni í Póllandi
sem óskar eftir pennavinum. Hann er
landafræðistúdent og er 21 árs og hefur
nt.a. áliuga á ferðalögum, náttúru og
tónlist. Hann skrifar á eftirfarandi tungu-
málum: Pólsku, þýsku og rússnesku.
Skrifið til:
Tomasz Gawex
ul. Powstancow 34 A/66
31-422 KRAKOW
Polland
UTAÍ1Á5KRIFT: VIKAM, PÓ5TURIMK PÓ5TMÓLF 5344, FIÁALEITI5BRAUT 1, 105 REYKJAVÍK
62 VIKAN