Vikan - 24.08.1989, Page 40
sriYRTiriG
SNILUNGURINN
MICHAEL MARON
Einn besti förðunarfræðingur í Hollywood, Michoel
Moron, hefur þoð erfiðo hlutverk oð „skopo" kvik-
myndostjörnur með förðun sinni. Michoel segir að
hver kona sé falleg en það eru ekki allir sem kunna
að kalla fegurðina fram. Eitt af því sem Michael vinn-
ur út frá þegar hann farðar konu er að finna út
hvernig persóna hún er. Síðan punktar hann niður
helstu þættina í andlitinu, þá bestu og þá verstu. Út
frá þessu finnur hann síðan hvað þarf að ffela og hvað
þarf að kalla fram. Við látum fylgja hér nokkur sýn-
ishorn af árangri Michaels ffyrir og eftir meðhöndlun
ásamt helstu einkennum í andliti hverrar konu.
Förðunarsnillingurinn
Michael Maron
Lynn Redgrave hefur:
svipmikinn munn, mjög góðar
tennur, dökkar augabrúnir,
sterkan kinnbeinssvip, fallega
áferð á húð, nef sem virkar stórt á
mynd.
38 VIKAN 17. TBL. 1989