Vikan - 16.02.1939, Qupperneq 6
6
VIKAN
Nr. 7, 1939
Nyrzta borg á jarðríki9
Smeerenburg,
borg á Spitzbergen
ótt undarlegt megi virðast, fljótt á
litið, þá voru þeir menn að leita sjó-
leiðar til Indlands, sem fundu aftur hinar
gleymdu leiðir Islendinga hinna fornu um
Norðurhöf. Siglingaþjóðir í Norðvestur-
Evrópu á 16. öld gerðu ítrekaðar tilraun-
ir til að komast norður fyrir Ameríku,
Norðvesturleiðina svonefndu yfir í
Kyrrahaf, og jafnframt reyndu þær
að ná þessu marki með því að sigla
norður fyrir Evrópu og Asíu, þá leið,
sem kölluð hefir verið Norðaustur-
leiðin.
Raunverulega má segja, að allar
þessar tilraunir hafi mistekizt. Það
var ekki fyrr en 1879, að Norden-
skjold tókst að komast til Kyrrahafs-
ins um Norðausturleiðina, — og ekki
fyrr en 1906 komst Amundsen alla
leið til Beringsunds eftir Norðvestur-
leiðinni. Og löngu áður voru menn
búnir að gera sér ljóst, að hvorug
þessara leiða myndi nokkurntíma
geta orðið skipum fær að staðaldri
yfir í Kyrrahafið; um það myndi haf-
ísinn sjá. —
En sægarpar þeir, sem leituðu Ind-
lands í norðurátt, komu samt sem
áður færandi hendi heim. Þeir fluttu
með sér vitneskjuna um lönd, sem
þeir héldu, að enginn maður hefði
áður augum litið, enda þótt sumt
væru lönd, sem fundizt höfðu endur
fyrir löngu og aftur gleymzt að
mestu. Italinn Giovanni Cabotto
(Cabot) kom að austurströnd
Norður-Ameríku á öndverðu sumri
árið 1497 (nærri fimm öldum síðar
en Leifur heppni). Englendingurinn
Sir Martin Frobischer endurfann
snemma á 17* öld.
Grænland árið 1578 (nærri sex öldum
síðar en Eiríkur rauði). Og 1596 fann svo
Hollendingur, Barents að nafni, nokkum
hluta af eyjaklasa þeim, sem lengst um
hefir verið nefndur
Spitzbergen, — en
Norðmenn nefna nú
Svalbard. — Fyrir
hugskotssjónum
þeirra, sem lögðu á
þessar leiðir, svifu
vonimar um aust-
rænt krydd og ann-
an dýran Asíuvarn-
mg, og gróðavonin
um verzlunina með
slíkt knúði þá
áfram til leitar að
nýjum leiðum. Haf-
is og vetrarhörkur
gerðu slíkar vonir að tálvonum, en samt
sem áður kynntust þeir í Norðurhöfum
auðlegð af öðru tagi, sem brátt varð keppi-
kefli allra þeirra þjóða í Evrópu norðan-
og vestanverðri, sem einhvem skipakost
áttu. — Það var hvalauðlegð Norðurhafa.
Hún virtist ótæmandi um þessar mundir.
Og einkum var þéttbýlt við Spitzbergen af
þessum risalýð hafsins, mörgum tegund-
um hvala, sela og rostunga, sem ösluðu
þar um allan sjó.
Englendingar, Hollendingar, Þjóðverjar
frá Hamborg og Brimum og Danir fóm nú
á kreik og sendu hvalveiðaflota norður á
bóginn. Samkomulag þjóðanna var í stirð-
asta lagi. Um skeið linnti ekki bardögum
milli skipshafna af þessum fjórum þjóð-
um. Kæmbréfum rigndi yfir ríkisstjórnir
þeirra og margir samningar voru gerðir
þeirra á milli um nýtingu þessarra auð-
linda. Loks komu þær sér saman um að
skipta milli sín fiskimiðum og lendingar-
stöðum þar norður frá. Því að einkum þótti
við liggja að hafa aðgang að sæmilegri
höfn, þar sem draga mætti veiðina
á land og bræða hvalspikið. Á strönd-
um Spitzbergen risu því brátt upp
bræðslustöðvar, þar sem enskir, hol-
lenzkir, þýzkir eða danskir hvalveiða-
menn höfðu bækistöðvar sínar.
Hollendingar voru þá framsækn-
asta og mesta siglingaþjóð í álfu hér,
og þeir urðu því hlutskarpastir í
samkeppninni þar norður frá, áður
langt um liði. Þeir skutu aftur fyrir
sig hinum þjóðunum og brátt urðu
þeir einir um hituna í Spitzbergen og
grennd. Eftir því sem árin liðu, fór
skipum þeirra fjölgandi. Og í fjörð-
um og flóum við eyjarnar voru hval-
veiðaskip þeirra á sveimi. Seglskip
þeirra lágu þar og sendu út frá sér
velmannaða róðrarbáta, sem háðu
hjaðningavíg við hin risavöxnu veiði-
dýr. I hver jum bati var mestur kunn-
áttu- og álitsmaður sá, er kunni með
skutulinn að fara, og voru til þess
lengstum ráðnir Baskar frá Spáni,
eða Suðvestur-Frakklandi, sem taldir
voru snjallastir í þeirri íþrótt, að
fara með skutul, enda höfðu Baskar
haft orð á sér fyrir það, að vera
mestir skutlarar í vestanverðri Ev-
rópu öldum saman fram að þessu.
Hver dauður hvalur var dreginn á
land. Spikinu var flett af honum. Síð-
an var það brætt og lýsinu eða hval-
Nútíma hvalveiöaskip í haíis viö austurströnd Grænlands.
Hollenzk hvalveiðaskip frá 18. öld.
Hvalveiðaskip frá Hamborg á 18. öld.