Vikan


Vikan - 16.02.1939, Blaðsíða 20

Vikan - 16.02.1939, Blaðsíða 20
20 VIKAN Nr. 7, 1939 ég get gefið henni. Ég á brúður, bækur, spil og--------- Maja lauk ekki við setninguna. Hún starði lengi út í loftið. Mömmu hennar grunaði, hvað var að brjótast um í huga dóttur sinnar — en hún lét Maju afskipta- lausa, þar sem hún vissi, að hún myndi verða sterkari, ef hún gerði það sjálf. Eftir dálitla stund sá frú Holm Maju ganga niður eftir garðstígnum, þar sem Bob var að leika sér að bolta. Hún sá hana taka hundinn upp og þrýsta honum ákaft að sér. Að lokum fór hún inn með hundinn. — Mamma, sagði hún og henni var mikið niðri fyrir, — ég ætla — ætla að gefa Önnu Bob. Mamma hennar tók utan um Maju og litla hundinn hennar. — Ég er viss um, góða mín, sagði hún og hún virtist líka vera hrærð, — að Önnu þykir ekki eins vænt um neitt í heimin- um. Og það var líka áreiðanlegt. Anna varð alveg orðlaus af ánægju, þegar Maja kom til hennar daginn eftir og gaf henni Bob. Hann: Hverju munduð þér svara, ef ég bæði yður að sigla með mér eins lengi og við lifum bæði? Hún: Já, ef ég má alltaf sitja við stýrið. * _________________________ Draumurinn. Framh. af bls. 11. snöggt viðbragð til þess að framkvæma slíkan glæp. — Það var erfitt að hætta að hugsa um þetta. Nokkrum mánuðum síðar, vakti konan mín mig aftur eina nótt. Ég var dauðþreyttur og reiddist..Hún var föl og skjálfandi. Hana hafði dreymt sama drauminn. Hún fór að gráta og spurði mig, hvort ég hataði sig. Ég sór við nafn allra dýrlinga Rússlands, að ég elskaði hana. Loksins fór hún að sofa aftur. Það var meira en ég gat gert, ég varð andvaka. Mér fannst ég sjá hana detta niður fyrir handriðið og heyra ópið í henni, og hlunk- inn, þegar hún skall ofan í steingólfið. Ég hríðskalf. — Rússinn þagnaði, og stórir svitadropar stóðu á enninu á honum. Hann hafði sagt söguna vel og greinilega, og ég hlustaði með athygli. Það var enn dálítið brennivín eftir í flöskunni. Hann hellti því í glas og drakk það í einum teyg. — Hvernig dó konan yðar? spurði ég eftir stundarkom. — Hann tók upp óhreinan vasaklút og þurrkaði sér um ennið. — Svo undarlega bar við, að hún fannst, seint um kvöld, hálsbrotin niðri á kjallaragólfi hússins. — Hver fann hana? — Einn leigjandinn í húsinu, sem kom inn skömmu eftir, að slysið vildi til. — Og hvar voruð þér? Ég gleymi aldrei augnaráðinu, sem hann sendi mér. Það var í senn svo kænlegt og illskulegt. Það var eins og svörtu augun hans skytu neistum. — Ég var hjá vini mínum um kvöldið og kom ekki heim fyrr en klukkutíma síðar. Þá færði þjónninn okkur kjötréttinn, sem við höfðum beðið um, og Rússinn tók til matar síns með beztu lyst. Hann hámaði í sig matinn og tók geysistóra munnbita. — Mér var hálf órótt. Hafði hann í raun og veru verið að segja mér það blátt áfram, að hann hefði drepið kon- una sína. — Þessi feiti og letilegi maður leit ekki út fyrir að vera morðingi. Ég gat ekki trúað því, að hann hefði þorað að drepa mann. Eða var hann bara að gera gabb að mér? Fáum mínútum síðar, varð ég að fara til að ná í lestina. Ég kvaddi hann og hefi aldrei séð hann síðan. Og enn í dag veit ég ekki, hvort honum var alvara eða hann var að gera að gamni sínu. — Karl: Hvað kemur til, að Jón, sem kemur svo dæmalaust illa saman við konuna sína, hefir hana með á öllum sínum ferða- lögum? Björn: Það er af því, að hvor- ugt hjónanna ann hinu að vera í friði. Litla Blómabúðin Bankastræti 14. Ávallt mikið af afskornum blómum og pottaplöntum. - Verkfræðistörf — Teiknistötf. Jámbent steinsteypa. Miðstöðvateikningar. Gróðurhúsateikningar o.fl. Ingólfur Jörundsson, Skálholtsstíg 7. Sími 5169. Steindórsprent prentar fyrir yður Aðalstrœti 4 • Sími 1175 Húsmœður, Láta * *kki eriiais- vinnu ónýta daginn, heldur leikið yður að þvi að fegra gólfið með N otkunarreglur: 1. Hafi gólf verið bónað áður eða lakkað með öðru en REFLEX, — þarf fyrst að þvo það vel úr sterku sápu- vatni og lofa því síð- an að þorna alger- lega. 2. Síðan er REFLEX- SJALFGLJÁI borinn á með mjúkum pensli eða léreftsklút, einu sinni á mánuði. Tvær yfirferðir -—■ látið þorna á milli! — gefa sterkari gljáa og meiri endingu. Nudd- ið ekki. 3. I góðu og hlýju veðri þornar REFLEX- SJALFGLJAI á 20 mínútum; í rigningu tekur það svolítið lengri tima. 4. Farið yfir gólfin með mjúkum, rökum klút, helzt daglega, þá gljá þau að nýju. 5. REFLEX- SJALFGLJAI má ekki frjósa, Einkaf ramleidandi: Lakk- og Mátningarverkssiðjan IllM h.i. Reykjavik. Heildsölubirgdir: H. Ólafsson & Bernhöft. Reykjavík. Nýkomið stórt og fallegt úrval. Fallegir litir, falleg snið. GEYSIR Fatadeildin.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.