Vikan - 27.07.1939, Blaðsíða 20
20
VIKAN
Nr. 30, 1939
Uppfinningamadurínn, sem hvarf.
Fyrir röskum aldarfjórðungi lauk hinni áhrifaríku æfi dr. Rudolph
Diesels, er hann stökk fyrir borð af skipi í Ermasundi.
Kvöldið 29. september 1913, var dr.
Rudolph Diesel á leið yfir Erma-
sund, ásamt tveimur vinum sínum,
og var förinni heitið til London, til fundar
við brezka verksmiðjueigendur og land-
varnarmálaráðuneytið. Er hann hafði snætt
kvöldverð, gekk hann um stund á þilfari
með vinum sínum, en kl. 10 fór hann að
hátta og lét þess getið við kunningja sína,
að hann vonaðist til að sjá þá hressa og
glaða í fyrramálið.
Þetta var það síðasta, sem menn vita um
hinn merka uppfinningamann Diesel-vél-
arinnar, því að morguninn eftir var hann
horfinn. Náttfötin hans lágu samanbrotin
á höfðalaginu, og úrið hans hékk yfir
rúminu, en eigandinn var allur á bak og
burt. Viku síðar dorgaði hollenzkur fiski-
bátur lík í Ermasundi, en það var svo
skaddað, að bátsverjar létu sér nægja að
tæma vasa þess og fleygja því síðan út-
byrðis. En þegar farið var að athuga,
hvað vasamir höfðu haft að geyma, reynd-
ist þetta hafa verið lík dr. Diesels.
Þetta skyndilega hvarf þessa heims-
fræga manns varð saga til næsta bæjar.
Ymsir vildu halda því fram, að hann hefði
verið myrtur, til þess að koma í veg fyrir,
að hann léti brezka land-
ur til að leita á náðir nokkurs manns.
Hafði hann fest kaup á jarðeignum, er
skyndilega höfðu fallið í verði um meira en
eina milljón krónur.
Rudolph Diesel fæddist í París 1858.
Foreldrar hans voru bæði þýzk. Þegar
ófriðurinn milli Frakka og Þjóðverja
brauzt út 1870, vár Rudolph litli sendur
til ættingja sinna í Augsburg, og þar ólst
hann upp. Bar snemma á góðum gáfum
hjá honum, og skólanámið veittist honum
afar létt. Er hann hafði lokið námi við iðn-
skólann í Augsburg, hvarf hann til Miinch-
en og hóf nám við fjöllistaskólann þar og
lauk glæsilegu prófi. Frá því að hann fyrst
fór að bera skyn á vélar, hafði hann
dreymt um að smíða gangvélar, sem ekki
eyddu til einskis eins mörgum orkueining-
um og gufuvélin og gasmótorinn gerðu.
Og er hann að loknu námi varð erindreki
í París fyrir frystivélaverksmiðju, tók
hann í hjáverkum sínum að vinna að
þessari hugmynd, og sat oft langt fram á
nætur á vinnustofu sinni við að teikna vél-
ar. Er hann 35 ára gamall flutti til Ber-
línar, hafði hann lokið við teikningu á
nýrri tegund hreyfivéla. Keypti hann síð-
an einkarétt á hugmyndinni, og gaf síðan
út prentaðan bækling, þar sem hann gerði
grein fyrir uppfinningu sinni. Bjóst hann
við fremur daufum undirtektum, enda var
vél hans í háði nefnd pappírsvélin, þar sem
þetta voru aðeins teikningar af vél, en ekki
vélin sjálf. En vélsmiðja ein í Augsburg
tók að sér að smíða vélina eftir teikning-
um og fyrirsögn uppfinningamannsins, og
fjórum árum síðar var vélin fullgerð og
stóð þarna eins og hvert annað furðuverk,
sem verkfræðingar og vélsmiðir frá flest-
um löndum heims komu til að skoða og
furða sig á. Og enginn minntist nú einu
orði á pappírs-vélina. Hér stóðu menn aug-
liti til auglitis við hreyfivél framtíðarinn-
ar, vél er notaði hráolíu fyrir orkugjafa,
auk margra annarra ódýrra efna, svo sem
tjöru, asfalt, og-jafnvel áfir. Og nú fór
tími upphefðarinnar í hönd fyrir Rudolph
Diesel. Hann græddi ógrynni fjár og var
hvarvetna sýnd hin mesta virðing. Árið
1912 dvaldi hann lengi í Bandaríkjunum,
og engan hefði þá órað fyrir því, að árið
eftir mundi Diesel fyrirfara sér út úr pen-
ingavandræðum.
Æfiferill þessa merka manns er nú fall-
inn í gleymskunnar djúp, en nafn hans lif-
ir í drunum þungra vörubifreiða og þjót-
andi eimlesta, í þyti flugvélanna og gang-
hlökkti stórra skipa, sem sigla fram og
aftur yfir hinni votu gröf uppfinninga-
mannsins.
— Það er óþægilegt fyrir þig, Jón, að
stama eins og þú gerir.
— Já, vi-við hö-höfum allir okk-okkar
ga-galla. Með hva-hvaða he-hendi snýt-
snýtir þú þé-þér til dæmis?
— Venjulega þeirri hægri.
— Sko-o, da-datt mé-mér ekki í hu-hug.
Ég snýt-snýti mé-mér me-með vasa-klútn-
um mín-mínum.
Konur! Ef menn ykkar gefa ykkur allt,
sem þið biðjið um, sýnir það aðeins eitt —
þið biðjið ekki um nóg.
*
— Ég veit ekki, hvort ég á að verða
tannlæknir eða augnlæknir.
— Auðvitað tannlæknir, maður. Fólk
hefir ekki nema tvö augu, en þrjátíu og
tvær tennur.
varnarmálaráðuneytinu í té
uppfinningar sínar. En hin
eina skynsamlega ástæða
fyrir hvarfi dr. Diesels er
nýlega komin fram, og er
færð í letur af syni hans,
sem segir, að faðir sinn hafi
um þessar mundir verið í
þann veginn að verða gjald-
þrota, en verið of stórlynd-
Dr. Rudolph Diesel og fyrsta Diesel-
vélin, er var smíSuð 1897.