Vikan - 07.12.1939, Page 6
6
VIK A N
Nr. 49, 1939
SamræSurnar eru f jörugar á meðan viðskiptavinirnir eru rakaðir og negrinn burstar skóna þeirra.
Á götum New York vekur lírukassaspilarinn athygli barnanna — og mamma borgar brúsann ...
Póstkassi, mjólkurbrúsi og ruslakarfa — og síóast ávaxtavagninn eins og brunnur í eyðimörkinni.
Lífið í vestri.
New York, bær milljónamæringanna, þar
sem allt er stærst, bezt, verst og glæsi-
legast, þar sem allt er mögulegt fyrir þá,
sem kunna á því lagið. Þannig ímynda
flestir sér hina stærstu borg Bandaríkj-
anna. En hin geypistóra mauraþúfa, þar
sem átta milljónir manna búa, hefir einnig
sínar þægilegu hliðar, og líf borgarbúanna
er ekkert ólíkt lífinu í venjulegum borg-
um. Lírukassaspilarinn spilar á götunum,
svo að börnin verða hrifin, ávaxtavagnar
Saxófón-einleikur getur komið við hjartað í ungu
stúlkunum, jafnvel þó að þær séu á hraðri ferð.
xiieð eplum og banönum standa á öllum
götuhornum, og karlarnir standa hér og
þar í hópum og tala um stjórnmál. Eng-
inn tryði því, að þetta væri í næst stærstu
borginni í heiminum.
Það, sem gerir New York eins hrikalega
og stórkostlega og hún er, er mestmegnis
hinn mikli sægur frá öllum löndum, sem
heimsækir borgina. Rúmlega fimm mill-
jónir ferðamanna koma árlega til New
York, — til samanburðar má geta þess,
að til Frakklands, en Frakkar telja ferða-
mannastrauminn stóriðjú, komu aðeins
900,000 gestir árið 1937. Veitingamenn á
hinum 460 veitingahúsum í New York
gizka á, að tekjur bæjarins af ferðamönn-
um nemi 750 milljónum króna á ári hverju.
I New York eru 115,000 gestaherbergi, og
þau kosta frá einni krónu eitt herbergi í
Bowery upp í 250 kr. á dag 4 herbergja
íbúð á Ritz-gistihúsinu. Stærsta gistihúsið
(með tilliti til herbergja) er St. George,
en þar eru 261 herbergi. Annað stærsta
gistihúsið er Hotel New Yorker.
I New York eru 5/7 af íbúum borgar-
innar upprunalega frá ítalíu, Gyðingalandi,
Þýzkalandi, írlandi, Póllandi og Rússlandi.