Vikan


Vikan - 25.01.1940, Qupperneq 3

Vikan - 25.01.1940, Qupperneq 3
3 VIKAN. O^Ohqm., og, 1/jóúJdð. í &oÁjghwL. 111111111111111 iiiiiimmim 11111111 n 111111111111111111111 Hugleiðingar eftir kvöldrölt með sveitapilti, sem kemur í fyrsta skipti til Reykjavíkur. i ■ i ■ 11 ■ i ii ii i ■ i ■ ■ ■ i ■ 11 ii ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ii ■ i ■ ■ ■ ■ i ■ ■ i i ■ 11 ■ 111 ■■ 11 ■ i ■ ■ ■ ii ■ iii i ■ ■ i ■ ■■ ■■ i ■ iii i ■ ■ i ■ ■ i ■ ■ iii ■ i ■ ii 1111 iii ■ i ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ i ■ i ■ ■ ii • • ■ i vika vetrar var í kaldara lagi, ekki • þó svo, að orð sé á gerandi, þegar kominn er þessi tími, vika til þorra. Hins vegar má gera ráð fyrir, að þjóðum megin- lands álfunnar verði starsýnt á veður- fregnirnar héðan, og hið lága frostmark veki öfund þeirra, sem búa við kulda hins mesta fimbulvetrar, sem komið hefir í álf- unni í 50 ár. Að vonum mun þeim þykja það kynlegt öfugstreymi, að þeirra sól fær svo litlu áorkað á móts við okkar sól, sem hlýtur þó, samkvæmt hnattstöðu landsins, að vera lægra á lofti. Þegar hér við bætist að okkar sólskinsstundir eru færri en víðast hvar á meginlandi álfunnar, vegna eyjaloftslagsins hér, þá verður þetta öfug- streymi í náttúrunnar ríki enn furðulegra. Kunningi minn, sem trúir á sólina og fór frakkalaus til Hafnarfjarðar í hinni vik- unni, en liggur nú í kvefi, fullyrðir að okk- ar sól sé máttugri en sólin annars staðar á hnettinum, og er eindreginn talsmaður nafnbreytingar á landinu, sem farið var að ræða af kappi í blöðunum í vikunni, sem leið. — Sólland á það að heita, sagði hann, eftir lífgjafa þjóðarinnar. Knattspyrnumenn héldu álfabrennu á íþróttavellinum. Bálið var hið myndarleg- asta, enda voru heilir róðrarbátar, að vísu ósjófærir, kassar og annar eldiviður, ásamt tíu fötum af steinolíu borið á bálið. Brenn- ur eru að sönnu þjóðlegar síðan Njáls- brenna og fleiri slíkar voru haldnar hérna um árið, og þeim hefir trúlega verið haldið við af skólapiltum í Skálholti og í Hóla- vallarskóla, sem „fúttuðu af“ óvinsælar lærdómsskræður, matarílát og fleiri nauð- synjar, þegar þeir yfirgáfu skólann á vor- in. En í eldiviðarsnauðu landi verða þessar brennur að teljast til öfugstreymis í þjóð- lífinu. En svo er það hann kunningi minn, sem vildi breyta nafni landsins. Kvefið í hon- um snerist upp í lungnabólgu og læknirinn hefir nú ráðlagt honum bætiefnaát eftir að hann var farinn að sjá rottur og hvít hænsni í rúminu hjá sér. Þessi bætiefni eru úr ávöxtum sunnan úr sólarlöndum og kunningi minn er ekki frá því að Golf- straumurinn sé lífgjafi þjóðarinnar, en hann er ekki viss um að Golfland sé heppi- legt nafn á landið. Hann er að hugsa um að læra golf, þegar hann kemur á fætur, og tala við Gunnlaug Einarsson um auglýs- ingagildi nafnsins — upp á enska túrista. Er ég settist að hér í Reykjavík fyrir rúmum fjórum árum, fannst mér borgin við fyrstu kynni í senn bæði skemmtileg og merkileg, og mér fannst þá, að ég læra eitthvað í hverju fótmáli, sem ég gekk, eitthvað af öllu fólki, sem ég um- gekkst, og einnig af því fólki, sem ég ekki þekkti. Mér þótti mjög lærdómsríkt að ganga hér um göturnar, og ég var sein- þreyttur til að trúa því, að Reykjavík væri í raun og veru ekki mjög merkileg borg, en svo vildu þó kunnugir ekki vera láta. En ævintýrabjarminn hvarf fljótt, og smátt og smátt rýrnaði áhuginn fyrir því að ganga um göturnar og góna á fólk, tala við börn og gamalmenni um lífsreynslu þeirra og hugðarefni. Öll þessi uppgötv- andi „áhrif“ þokuðust fjær mér, og greind- ust sundur eins og létt morgunþokan fyrir hafgolunni. Og nú er svo komið, að ég er hættur að sjá nokkuð merkilegt við það að ganga um göturnar. Það er allt jafn hvers- dagslegt og grátt, jafn innantómt og sjálf- sagt. Og ég veit, af hverju það stafar. Við höfum haft of náin kynni hvort af öðru, borgin og ég. Um eitt skeið sat ég á áheyrendapöll- um alþingis mestan þingtímann til að læra málarekstur af þeim, sem hér hafa forystu í þjóðmálum. En einn góðan veðurdag gleymdi ég að koma. Ég hafði fengið mig fullsaddan af að hlusta á, hvernig lögin verða til. Áhuginn fyrir áhrifavaldi þing- mannanna var þrotinn, kannske vegna þess, að ég fékk engan botn í þingsályktun- artillögur og bráðabyrgðalög, og mér virt- ist sem enginn skildi, hvað það þýddi. Héðan fór ég því nokkru snauðari en ég kom, því ég hafði gert mér í hugarlund, að þingmennirnir væru miklu mælskari en þeir eru. Þjóðfélagsaðstaða mín hefir aldrei leyft mér, að lifa neinu lúxuslífi, til þess hefir mig alltaf skort peninga. En hin seinni ár hefi ég vanið mig á einn munað, og hann er sá að drekka eftirmiðdagskaffið á Hótel Borg við og við. Ég kom þangað fyrst til að svipast um, skoða fólkið, sem þarna sæti og verða einhvers fróðari um háttu þess. En ég varð einskis fróðari. Sama fólkið kom hér dag eftir dag, viku eftir viku og settist við sömu borðin, eða næsta borð við sama borðið, og sömu auð- sveipu þjónarnir gengu um beina. Gestirn- ir reyktu, röbbuðu saman, borguðu og fóru. Og svo var komið kvöld. Einu sinni reiknaðist mér til, að álíka f járupphæð væri borguð fyrir nónkaffið á Hótel Borg, og ríkið geldur í daglaun sextíu vegamönnum og tuttugu malarhestum norður á Holta- vörðuheiði. Kannske hefði þessi útreikn- ingur ekki staðist gagnrýni endurskoð- enda. Svo fekk ég þennan makalausa áhuga fyrir pylsuvögnunum við Lækjartorg. Þar stóð ég kvöld eftir kvöld, og stundum langt fram á nætur til að virða fyrir mér andlitin á viðskiptavinum pylsusalanna. Það var mjög interessant að heyra glamrið í fimmeyringunum, og virða fyrir sér ópin og skrækina í hálfvöxnum götustrákum. Og svo allt þetta fólk, sem kom ak- andi í bilum til að kaupa sér pylsur. Ég þekkti það ekki þá, en ég kynntist því síð- ar, og enn fer það akandi ofan í bæ til að kaupa sér pylsu á kvöldin. Alltaf sama fólkið. Þegar ég yfirgaf pylsuvagnana, tók ég að rölta um höfnina, ganga fyrir hús- horn og hlusta á hvíslingar sprúttsalanna og hrollköld blótsyrði verkamanna, sem berja sér á hafnarbakkanum og spýta mó- rauðu út í stjörnubjarta nóttina, á meðan þeir bíða eftir skipi, sem þeir eiga að fá vinnu við að afgreiða. Stundum nestaði ég mig með morgunkaffi og drakk það í verkamannaskýlinu með það fyrir augum að kynnast lífsskoðunm þeirra manna, sem með nokkrum rétti líta svo til, að þeir heyi erfiðari lífsbaráttu en fólk í öðrum séttum þjóðfélagsins. Og ekki get ég neitað því, að ég varð margs vísari um uppruna og lífskjör Eyrarmannanna, en sögur þeirra voru svo líkar, að þær runnu saman í eina hversdagslega raunasögu, sem ég kunni. Og nú er höfnin og verkamannaskýlið horfið mér inn í tómleika vanans, og nú geng ég hugsunarlaust um þessar slóðir og því aðeins, að ég eigi þangað brýnt er- indi. * Fyrir nokkrum dögum kom til mín unglingspiltur ofan úr sveit og dvaldi hjá mér í nokkra daga. Hann hafði aldrei fyrr komið til Reykjavíkur og enga borg séð, er um stærð og fólksfjölda þyldi nokkurn samjöfnuð við okkar kæru höfuðborg. Er við gengum eftir Austurstræti fyrsta kvöldið, sem hann var hér, þaulspurði hann mig um allt, sem hann sá, himinfall- inn af mikilleik umhverfisins, þessari þrot- lausu fólksmergð og glæstu byggingum, þessum ljósum prýddu og skreyttu verzl- unargluggum, sem þrátt fyrir kreppu og sívaxandi dýrtíð, gjaldeyrishömlur og

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.