Vikan


Vikan - 25.01.1940, Blaðsíða 14

Vikan - 25.01.1940, Blaðsíða 14
14 VIKAN, nr. 4, 1940 undir skipinu. Við tökum allir til að horfa fyrir borð til að glöggva okkur á þessu, og komust við að raun um, að hér myndi vera hvalfiskur einn mikill, er lægi á hvolfi og sneri kviðnum upp undir kjölinn. Við sáum, hvernig hann bærði sporðinn aftur undir stýrinu og sló á okkur óhug. Formaðurinn skipaði að draga upp línur og róa dálítinn kipp til hliðar. Er við höfð- um róið nokkurn spöl sáum við, að skepna þessi veitti okkur eftirför og hélt sér stöð- ugt í sömu stellingum. Nú var tekið það ráð að snúa skipinu í hring og þvert úr leið, en það hafði engin áhrif. Þá var ausið blóðvatni úr skipinu til þess að grugga sjóinn, því að hvalfiskar fælast óhreint vatn. En ekki bar sú herkænska heldur tilætlaðan árangur. Þetta hvíta ferlíki fylgdi bátnum jafnt og þétt og hélt sig á tveggja metra dýpi undir kjölnum. Nú voru góð ráð dýr. Ef hvalurinn hreyfði sig, var úti um okkur. Dettur þá öðrum andófsmanninum það snjallræði í hug að grípa jámkrók einn mikinn og dangla hon- um í keipa skipsins, svo að söng í. Þetta gjalla málmhljóð hafði bráðverkandi áhrif á hvalinn. Eftir skamma stund kom hann upp á yfirborð sjávarins út frá miðju skipi og neytti allrar orku til að fjarlægjast okkur sem mest. Þetta var 15—18 metra langur hvalur af þeirri tegund, er gamlir menn nefndu „katthveli" vegna þess, að þeir virtust hafa svipaða tilhneigingu og kettir, þannig að vilja nudda sér utan í skip eða annað, sem á vatni flýtur. Þetta er eina ævintýrið, sem ég lifði á sjómennskuámm mínum, og einn sá at- burður, sem mér er minnisstæðastur. Vorið 1887 fór ég vistferlum frá Stóra- Núpi að Ólafsvöllum til séra Brynjólfs Jónssonar. Þar var ég í fjögur ár, og bar fátt markvert fyrir mig, nema helzt ein vetrarferð til Reykjavíkur. Það var fyrir jóhn 1889. Vetur var þá harður og fann- kyngi mikið. Mesti sægur af rjúpu var þá í Vörðuf jalli þennan vetur og gengu marg- ir til rjúpna. Þá var vinnumaður hjá Haf- liða á Birnustöðum maður sá, er Helgi hét. Hann var afbragðs rjúpnaskytta og hinn ötulasti maður til allra verka. En þar sem harðindi voru mikil og fénaður allur á fullri gjöf, varð Hafliði að fá mann í lið með vinnumanni sínum til að draga rjúp- umar á sleða til Reykjavíkur. Var ég feng- inn í þá ferð, og lögðum við af stað með stóran gegningarsleða í eftirdragi, og mun æki okkar hafa verið um 5 vættir. Þennan dag fóm fleiri úr nágrenninu í sömu er- indagjörðum til Reykjavíkur, en við Helgi urðum þeirra lítið varir nema á áfanga- stöðum. Fórum við sjónhendingu yfir Merkurhraun og beina leið milli Hjálm- holts og Brunastaða í Flóa, tómar vegleys- ur, því að veður var bjart og hvergi sást örla á þúfu. Fyrstu nóttina létum við fyrir- berast í Fossbæ í Ölfusi, og var sú dagleið stutt. Ekki sáum við okkur fært að fara lengra, því að snjó setti að, er rökkva tók. Morguninn eftir héldum við leiðar okkar og komumst þann dag að Kolviðarhóli. Þá var Kambavegurinn enn ólagður, og varð maður að sniðskera götur, sem vom svo krókóttar, að helzt mætti líkja við högg- orm. Sóttist sú brekka seint og var erfið. Sleðinn lá alltaf í dráttartaugunum, þó að við vildum nema staðar til að hvíla okkur stundarkom. Er upp á Kambabrúnina kom, höfðum við Helgi dregizt svo aftur úr með rjúpna- ækið okkar, að við sáum ekkert til sam- ferðamanna okkar. Holdvotir komum við um kvöldið að Kolviðarhóli. Bleytuhríð hafði gert á fjallinu, og þar sem við kom- um síðastir þeirra, er leituðu náttstaðar á Kolviðarhóli þetta kvöld, urðum við að gera okkur að góðu að leggjast blautir til svefns á gólfi. Öðru var ekki til að dreifa, og máttum við þakka fyrir húsaskjólið. Ég fékk einhverjar tuskur til að breiða undir mig á gólfið, lét malpokann undir höfuðið og sofnaði án þess að neyta nokk- urs. Eg var of aðframkominn af þreytu til þess að hafa matarlyst. Morguninn eftir vaknaði ég við það, að Kristín húsfreyja ber næturgestunum morgunkaffi. Verð ég þess þá áskynja, að ég get mig hvergi hrært, ég var gjörsam- lega stirðnaður eins og lík. Með mikilli áreynslu tókst mér að koma húsfreyjunni í skilning um það, að ég óskaði eftir heitu kaffi og tveimur staupum af brennivíni. Á meðan hún sótti kaffið, reyndi ég að mumra mér úr stað, velta mér á hliðarnar og liðka á mér hendur og fætur. Nokkurt afl kom þá í líkamann og svo, að ég gat drukkið kaffið, þegar það kom. Hresstist ég þá svo, að ég gat staðið upp, og þá var maður auðvitað talinn ferðafær. Eitthvað bragðaði ég á nesti mínu áður en við lögð- um af stað, en það var lítið. Þennan dag komumst við við illan leik að Árbæ, því að sleðafæri versnaði, er á daginn leið, vegna bleytu og krapahríðar og það er ekkert þægilegt að draga þungt æki í slíkri færð. Loks komumst við til Reykjavíkur og urðum við að draga sleðann á auðu frá Ár- bæ niður að Thomsens Magasíni í Hafnar- stræti, en þar lögðum við inn rjúpurnar og fengum 25 aura fyrir hverja. Við Helgi stóðum hér við í tvo daga til að reka ýms erindi, sem okkur voru falin, og kaupa nauðsynjar til jólanna. Þessar nætur gisti ég á heimili Jóns heitins Péturssonar há- yfirdómara, því að þangað skilaði ég bréf- um frá séra Brynjólfi. Frú Sigþrúður, síð- ari kona Jóns, bar mjög móðurlega um- hyggju fyrir því, að mér liði sem bezt. Bað hún mig ávallt að muna sig um það að mæta við allar máltíðir og eins á kaffi- tímum. Blessuð sé minning hennar! Hún fór þess á leit við mig, hvort hún „mætti ekki eiga ráð á mér“, ef ég færi frá Ólafs- völlum, en ég var þá illu heilli vistráðinn næsta ár, ég segi illu heilli, vegna þess, að ef ég hefði ráðizt til frú Sigþrúðar, væri ég kannske fyrrverandi, háæruverðugur kaupmaður hér í Reykjavík, því að þá höfðu synir hennar, Friðrik og Sturla, fyrir skömmu byrjað hér verzlun og lék þeim hugur á að fá mig í þjónustu sína. Eitt erindi, sem ég skyldi reka í þessari ferð, var að taka á móti fjögur hundruð krónum hjá Áma Þorsteinssyni land- fógeta, en það var lífeyrir til Eiríks danne- brogsmanns á Reykjum á Skeiðum. Eg sótti peninga þessa til landfógeta og kvitt- aði fyrir þeim. Sumt var í seðlum og nokk- uð í silfri. Peningunum kom ég fyrir í veski og stakk því í brjóstvasa minn. Ég hafði aldrei haft slíka fjárupphæð handa á milli og fann til mikillar ábyrgðar yfir að varðveita féð. Svo lögðum við Helgi heim á leið í glaða- tunglsljósi löngu fyrir dag. Við drógum sleðann okkar áfanga fyrir áfanga og vor- um komnir upp að Kolviðarhóli fyrir há- degi. Þar átum við nesti okkar, hresstum okkur á brennivíni og héldum svo á f jallið. Er á Kambabrún kom, tók að drífa niður lognmjöll og bar niður mikinn snjó það, sem eftir var dagsins. En við höfðum ákveðið að komast austur yfir Ölfusá þann dag og gerðum það. Um kvöldið komum við að Selfossi, báðum um gistingu og fór- um úr vosklæðum. En þá brá mér illa í brún. Peningaveskið var horfið úr vasan- um, og vasinn botnlaus. Ég fór að hugsa um, hvenær ég hefði orðið veskisins var síðast og það hafði verið undir Ingólfs- fjalli. Það vissi ég fyrir víst. Öll leit var fyrirsjáanlega árangurslaus. Uti var nátt- myrkur og mokandi hríð, svo að jafnóðum fennti í slóðir. Urvinda af þreytu sofnaði ég í öngum mínum, og mun ég hafa gleymt að lesa bænirnar mínar þetta kvöld. Hug- ur minn snerist allur mm peningaveskið og þjónustu mína, sem ég bar þungum sök- um fyrir að hafa gengið illa frá vasanum. Það mega þjónustur allra tíma vita, að vasar eru til að geyma og halda því, sem í þá er látið. Daginn eftir komumst við Helgi heim til okkar með jólavarninginn. En ég var raunamæddur eftir peninga- hvarfið og tók ekki á heilum mér yfir jólin. Fór ég í skyndingu upp að Reykjum til að segja frá óhappi mínu og mætti þar miklum skilningi og stillingu. Nú liðu tveir mánuðir, og aldrei gekk ég svo til hvílu eða vaknaði að morgni nokkurs dags, að ekki væri mér æ í hug peningaveskið. Á Góu var ég sendur með áburðarhest niður á Eyrarbakka eftir mat- vörum. Kom ég þar að máli við gamlan kunningja, Pál í Nýjabæ. Er við höfðum rætt saman skamma stund, segir Páll: — Heppinn varstu, að peningamir skyldu finnast. Mér brá og hitnaði um hjartaræturnar. Ég starði á Pál og spurði, hvað hann ætti við, eða hvort hann væri að draga dár að ógæfu minni. En hann kvað það fjarri sér, og sagði mér, að Þórarinn á Selfossi hefði fundið veskið á eystri bakka Ölfusár, er hann var að vatna þar fé. Nú sá ég ekki lengur ástæðu til að rengja Pál, enda þekkti ég hann að sannsögli. Klyf jaði ég nú hestinn í skyndingu og bað Framh. á bls. 19.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.