Vikan


Vikan - 25.01.1940, Side 4

Vikan - 25.01.1940, Side 4
4 VIKAN, nr. 4, 1940 tolla, eru yfirfullir af girnilegum vörum. Sveitapiltinum verður strax mjög starsýnt á þessa glugga. I fyrsta lagi taka þeir fram öllum gluggum, sem hann þekkir um allt skraut, hagleik og ljósadýrð. Og svo er það vöruverðið. Hann miðar allt við af- urðasölu frá búi föður síns. Lambsverðið er sá grundvallargjaldmiðill, sem hann þekkir bezt. I fyrra haust fékk faðir hans kr. 16.79 til jafnaðar fyrir hvert lamb, sem hann rak til blóðvallanna. Og hér kostar ein manchettskyrta, að vísu mjög lagleg skyrta, kr. 18.85. Pilturinn er skyrtufár og hann langar til að kaupa þessa skyrtu, en honum hrís svo hugur við verðlaginu, að hann getur ekki orða bundist og segir: „Hún er dýrari en lambhrútur!“ Svo göngum við lengra eftir götunni og staðnæmumst við annan búðarglugga. Þar sér hann rykfrakka, sem hann langar til að eignast, en frakkinn sá kostar 167 krónur. Það er ekkert viðlit. Og hann hefir samanburðartöluna á reiðum höndum, því að á liðnu vori hafði á ein í landareign föður hans verið gerð laxgeng. Þær um- bætur höfðu kostað 200 krónur, 'ásamt nökkur þúsund laxaseyðum. Með nokkru yfirlæti fer hann mörgum orðum um það, hvernig hann og bræður hans breyttu far- vegi árinnar, til þess að geta framkvæmt miklar dynamitssprengingar á klöppum, er höfðu myndað flúðir í ána, sem laxinum var ofraun að komast yfir. Og eftir allt þetta var ekki nema von, að dregnum fynd- ist frakkinn dýr. Fram undan okkur er ljósaauglýsing á þekktri hárgreiðslustofu, ásamt smekkleg- um sýningarglugga ýmissa snyrti- og feg- urðarlyfja. Þótt undarlegt megi virðast hafði þessi piltur aldrei heyrt getið um hárgreiðslustofur og var alls kostar ófróð- ur um þýðingu þeirra. Er ég reyndi að xniðla honum af hárgreiðsluþekkingu minni, lét hann vanþóknun sína í ljós og hélt, að þær myndu nú hafa tíma til að greiða hár sitt þessar ungu stúlkur, sem hefðu tíma til að labba hér fram og aftur í fullkomnu auðnuleysi. Auðvitað spurði hann, hvað það kostaði, að láta greiða hár sitt, og ég svaraði, að eftir því, sem ég bezt vissi, þá kostaði permanent- krullur 20 krónur á síðu hári, en 15 kr. á drengjakolli, lagning 2.50 og hárþvottur 1 krónu. 1 bili varð drengnum svarafátt. En þegar hann kom til sjálfs sín aftur, spurði hann, hvað viðhaldskostnaður eins konuhöfuðs í Reykjavík væri þá á ári, og gat ég mér til, að að meðtöldu púðri, smyrslum, hárvötnum og farða væri lágt í lagt, að slíkur kostnaður væri 150 kr. — Já, ekki nema það þó, svaraði dreng- urinn. — Það er tíu krónum minna, en við borgum í ársleigu eftir jörðina okkar, jörð með átján dagsláttatúni, sem gefur af sér 200 hesta í töðu og 400 hesta í útengja- heyskap. Við göngum fram hjá skóverzlun og rennum augunum yfir þær vörur, sem eru til sýnis í búðargluggunum. Þar eru karl- mannaskór, og þeir kosta 29 krónur, mínus Tómas Guðmundsson: Samtal við drottinn I gærdag kaus ég helzt að vera horfinn til þín, drottinn, því hjarta mitt var aldrað og dapurt eins og gengur, og enginn minna vina hafði tíma til að gleðjast, svo ég taldi alveg vonlaust að dvelja hérna lengur. Og það er ekki gaman fyrir þann, sem trúði á lífið og þóttist bera æskunnar myrtus-krans um enni, að hafa farið tvítugur að hátta seint að kvöldi, en hrökkva upp að morgni og vera gamalmenni. En loks er ég þó viss um, að ég er ungur aftur, því ennþá finnst mér lífið jafn dularfullt og skrítið, og ennþá myndi’ ég líklega fagna því að falla í freistni — og eiga kost á því að hrasa ofurlítið. Svo á ég líka fjöldamargt eftir hérna megin til að elska, þrá og dást að, og hóp af góðum vinum. En auk þess veiztu, drottinn, að ég hefi einatt haft þig í huga — einkum síðari partinn af mánuðinum. Og þó ég geti búist við að brostið hafi á það, að bæn mín væri stundum af nægu trausti sprottin, þá fannst mér líka árangurinn einatt vera lítill, svo við urðum báðir leiðir á þessu kvabbi, ó, drottinn! En jafnvel þó ég feginn vilji fara til þín seinna, þá finn ég, eins og sakir standa, enga þörf að kvarta, því hnötturinn, sem þú gafst mér, er sennilega ekki síður í samræmi við lítið en glatt og jarðneskt hjarta. En hitt er annað mál, og þú sérð það sjálfsagt líka, að sízt er það af andúð gegn himnaríki þínu, þó barn þitt hafi tekið nokkra tryggð við veslings hnöttinn og treysti sér að dvelja þar um stund að gamni sínu.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.