Vikan


Vikan - 16.01.1941, Blaðsíða 7

Vikan - 16.01.1941, Blaðsíða 7
VIKAN, nr. 3, 1941 7 ÞÓRUNN MAGNÚSDÓTTIR: Að fagnaði með 5. herdeild Eg stakk peningi í gasmælinn, í sömu andrá heyrði ég hvin í gasvélinni og tendraði bláan loga. Þegar Ingiríður Rygg kom hafði ég með mikilli fyrirhöfn rutt vinnuborð mitt, sem var eina borðið í herberginu og alltaf þakið bókum, blöð- um og skrifpappír. Eftir að gesturinn hafði fengið nauðsynlegustu leiðbeiningar til að sitja í hinum virðulega, flosklædda, en því miður fótaveika hægindastól, sem mér hafði verið lánaður, settumst við að kaffidrykkju og borðuðum birkibrauð með ,,mömmu-marmelaði“. ----Ég ætla að skjóta hér inn í kafla um kynningu mína við Rygg-fjölskylduna í Horten. Árið 1933 komst ég í bréfasam- band við unga, norska stúlku í Horten, Álfhildi Rygg. Við skiptumst á myndum og hétum því að hittast eins fljótt og auð- ið yrði. Sumarið eftir dvaldi ég örstuttan tíma í Noregi, en gaf mér þó tíma til að fara til Horten. Það er lítill, snotur bær, vestanvert við Oslóf jörðinn. Álfhildur vissi um komu mína og beið mín á járnbraut- arstöðinni. Ég þekkti hana strax, þótt ég hefði aldrei séð hana áður. Hún var stór og hraustleg, brádökk með dökkjarpt, lið- að hár, klædd Vestfoldbúningi, hvítum lín- serk og ljósbláum bol og pilsi. Hún átti heima í hvítu timburhúsi í stórum trjá- garði. Ingiríður, systir hennar, lítil, grann- vaxin og hláturmild stóð uppi í stiga, sem hafði verið reistur upp að berjatré og var hún að tína ber í körfu, sem hún hafði hengt á eina trjágreinina. Ólafur, bróðir þeirra, sem stundaði verkfræðinám við há- skólann í Þrándheimi, var í sumarleyfi og notaði tímann til að mála utan hús móður þeirra. Ég tilfæri hér kafla úr dagbók minni: „ . . . Þegar við höfðum snætt morgun- verð, lögðum við af stað í mikinn leiðang- ur. Fyrst skoðuðum við Flotasafnið (Marinemuseum), þá vopnasafnið, þar sem morðtól frá ýmsum tímum eru geymd og þar næst hina stórfenglegu skipasmíða- stöð. Ólafur hefir unnið þama og kann því skil á öllum vélunum. Sá var nú í ess- inu sínu, þegar hann var að sýna mér hvemig þær ynnu. 1 þessari skipasmíða- stöð eru smíðuð herskip, kafbátar, tund- urspillar og flugvélar. Ég undraðist, hve mikið var smíðað þarna af skipum, sem einungis em notuð í hernaði. Við fórum um borð í herskip, sem lá á höfninni og að lokum skoðuðum við gamalt vígi. Það eru sögulegar menjar frá herskárri fortíð, en hefir varla aðra þýðingu. Hver ætti svo sem að ráðast á þennan litla, friðsæla bæ ? Og þó hefir hann mikið hernaðarlegt gildi, ef Norðmenn lenda í ófriði. En hamingj- unni sé lof, að það er ekkert útlit fyrir það . . .“ Molar úr minnisblöðum. (Þetta skrifaði ég í dagbókina mína í júlí 1934. Tæpum sex árum síðar stóð blóð- ugur bardagi við Horten). Næsta ár var ég í páskaleyfinu með Ryggsystrunum í litlu, vistlegu bjálkahúsi á skógivöxnum ás skammt frá Nykirke. Álfhildur var að lesa undir stúdentspróf, við höfðum því mjög hægt um okkur, fór- um samt í heimsókn á einn bóndabæ og lentum í þreyfandi myrkri í skóginum á heimleiðinni. I sólskini sátum við uppi á hæðinni ,,Vettan“ og horfðum yfir rauð og ljós- máluð bændabýli, hvíta kirkjuna, sléttur, sem líktust bylgjandi, fagurlitu flosi, ása klædda dökkum skógi. Rómantískustu sveitalýsingar Björnsons rifjuðust upp fyrir mér, er ég leit þessa friðsælu, fögru byggð. Þegar rökkvaði settumst við í kring um arineldinn og röbbuðum saman. Stofan var þægilega útbúin með legubekkjum og mjúkum stólum, undir einhverri sessunni var alltaf gervimús, sem tísti ámátlega í, þegax sezt var á hann: Á borðunum voru þverröndóttir dreglar og skrítnir vasar með hvítum blómum (hvitveis), sem við tíndum í skóginum og settum í rakan mosa, svo að þau visnuðu ekki eins fljótt. Bjálkahúsið hét ,,Hyggelia“, eigandi þess var föðursystir Álfhildar og Ingiríðar, kennslukona við hússtjórnarskóla í Osló. Hún dvaldi í bjálkahúsinu lengst af í sumarleyfum sínum og þangað hafði hún flutt ýmsa ættargripi og skapað sér þama vistlegt heimili með hlýjum, persónuleg- um blæ. Er við höfðum setið um stund og starað í aringlæðumar, kveiktum við kertaljós, en nú létum við alvarlegu bækurnar, sem við vorum að lesa í á daginn liggja óhreyfð- ar, en flettum þess í stað myndablöðum, lásum kvikmyndafréttir, dáðumst að litlu prinsessunum í Skaugum og teiknuðum „munstur“ í rúmenskar sparitreyjur handa okkur. Það vildi til að við Álfhildur pexuðum ofurlítið um stjórnarfarið í Þýzkalandi. Þýzk vinstúlka Álfhildar skrifaði henni langar lofgerðarrollur um foringjann og allt það mikilsverða skipulagningarstarf, sem hann hefði afkastað þjóð sinni til heilla. Álfhildur var að vísu ekki blindur nazismadýrkandi, en lofgerð þýzku stúlk- unnar hafði þó haft talsverð áhrif á hana. Síðar komst ég að því, að í Horten var einhver slæðingur af unglingum, sem voru að leika sér að því að vera nazistar. Ég fór nokkrum sinnum með Álfhildi á ritstjórnarskrifstofu „Horten Blad“s. Þar vann vinstúlka hennar, sem kölluð var gælunafninu Annekén. Hún var einhver ófríðasta stúlka, sem ég hefi séð og þar eftir hirðulaus um klæðaburð sinn, en leiftraði af greind og áhuga og var mjög vinsæl. Þegar hún var á gangi um götum- ar í Horten hafði hún varla við að heilsa með uppréttum armi og köllin: Heil og sæl! Heil og sæl! hljómuðu þvert yfir göt- ur og torg. Þessari fornu kveðju var hroða- lega misþyrmt af þeim, sem ég heyrði nota hana í Noregi, því að orðin voru borin fram hæl og sel. Ég tók nazistakveðjurn- ar í Horten fyrir unggæðishátt og gam- ansemi, því að yfirleitt fór lítið fyrir þeim stjórnmálaflokki í Noregi, þegar ég þekkti þar bezt til. Eitt sinn lenti ég á útifundi á Bragernestorgi í Drammen 1935. Þegar ég innti eftir því, hvers konar mannsöfn- uður þetta væri, var mér svarað því, að þetta væri bara Nasjonalsamlingen! Það sagði svo mikið sem að þetta þætti ekkert merkis þing. Enda munu ekki aðrir en nazistarnir sjálfir og ef til vill aðeins nokk- ur hluti þeirra hafa trúað því í þá daga, að þeir kæmust til valda í Noregi. — — Nú víkur frásögninni aftur að okkur Ingiríði Rygg frá Horten, þar sem við sitjum við kaffidrykkju í herberginu mínu í Skillebekk 1, Osló. „Hvað eigum við að gera, ekki getum við setið svona með hendur í skauti allt kvöldið,“ sagði ég. „Mér finnst afskaplega gaman að fara á farfuglafundi, en það er víst enginn fund- ur í kvöld,“ sagði Ingiríður. „Bíddu andartak, ég ætla að skreppa yfrum til frú Ohlsen og fá að sjá „Aften- posten“. „Það er skemmtun hjá Æskulýðssam- bandinu (Landsungdomslaget) í kvöld,“ sagði ég, þegar ég kom aftur. Hvorug okkar kannaðist við þetta nafn, en við héldum að þetta væri landssamband ungmennafélaga og töldum virðingu okkar samboðið að eyða kvöldinu í slíkum félags- skap. Ingiríður bjóst við að þetta Æskulýðs- samband hefði bækistöð sína í Bondeheim- en, en þegar þangað kom var þar venju- legt kaffihúskvöld og látlaust aðstreymi af fólki. „Það er „dueslipp“, þ. e. vinnukonufrí- dagur, var mér svarað, þegar ég spurði hvers vegna svo margt væri þar um mann- inn. 1 Bondeheimen var okkur vísað á eitt- hvert sveitamannamötuneyti og sagt að við mundum geta fengið upplýsingar þar um samkomustað Æskulýðssambandsins. Eft- ir töluverða snúninga fundum við í kjall- arasal einum fólk það, sem við vorum að leita lags við. Þá leyndi sér ekki, hvar við vorum í flokki staddar. Á veggnum bak við ræðustólinn var strengdur fáni Ólafs helga, gulur kross á rauðum grunni. Þetta var fáninn, sem Nasjonalsamlingen beitti sér fyrir að tekinn yrði upp sem þjóðfáni Norðmanna. Framhald á bls. 10.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.