Vikan


Vikan - 06.02.1941, Síða 5

Vikan - 06.02.1941, Síða 5
VIKAN, nr. 6, 1941 5 W Ast og hjónaband. SMÁSAGA eftir WILMA SHORE Allar stúlkur, sem ólust upp í Bronx og vildu vinna fyrir sér, vissu, að þær myndu annað hvort verða kennslukonur eða hraðritarar. Millie Pa- tron var engin undantekning, og löngu áður en hún hafði lokið skólanámi, var hún ákveðin í, hvað hún ætlaði að gera. í fyrsta lagi vissi hún, að hún var ekki nógu lagleg til þess að geta verið kennslu- kona, nema þá að þræla baki brotnu; og í öðru lagi vissi hún, að ekki myndu líða nema fá ár, þangað til hún giftist. Það var undarlegt, hvað hún var viss í sinni sök, því að hún var alls ekki lagleg. Hún hafði fallega hvíta húð og fallegt hár, skólasystkinin kölluðu hana Glókoll, en þegar hún keypti sér súkkulaði á veitinga- skálanum á kvöldin, stríddu þau henni á því, hvað hún væri feit. En henni var sama. Henni var alveg sama, þó að henni væri strítt. Og auk þess þótti henni gott súkku- laði. Hún þóttist viss um, að tvö þrjú pund til eða frá myndu ekkert gera til, ef einhver vildi giftast henni á annað borð. Þegar hún var búin í verzlunarskólan- um, fékk hún móður sína til þess að gefa sér pen- inga fyrir nýjum hatti, og fór svo að leita sér að at- vinnu. Eftir viku leit tókst henni að fá vinnu á skrif- stofu. Húsbóndinn var viðkunnanlegur miðaldra maður, sem ekki vildi borga mikið kaup, en gerði heldur ekki miklar kröfur. Hún eignaðist kunningja á meðal starfsfólksins, og keypti sér heklunál og nóg garn til að hekla sér rúm- teppi yfir hjónarúm. Þegar hún var búin að vera tvö ár á skrifstofunni, giftist starfsystir hennar. Millie varð einkaritari húsbóndans, og önn- ur stúlka var fengin í hennar stað. Hún lauk við rúmteppið og byrjaði á serviett- unum. Á kvöldin hitti hún ýmsa af strákun- um, sem höfðu verið með henni í skólan- um. En eftir því sem tíminn leið, urðu þeir færri og færri, og stundum urðu vinir hennar, sem giftir voru eða trúlofaðir, að hjálpa henni til að ná sér í dansfélaga. Millie var þetta full ljóst, hún var enginn kjáni, en henni var alveg sama. Henni þótti gaman að fara út og skemmta sér, en á bak við það var engin alvara. Eins og at- vinnan var gleðskapur í hópi félaga að- eins til að eyða tímanum, þangað til hún hitti þann rétta — manninn, sem hún ætl- aði að giftast. Jafnvel þegar hún var lítil stúlka, hafði hún vitað, að það eina, sem máli skipti í lífinu, væri að giftast, eignast heimili, ást- ríkan eiginmann, og ef til vill tvö eða þrjú börn, öðlast hið kyrrláta stöðuglyndi, sem einkenndi móður hennar. Hjónabandið var allt þetta, og það var líka eitthvað meira, eitthvað, sem hún gat ekki komið orðum að, jafnvel ekki við sjálfa sig, en hún fann það. Það byrjaði neðst í mjóhryggnum og það hafði hún líka gert. Auk þess átti hún rúmteppið og servietturnar og sex útsaum- uð handklæði. Hún sagði upp vinnunni með mánaðar fyrirvara. Forstjóranum þótti slæmt að missa hana og sendi henni dúk á eldhúsgólfið. Þau- leigðu sér íbúð, tvö herbergi og eld- hús, mitt á milli þess, sem þau höfðu áður átt heima hvort um sig og hún tók til við heimilisstörfin. Hún fór niður í Fjórtándu leiddi alveg fram í fingurgóma, eins og mjúkur, þungur straumur. Það var eins og að borða súkkulaði með rjóma. Hún hitti Lou sumarið, sem hún var tuttugu og tveggja ára. Hann var grann- vaxinn og lægri vexti en hún. Rödd hans var lág og hás, næstum því eins og hvísl. Hann var tuttugu og sjö ára, en leit út fyrir að vera eldri. Hún var sannfærð um, að hún elskaði hann, af því að í návist hans fóru um hana þessi sami mjúki, þungi straumur. Hún minntist á hann í bréfi til móður sinnar, þegar hún hafði þekkt hann aðeins í fjóra daga. „Hann er ágætur strákur,“ skrifaði hún, ,,og er prentari.“ Hann bað hennar tveim mánuðum síðar. „Við gætum giftzt,“,“ hvíslaði hann, „ef þú vilt . . . ég elska þig, Millie.“ Hann hafði sparað saman peninga, og götu til að kaupa sirsblúndur á hilluna á salerninu. Á kvöldin sátu þau með blýant og blað og reiknuðu út, hvað veggteppi mundi kosta eða, hvort þau ættu heldur að bíða með að kaupa það þangað til næsta ár og kaupa sér heldur betri hægindastól. Stundum skrapp hún til mömmu sinnar seinni part dagsins. Á morgnana fór hún á fætur til að taka til morgunverð handa Lou og hún naut þess, því að hún vissi, að hún hefði getað sofið. Eftir miðd'egisverðinn tók hún sér blað í hönd og lagðist upp í dívan og minnt- ist þess, hvernig hún hafði orðið að fara á skrifstofuna strax eftir matinn. Þetta var munurinn á að hafa sitt eigið heimili; þá gat maður 'gert það sem manni sýndist, ef maður hafði höfuðverk, gat maður legið fyrir allan daginn. En venjulega var hún ekki komin nema fram í miðja sögu, þegar

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.