Vikan


Vikan - 06.02.1941, Side 13

Vikan - 06.02.1941, Side 13
VIKAN, nr. 6, 1941 13 Ást og hjónaband. Framh. af bls. 6. sígarettuna, sem hún hélt á, en fann, að augu hans hvíldu á henni. „Hvað sagð- irðu?“ Hún saug djúpt úr sígarettunni. „Ég sagði nei. Hvað átti ég að segja annað? Hvers vegna ætti ég að fara að gleypa í mig kaffið á hverjum morgni og hlaupa svo af stað? Og sitja yfir ritvél allan dag- inn. Ég sagði henni, að ég kærði mig ekki um að fara að keppast við stimpilklukku á hverjum morgni aftur. Hvers vegna ætti ég að fara að vinna úti á meðan okkur skortip ekki beinlínis peninga? Ég sagði henni, að ég hefði nóg að gera heima. Því þá að fara að byrja aftur?“ „Auðvitað ekki,“ sagði Lou. „Það er alveg rétt. Auðvitað ekki . . .“ Einn morguninn, þegar þau sátu við morgunverðarborðið, leit hann á hana og sagði: „Heyrðu, Millie, þú ert farin að reykja nokkuð mikið.“ „Já, ég býst við því,“ sagði hún. Hún stóð upp og fór með diskana fram í eld- hús. Hann bar inn kaffibollana. „Af hverju reynirðu ekki að minnka það dálítið ?“ spurði hann. „Ég held, að það sé farið að gera þig taugaveiklaða.“ „Já, ég býst við því,“ sagði hún, og eftir stundarkorn fór hann fram og setti upp hattinn og fór í frakkann. „Jæja, vertu bless!“ kallaði hann úr forstofunni. „Bless!“ Hún lauk við að þvo upp, og þegar hún var búin að því, fannst henni hún ekki geta verið stundinni lengur inni og fór út til að kaupa til heimilisins. Það var kaldur og hráslagalegur vindur úti, sem smaug í gegnum kápuna, inn að beini. Henni var sárkalt á höndunum, en hún hafði ekki rænu á að setja upp hanzkana. Hún fór í nýlenduvöruverzlunina, græn- metisverzlunina og til kjötkaupmannsins. Það var sami gamli maðurinn, sem af- greiddi hana og venjulega. Hann var feit- ur, með slétt, búlduleitt og ljósrautt and- lit eins og ungbarn og gekk með gráan flókahatt. Hún leit í kringum sig. Allan tímann, sem hún hafði verzlað þarna, hafði hún aldrei séð búðina tóma. Hún varð undrandi, þangað til henni varð ljóst, að klukkan var ekki orðin níu. Kaupmaður- inn var að borða morgunverðinn. Hann drakk kaffi og á borðinu fyrir framan hann var stór kökubiti. Hann brosti til hennar. „Má bjóða yður bita, frú Berk?“ spurði hann. Hann var einhver útlendingur, með sítt, hrokkið hár, sem örlítið var byrjað að grána. Hún varð undrandi, en svo sá hún, að honum var ekki alvara og brosti. „Ég er búin að borða, þakka yður fyrir.“ „Þarna sérðu,“ sagði hann við stúlkuna, sem stóð við peningakassann. „Ég vissi, að ég myndi geta komið frú Berk til að brosa.“ „Þér hljótið að hafa séð mig brosa fyrr.“ Önnur kona kom inn í búðina. „Nei, þér eruð allt af svo alvarlegar,“ sagði kaup- maðurinn, og svo kinkaði hann kolli til hinnar konunnar. „Góðan daginn, frú Hall- oran, þér viljið fá góðan bita af steikar- kjöti?“ Hún tók kálfskjötið sitt og borgaði stúlkunni. Hún hafði svar á reiðum hönd- um en hætti við það og fór út. Næstu daga kom hún í búðina á sama tíma, og gamli maðurinn afgreiddi hana. Og svo einn morguninn, þegar hún vakn- aði, leið henni vel. Hún glettist við Lou við morgunverðarborðið og tók til verkanna með meiri starfsgleði en hún hafði gert í margar vikur. Úti skein sólin og þvott- urinn úti á snúrunni blakti í golunni. Hún skildi eftir opna gluggana, þegar hún fór út að verzla. Þegar hún kom til kjötkaupmannsins, bauð hann henni kaffi. „Ég drekk alltaf svart kaffi,“ sagði hún, og gretti sig um leið og hún leit á mjólkurlitað kaffið. „Hvers vegna?“ spurði hann. „Eru þér hræddar um, að þér fitnið?“ Hún kastaði lítið eitt til höfðinu. „Hvað haldið þér?“ „Nei,“ sagði hann, „þér þurfið ekki að óttast það.“ Hann sneri sér að gamla manninum, „heldurðu það?“ Hún leit niður og fór að athuga kjötið fyrir framan sig á borðinu. Hún fann, að hún roðnaði. „Ég ætla að fá þetta,“ sagði hún. „Látið mig fá góðan bita.“ „Þó það nú væri, frú Berk,“ sagði hann. „Ég skal láta yður fá bezta bitann.“ Hann tók vænan hryggjarbita. „Hvernig er þetta?“ „Allra vænsti biti,“ sagði gamli maður- inn. „Hver?“ sagði kjötkaupmaðurinn. „Frú Berk?“ Allir fóru að brosa, en hún gat það ekki, þó að hún vissi, að hún ætti að gera það. „Ég hélt, að þú ættir við frú Berk,“ sagði kaupmaðurinn og leit á hana. Gamh maðurinn hallaði sér fram yfir borðið. „Þetta er ekki staður fyrir prests- son,“ sagði hann og brosti íbygginn. „Hvað er athugavert við hann?“ sagði kaupmaðurinn hátt. „Frú Berk líkar vel hérna, er það ekki, frú Berk?“ Hann depl- aði augunum framan í hana. „Jú, jú,“ flýtti hún sér að segja. Svó þurfti hún allt í einu að flýta sér, tók pakkann sinn, borgaði og fór út án þess að líta á hann. Seinna um daginn komst hún að þeirri niðurstöðu, að hún þyrfti að þvo sér um höfuðið, og hún þvoði það úr sítrónuvökva og var lengi að greiða það. Lou tók eftir því, hvað hún leit vel út, þegar hann kom inn úr dyrunum um kvöldið. Og við kvöld- verðarborðið hafði hann orð á því aftur. „Þú ert svo falleg núna. Og það . .. það liggur svo vel á þér.“ „Vel?“ sagði hún. „Mér líður bara eitt- hvað svo vel í dag.“ „Þú lítur vel út,“ sagði hann. „Þú ljóm- ar öll. Ég er viss um, að það hefir eitt- hvað skemmtilegt komið fyrir þig í dag.“ „Eitthvað skemmtilegt?“ sagði hún. „Nei, það kom ekkert fyrir. Viltu meira kjöt?“ Hún var að skera handa honum kjöt, þegar henni varð það ljóst. „Ég fór bara í kjötbúðina," sagði hún eins og hún væri að tala við sjálfa sig. „Þú hefir fengið gott kjöt hjá honum,“ sagði Lou, en hún heyrði ekki, hvað hann sagði. Hún var að hugsa um það, sem hún hafði sagt. Hvaða máli skiptir það, hugsaði hún hvað k jötkaupmaður segir við mig ? Hvern- ig getur það haft áhrif á skap mitt? Og hún leit í kringum sig á dívaninn, vegg- teppið, lampann, gardínurnar, Lou. „Lou,“ sagði hún með hátíðlegum alvörusvip, hall- að sér fram á borðið og leit á hann. „Lou, ég ætti kannske að fara að vinna úti. Held- urðu það ekki? Fá mér einhvers staðar vinnu, eitthvað bara----.“ Og hún vissi, að hún sagði þetta einungis af því að hún gat ekki sagt, Lou, hvað er bogið við hjónaband okkar? Hún gat ekki sagt það við hann. „Hvað áttu við?“ hvíslaði hann. „Ég hélt, að þú ...“ Hann varð vandræðalegur á svipinn. Hann skildi þetta ekki. Hún skildi það ekki heldur. Það var hræðilegast af öllu. Flotastyrkur Bandaríkjanna og Japana. Kort þetta sýnir styrkleika- hlutföllin, sem amerískir hern- aðarsérfrœðingar álíta að séu á milli flota Bandaríkjanna og Japan. Vinstri töludálkurinn á myndinni sýnir skipafjölda Bandaríkjanna af hverri teg- und, en töludálkurinn hægra megin samsvarandi skipafjölda Japana. Skipategundirnar eru sýndar á miðri myndinni, efst eru flugvélamóðurskip, þá or- ustuskip, beitiskip, tundurspill- ar og kafbátar. u.s. , T y PE JAPAN1 6 ,, 13 BATTLEJHIP5 10 37 "—1—IttIjL ~CRCJI 44 197 OE5TROVER5 |4I 102 5U8MARINE5 74

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.