Vikan


Vikan - 13.02.1941, Blaðsíða 4

Vikan - 13.02.1941, Blaðsíða 4
4 VIKAN, nr. 7, 1941 hug minn allan, svo að öll mín gömlu áhugamál urðu brátt að víkja. Ég hafði engan tíma til að sinna hinum raunveru- legu vinum mínum, þeim sem þekktu mig og mátu mig sjálfs mín vegna. Vinkon- umar voru flestar giftar, og mér fannst líf þeirra dauft og tilbreytingarlaust. Þannig missti ég þessa gömlu vini einn á fætur öðrum, og þá sem ég eignaðist í staðinn, komst ég flesta í kynni við í sam- bandi við störf mín. Ég bauð heim til mín aðeins þeim konum og körlum, sem feng- ust við lík störf og ég eða ég gat haft gagn af. Þeir umgengust mig af sömu or- sökum. Utan þessa þrönga hrings var ég eins og úti á þekju. Milli tuttugu og fimm og fjörutíu og fimm ára aldurs, fékk ég mörg bónorð, sum frá mönnum, sem ég hefði auðveld- lega getað elskað. En ég vildi það ekki. í hvert skipti bar ég saman það, sem hjóna- bandið mundi veita mér og það, sem það mundi svipta mig. Ég yrði að hætta at- vinnu minni og ferðalögum þeim, sem henni fylgdu. Að giftast mundi vera sama fyrir mig og setjast í helgan stein. Þess vegna hafnaði ég því. Ég hafði ekki hugmynd um, hvað mat mitt á lífinu var orðið al- gerlega byggt á f járhagslegum sjónarmið- um og fjarri öllu kvenlegu eðli. Maður, sem eitt sinn hafði elskað mig, opnaði augu mín fyrir því, hvernig ástatt var um mig. Þegar hann bað mín, voru tekjur mínar meiri en hans. Ef ég hefði gifzt honum, hefði ég orðið að búa í lítilli borg inni í landi og laun hans hefðu ekki leyft, að ég léti eftir mér ýmislegt, sem mér þótti ég ekki geta án verið. Mér féll hann vissulega vel í geð og það olli mér sársauka að hafna honum. En ég gerði það — því að vinnan kallaði. Ég sá hann ekki í nokkur ár eftir þetta. Svo hittumst við af tilviljun í erlendri stórborg. Hann var kvæntur, átti heimili og hafði komið sér vel áfram í heiminum. Hann bauð mér að borða með sér hádegis- verð á hóteli. Er ég var í miðjum klíðum að segja honum frá starfi mínu, tók ég eftir því, að hann starði á mig og bros lék um varir hans og í svip hans þóttist ég sjá bæði gagnrýni og efasemi. Ég spurði, um hvað hann væri að hugsa. Hann hristi höfuðið og sagði ertnislega: „Áður fyrr fögur kona, en nú venjuleg- ur amerískur kaupsýslumaður." Ég hló að þessum orðum hans. En þó verkuðu þau á mig eins og mér væri gefið utan undir, af því, að þau sögðu mér óljúf- an sannleika. Ég sá nú, að starf mitt hafði tekið mig svo sterkum tökum, að það hafði fjarlægt mig konuhlutverki mínu. Áhugi minn á því og venjur þær, sem það hafði mótað, höfðu eyðilagt þá eiginleika kon- unnar, sem gera hana hæfa til að skapa heimili. Engin, sem miðar allt við sjálfa sig, er hræsnifull og einhliða, eins og ég var orðin, getur verið yndisleg og misk- unnsöm kona og móðir. En ég er ekki ein um það, að þjást vegna þess að hafa snúið öllum hlutum öfugt á þennan hátt. Ég þekki konu, sem hefir haft heppnina með sér eins og hinir fær- ustu karlmenn og þeir telja í hópi jafn- ingja sinna. Til þess að öðlast þetta stig, fórnaði hún bæði ást og giftingu. Áður fyrr var aðdráttarafl hennar mikið, nú er hún sextug og einmana og bitur í skapi. Hún á fallegt heimili, hefir þjónustufólk, launaðan félaga og gnægð fjármuna. „Ég mundi vilja fórna þessu öllu,“ sagði hún við mig fyrir skömmu, „ef ég gæti orðið þrjátíu og fimm árum yngri og fengið það, sem ég tapaði: tækifærið til þess að elska og giftast og eignast fjölskyldu." Aðra konu þekki ég, sem nú hefir náð þeim tindi, er einungis fáum konum auðn- ast að klífa. ITún hefir öðlast hið mesta brautargengi og heppni, sem fallið getur í skaut nokkrum manni eða konu. Hana skorti hvorki fegurð né gáfur, ekkert — nema ánægjuna. Hún hefir tvisvar gifzt og ætlað sér að yfirgefa starf sitt til þess að lifa f jölskyldulífi. Hjónabandið hefir í bæði skiptin farið út um þúfur, eftir því sem hún sjálf segir, vegna þess, að hún „gat ekki verið án þess að vinna.“ Aftur og aftur hefir hún hent sér út í hringiðu heimsins, aldrei unað sér hvíldar. Þotið úr einum stað í annan, önnum kafin og um- kringd af fólki, sem heyrði til þessu lífi. Börnin hennar tvö hafa farið úr heima- vistarskólanum á sumarheimilið. Hinir gömlu og góðu félagar hennar eru roknir út í veður og vind. Hún er enn á þönum, aldrei ein, en alltaf einmana og vel vitandi það, að hún er að ná þeim aldri, þegar halla tekur undan fæti. Það þarf ekki ann- að en líta framan í hana til þess að sjá, hve óánægð hún er með sjálfa sig. Þegar konan hefir áttað sig á þessu tví- skipta hlutverki, sem fyrirvinna og hús- móðir, getur verið, að henni takist að skapa jafnvægi á milli þeirra. En þegar ...................................... m ..1111111111111111111111^ Vitið pér pað? 1. Tír hverju var Gleipnir, fjötur sá, = er Fenrisúlfur var bundinn með ? 1 1 2. Hvenær réðust Italir inn í Ethi- l opiu (Abessiníu) ? 3. Hvað þýðir nafnið Abraham? i 4. Hver er þingmaður Vestur-Hún- | vetninga ? i i 5. Hvaðan er komið orðtakið ,,að = i leysast úr Læðingi" ? 1 6. Hver fann eyjuna Madeira og hvað þýðir orðið ? 7. Hvenær réðust Japanir inn í | Kína? i 8. Hver var Páll Vídalin og hvenær 5 var hann uppi? i 9. Hvenær gáfust Frakkar upp fyr- i ir Þjóðverjum ? i 10. Hvað heitir höfuðborgin í kon- . ungsríkinu Siam? 1 Í Sjá svör á bls. 15. /hiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|l||||||||ll|linil|||t^ ég heyri ungar stúlkur dásama þá mögu- leika, sem kvenfólk hafi nú til að stunda sjálfstæða atvinnu, eins og það sé það eina sáluhjálplega í lífinu, þá get ég ekki var- ist þeirri hugsun, að þetta jafnvægi eigi langt í land. Um daginn heyrði ég tvær þeirra, aðra einkaritara tuttugu og níu ára gamla, og hina auglýsingateiknara rúmlega tvítuga, halda því fram, að hjónabandið væri ekki svo þýðingarmikið fyrir „kvenfólk eins og okkur.“ Það væri annað, sem væri meira um vert heldur en að giftast og eignast börn. Þær hefðu starf sitt að annast, og þær ætluðu báðar að varast það að verða ástfangnar. Og önnur bætti við: „Það er skrítið. Karlmennimir eru skrítnir. Þeir geta ekki skilið það, að ef maður hefir áhuga á að komast áfram í starfi sínu, verður maður að vera við það öllum stund- um. Ég átti marga kunningjastráka, en ég er að mestu hætt að sjá þá, af því að þeir gátu ekki skilið, að ég gæti ekki verið til taks, hvenær sem væri, og að starf mitt gengi fyrir öllu. Mamma segir, að mig muni iðra þessa síðar. En hún er gamal- dags og skilur þetta ekki.“ Hinu ber þó ekki að neita, að ég þekki nokkrar konur, sem hafa leyst þetta tví- þætta hlutverk af hendi með öruggri stefnufestu. Ein þeirra giftist ekkjumanni, sem átti tvö börn. Af því að hún hafði fyrir móður sinni að sjá, hélt hún áfram vinnu sinni, sem ekki krafðist sérlega mikils af henni. Seinna fékk hún freist- andi tilboð um vinnu, sem var bæði skemmtilegri og betur borguð. En hún mundi hafa krafist meira af tíma hennar. Hún neitaði henni. „Gifting mín, og þær skuldbindingar, sem ég tókst á hendur með henni, voru mér meira virði,“ sagði hún, „en nokkur atvinna hefði nokkurn tíma getað orðið.“ Líf hennar hefir orðið ham- ingjusamt á öllum sviðum. Stjúpbörn hennar voru efnileg og þeim þótti vænt um hana. Þegar móðir hennar dó, hætti hún að vinna úti. Nú er hún um fimmtugt og nýtur farsælla samvista við mann sinn og á fjölda gamalla vina, sem hún aldrei hafði vanrækt vegna anna. Fyrir konur, sem verða að vinna, virðist mér þessi sam- ræming lykillinn að farsælli framtíð þeirra. Það er satt, að kona, sem á sæmilega efnaðan mann og engin börn, fær ekki nægileg verkefni handa sér innan veggja heimilisins. Ef hún á börn, kemur líka að því, að börnin eldast og þarfnast þá minni umönnunar. Fyrir konur, sem hafa tíma aflögu, eru til ótal verkefni, er ekki þurfa að verða þess valdandi, að þær fórni lífs- hamingju sinni þeirra vegna. Það er hægt að sinna á óeigingjarnan hátt ýmsum áhugamálum og hljóta að launum það, sem er meira virði en peningar. Það, sem ég að lokum vil segja er þetta: Mín skoðun er sú, að það sé ákjósanleg- ast fyrir konuna að giftast og eignast heimili og lífsförunaut, þótt föng séu ekki mikil, því að þá muni hún helzt öðlast hamingjuna — og aldrei vera einmana.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.