Vikan - 13.02.1941, Qupperneq 15
VTKAN, nr. 7, 1941
15
BRÉFIÐ.
Framh. af. bls. 7.
Risa-áveita.
og vita, hvort hún vildi ekki taka sig í
sátt, þegar hann væri búinn að segja henni
allan sannleikann.
Um kvöldið fann Hallur það svo vel, hve
hann saknaði Stínu mikið, hann fann ein-
hvern tómleika í sál sinni. Hann beið í
brennandi eftirvæntingu eftir að hitta hana
aftur. Þegar hann hlustaði á Útvarpið,
varð honum hugsað til þess, að nú væri
hún stödd í glaumi og gleði borgarinnar.
Ó, að hann skyldi ekki hafa farið með
henni, hugsaði hann. — En nú trufluðu
fréttirnar í útvarpinu hugsanir hans.
,,... Þetta voru fréttir frá Berlín. Þá eru
næst innlendar fréttir. Það slys vildi til
kl. rúmlega tvö í dag á farþegaskipinu
,,Bára“, er það var að koma til Reykja-
víkur, að stúlka féll fyrir borð og drukkn-
aði. Stúlkan hét Kristín Valbjörnsdóttir og
átti heima í Reykjavík. Orsök slyssins er
enn ókunn . . .“
Fólkið á Gili varð hljótt. Það leit hvert
á annað án þess að mæla orð. Hallur ná-
fölnaði. Hann gekk út og niður túnið á
Gili. Hann settist niður í lyngi gróna laut
í hvamminum rétt neðan við fossinn. Það
veit víst enginn orsök slyssins nema ég,
hugsaði hann og byrgði andlitið í höndum
sér og grét.
A mynd þessari er sýnd mikil stífla, sem gerð hefir verið nálægt Boulder City í Ameríku, vegna
stórkostlegra áveitufyrirætlana. Nýlega voru vatnslokur stíflunnar rejmdar og fóru þá um þær 225
milljónir lítra á mínútu og hækkaði yfirborð Colorado-fljótsins um eitt fet.
Allt í gamni...
— Af hverju er nefið á þér svona rautt,
frændi ?
— Það er af því, Pétur minn, að örlögin hafa
leikið mig svo illa.
— Og hefir það allt lent á nefinu, frændi?
— Þú kvænist konu, sem hefir 10 þús. kr. í
tekjur á ári og svo ætlarðu að telja mér trú um,
að það sé af ást!
— Já, ég elska peninga!
Svör við spurningum á bls. 4:
1. Hann var gerður ,,af dyn kattarins og af
skeggi konunnar og af rótum bjargsins og
af sinum bjamarins og af anda fisksins og af
fugls hráka,“ eins og segir í Snorra-Eddu.
2. 3. október 1935.
3. Það er hebreska og þýðir: Faðir hinna mörgu.
4. Skúli Guðmundsson.
5. Æsir gerðu fjötur, er þeir kölluðu Læðing
og létu Fenrisúlf reyna afl sitt við hann. Úlf-
urinn braut fjöturinn og leystist þannig úr
Læðingi.
6. Zarco, Portúgali, í byrjun 15. aldar, og gaf
henni nafnið Madeira (Trjáeyjan), af því að
hún var mjög víði vaxin.
7. 7. júlí 1937.
8. Hann var lögmaður og skáld, f. 1667, d. 1727,
og er sagt, að hann hafi 5 ára gamali ort
þessa vísu um hundinn Gaufara;
Gaufari situr gólfi á, j
gantalegur er að sjá, '
klórar upp úr krásir smá,
kynja stór er hundurinn sá.
9. 17. júni 1940. 'J /
10. Bankok.