Vikan


Vikan - 06.03.1941, Síða 13

Vikan - 06.03.1941, Síða 13
VIKAN, nr. 10, 1941 13 Þrjár konur — og þorpari. Framhald af bls. 4. „Einmitt það? Spyrjið hann, hvers vegna hann hafi farið til Evrópu.“ ,,Þér viljið þá ekki láta bréfin af hendi?“ „Nei, það getið þér reitt yður á.“ „Paul sagði svo sem, að það þýddi ekki. En ég sagði, að ég skyldi ná þeim.“ „Paul hafði rétt fyrir sér,“ sagði Bella. „Það er bara leiðinlegt, að hann skyldi ekki þora að koma sjálfur.“ Þá greip ég fram í. Ég gat ekki stillt mig lengur. Ég hafði mikla samúð með ungu stúlkunni. Hún var svo ung og svo hjálparþurfi. „Ungfrú Cassidy,“ sagði ég, „gerið svo vel að láta hana hafa bréfin.“ „Af því að hún kemur hingað og biður um þau,“ sagði hún. „Eruð þér frá yður?“ Ég reyndi að beita hana brögðum .. það var hálf lúalegt, það skal ég viðurkenna, en ég kenndi í brjósti um Jane, og því sagði ég: „Ungfrú Cassidy, þér kærið yður víst ekki um, að sagan um Rivers-Chailey ber- ist út — hvers vegna hann byrjaði að drekka? Ég á við þann hluta af sögunni, sem enginn annar þekkir.“ Augu Bellu urðu stór og hörkuleg og varir hennar skulfu. „Það var ekki mér að kenna, hvað sem hver segir,“ sagði hún. „Nei,“ sagði ég, „en Trush Ancott var víst ekki algerlega saklaus? Viljið þér, að ég segi sannleikann ?“ Það varð löng þögn. Svo sagði Bella: „Nú, það á að neyða mig til að afhenda bréfin ?“ „Nej,“ sagðf ég. „Það er aðeins kaup kaups.“ Hún náfölnaði. Ég sá, að orð mín komu illa við hana. „Gott og vel,“ sagði hún. „Eins og þér viljið. En þér skuluð ekki halda, að ég hafi neitt að óttast.“ Hún gekk að peninga- skápnum, opnaði hann og tók út bréfa- pakka sem bundið var um með seglgarni. „Gerið svo vel, sagði hún við Jane, „og guð hjálpi yður, ef þér eruð eins ástfangin í Paul Trenley og stúlkan, sem þessi bréf eru til.“ „Ég er ekki ástfangin í Paul,“ sagði Jane. „En ég þakka yður fyrir.“ „Þér skuluð ekki þakka mér, heldur þessum manni þarna,“ sagði Bella. „Og farið svo bæði og komið aldrei hingað aftur.“ Við gerðum eins og okkur var sagt, og þegar við gengum í gegnum salinn, sá ég, að augu Costigans loguðu af forvitni, og hann gaf mér merki um að koma til sín. En ég hristi höfuðið og fór út. „Nú skal ég fylgja yður heim, ungfrú Minnis,“ sagði ég. „Það er ekki vert, að þér séuð einar á ferð svona seint.“ „Mér mundi þykja vænt um að mega kynna yður fyrir Paul,“ sagði hún. Við gengum fram hjá nokkrum húsum, unz við komum að litlu veitingahúsi, og við fórum þangað inn. Þar voru fáir gestir. Hún gekk fyrir að borði, sem var úti í horni. Þar sat ungur maður. Hann reykti sígarettu, las blað og var með rauðvín á borðinu fyrir framan sig. „Þetta er Paul Trenley," sagði hún. „Paul, þetta er vinur minn, Measure skipstjóri.“ Paul Trenley var fríður maður sýnum, snyrtilega klæddur, en ekki geðfelldur. Hann var maður þeirrar tegundar, sem hanga í kaffihúsunum og bíða eftir tæki- færum; ef til vill stúlku, sem hægt var að fá lánaða hjá peninga. Hann var munn- stór, augun stór og tindrandi, hárið dökkt. Röddin var mjúk og bros lék um varir hans. Ég hefi aldrei getað fellt mig við svona menn. Mér varð strax Ijóst, hvernig maður hann var. Hann var einn þeirra óþokka, sem konur dást að. Landlaus sendiherra. Pólska sendisveitin í London hefir tilkynnt, að Jan Ciechanowski hafi verið útnefndur sendiherra í Bandaríkj- unum fyrir pólsku stjórnina, sem nú er land- flótta og hefir aðsetur í London. Hann var pólskur sendiherra í Washington á árunum 1925 til 1928 og tekur nú við af Jerzi Potocki greifa, sem sagt hefir af sér. Heinrich Peter Fassbender, tuttugu og þriggja ára gamall, játaði fyrir rétti í Chica- go, að hann hefði verið njósnari fyrir þýzku leynilögregluna bæði í Belgíu og á Spáni. áður en hann kom til Bandaríkjanna. Hann fékst þó ekki til að leysa frá skjóðunni, fyrr en honum hafði verið lofað, að hann yrði ekki framseldur Þjóðverjum. Hann lét eins og hann sæi mig ekki. Hann greip um hönd Janes og sagði: „Fékstu bréfin?“ Hún hló. Bláu augun hennar ljómuðu og hún brosti til hans. „Auðvitað fékk ég þau, Paul! Ég sagði það líka.“ Hún losaði hönd sína og tók bréfaböggulinn upp úr töskunni. „Hér eru þau, Paul,“ sagði hún. „Öll?“ Hún hnykl- aði brúnirnar. „Það vona ég að minnsta kosti.“ Paul losaði iim böggulinn og athugaði innihald hans. „Það ber ekki á öðru, Jane — þú ert ágæt. Þú ert hreinasta perla!“ Hann kyssti hana og hún stokkroðnaði. Ég horfði á hana og var þess fullviss, að hún hafði sagt Belle Cassidy ósatt. Hún var ástfangin af Paul Trenley. Ég kenndi í brjósti um hana. Nú sýndi Paul Trenley loks það lítillæti að veita því eftirtekt, að ég var nær- staddur. „Góða kvöldið, skipstjóri — hvað hétuð þér annars? Já, nú man ég það, Measure. Fáið ykkur sæti bæði og í glösin.“ Ég hafði ekki minnstu löngun til þess að setjast þarna, en Jane lagði hönd sína á handlegg mér og ég var eiginlega seztur áður en ég vissi af. Paul Trenley hellti í glösin og lék á als oddi. „Jane, elskulega stúlkan mín, þína skál! Skipstjóri, við drekkum skál elskulegustu stúlkunnar í heiminum — Jane Minnis.“ Við drukkum. Veslings Jane var blóð- rauð í framan og utan við sig. „Paul,“ sagði hún, „það er skipstjóranum að þakka, að ég fékk bréfin.“ Paul Trenley hneigði höfuðið lítillega í áttina til mín. „Og nú getur þú kvænzt Maureen, Paul,“ sagði Jane. „Jane,“ sagði hann, eins og ég væri alls ekki viðstaddur, „þú mátt ekki halda, að það hafi verið neitt sérlega háskalegt í þeim.“ „Nei, því hefi ég aldrei trúað.“ „Þegar maður er ástfangin,“ hélt Paul áfram, „eru ýms orð látin flakka, sem ef til vill hefði ekki átt að skrifa og það hefn- ir sín, er maður síðar kemst á snoðir um, að sú kona, sem skrifað var til, ekki var þeirra verð, og þar að auki ætlar að nota sér það, sem skrifað hefir verið, til þess að hindra það, að maður geti kvænzt stúlku, sem maður elskar.“ Jane hleypti brúnum. „Þetta skil ég ekki,“ sagði Jane. „Ef kona elskar mann innilega, ætti að þurfa meira en nokkur ástarbréf til annarrar konu til þess, að hún neitaði að giftast honum. Maureen er ekki svoleiðis, Paul.“ Paul Trenley greip hönd hennar. „Kæra Jane mín,“ sagði hann, „skilur þú það ekki, að það er ekki Maureen, sem ég ætla að kvænast. Það ert þú!“ Aumingja Jane rak upp stór augu, eins og hún vissi ekki, hvaðan á sig stæði veðrið, og ég sá, að hún var nærri farin að gráta. „Er . . . er það ég, sem þú ætlar að kvæn- ast, Paul?“

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.