Vikan


Vikan - 13.03.1941, Side 5

Vikan - 13.03.1941, Side 5
VIKAN, nr. 11, 1941 5 Ekkert okkar hafði fyrr komið í þessa þröngu götu. Við vorum heldur ekki viss um, hvernig okkur hafði borið þangað. Það var einkennileg gata. Götusteinarnir voru ósléttir, og háir húsveggirnir virtust slúta fram og nálgast hvorir aðra yfir höfðum okkar. Það var að verða kvöldsett og við geng- um spölkorn í skuggunum, sem sífellt voru að lengjast. Það var byggt fyrir annan endann á götunni og við áttum skammt eftir ófarið þangað. Ef til vill var það ekki nema eðlilegt, að menn hefðu flúið í hús undan rigningunni. En þó að komin væri nú uppstytta, var gatan mannlaus. Hurðir og hlerar voru vandlega lokuð og ekkert hljóð barst að innan. Ekkert heyrðist nema dropafallið af þökum og gluggakistum, og fótaskellir okkar við götusteinana. Hvar var allt fólkið? Og hvar voru allir sigar- ettustubbarnir ? Það var undarlegt. Það sást ekkert rusl á götunni. Hún var tand- urgljáandi eins og stofugólf. Engir sígar- ettustubbar, enginn maður, það var undar- legt. En ég jafnaði mig, þegar Mark og Richie klipu Grace, og hún fór að hlæja hásri röddu, svo að axlir hennar og þung brjóst- in hristust. Ég fór að klípa Midge. Hún skrækti, og brátt vorum við farin að klípa og hrinda hvert öðru, hlæja og kalla. Við vorum rauð í framan og hreyfingar okkar voru reikular og fálmandi. Mark tók utan um Grace og reyndi að taka hana upp, en hún var of þung og við hlógum þangað til tárin runnu úr augunum á okkur. Þá benti Richie allt í einu inn eftir göt- unni og tók sig út úr hópnum. „Ljósmyndari, ljósmyndari! “ kallaði hann. „Við skulum láta taka mynd af okkur.“ Það var í fyrsta skipti, sem við sáum hann. Hann var lítill og grannur og stóð í skugganum við enda götunnar. Við hlið hans stóð ljósmyndavél á þrífæti. Við hlup- um til hans og Richie hafði orð fyrir okkur. „Hvað kostar myndin?“ spurði hann. Maðurin yppti öxlum. Svo tók hann tré- flís upp úr vestisvasanum og fór að stanga úr tönnunum. Hann var dökkur í framan og loðinn á vöngum og með gamlan flóka- hatt dregin niður að augum. „Viltu ekki taka mynd?“ spurði Richie. „Hvað ertu að gera hér, ef þú tekur ekki rnyndir?" Maðurinn tautaði eitthvað og glápti upp í loftið. „Hvað sagði hann?“ spurði Mark. Richie leit um öxl. „Hann sagðist vera að bíða eftir að það dimmdi, svo að hann gæti farið heim.“ Það var bjánalegt svar. Þegar allt kom til alls, var maðurinn þó ljósmyndari. Myndavélin var gömul og begld. Grace gekk að hliðinni á Richie. „Segðu honum, að við viljum láta taka af okkur myndirnar áður en skyggir meira,“ sagði hún. ,Seg þú honum það,“ sagði Richie. „Hann heyrir eins til þín eins og mín.“ Það fóru einhver ónot um okkur öll. Hann hlaut að hafa staðið þarna á meðan við vorum að ^lllll 1111111111111111111111 II lllllllllt Illllll llllll 1111111111III111111110, Smásaga I eftir LEE FALK. | '4‘ 11111111111111111111 ■iiiiiiiiiii iii iii iii 1111111111111111111111111111111111 iii iii ii iii ii iiiiiiiiii'^ skrækja og klípa hvert annað. Hann stóð upp við steinvegg, sem lokaði fyrir götuna. „Það er of dimmt til að taka myndir,“ sagði ég. „Já, við skulum koma,“ sagði Midge. „Nei,“ sagði Richie. „Það er ekki of dimmt. Af hverju eigum við að fara? Ég vil fá mynd af mér.“ „Já, en það er bersýnilegt, að hann vill ekki taka af okkur myndir,“ sagði Mark. Ljósmyndarinn fleygði frá sér tréflís- inni, lagði hendurnar aftur fyrir bak og horfði framhjá okkur. „Eigum við að lumbra á honum og brjóta myndavélina hans?“ spurði Richie og leit til mín. „Ég hefi nú aldrei heyrt annað eins,“ sagði Grace. „Við erum ekki að biðja um að gefa okkur. Auðvitað borgum við mynd- irnar.“ Maðurinn leit á hana. Hann hleypti brúnum og nú heyrði ég í fyrsta skipti rödd hans. Hann var kverkmæltur og stirðmæltur, en ég var ekki viss um, hverr- ar þjóðar hann væri. Hann gat verið slaf- neskur eða ef til vill germanskur, eða sam- bland af hvoru tveggja. „Hvaða peninga hafið þið?“ spurði hann. Augun voru eins og mjó strik og það skein í gulan efri tanngarðinn. Richie tók smápeninga upp úr vasa sín- um og hringlaði þeim í lófa sínum. „Þetta eru ósviknir peningar. En við get- um ekki beðið lengur. Hvað kosta mynd- irnar?“ Maðurinn klóraði sér í hnakkanum og náði sér í aðra tréflís. „Fimm fyrir einn dollara. Sama þó að það séu einn eða fleiri á myndinni,“ sagði hann. „Einn í einu,“ sagði Richie. „Þessar litlu myndir taka okkur ekki öll.“ Maðurin gekk aftur fyrir myndavélina og gaut til okkar augunum. Svipur hans var eins ógeðfeldur og framkoma hans. „Hver er fyrstur?“ Richie hikaði, leit svo á Midge og mig. „Komdu, Midge, þú verður fyrst.“ Hún hristi höfuðið og ýtti mér fram. „Nei, Bert, far þú fyrst.“ Hún var bersýnilega hrædd við ljós- myndarann, þó að það væri ástæðulaust, því að við Richie vorum engir væsklar. Ég gekk fram fyrir myndavélina. Maðurinn gaut augunum til mín yfir kassann og spýtti svo upp á vegginn. „Jæja, láttu það ganga svolítið,11 sagði ég og það var glímuskjálfti í mér, eins og hann hefði byssu falda í kassanum. „Hve mörg?“ tautaði hann. „Bara ég, asninn þinn,“ sagði ég óþolin- móður. Hann brosti, en það var hvorki glettni né kæti í brosinu. „Hve mörg?“ endurtók hann, með sama undarlega kverkhljóðinu, sem virtist eins og gleypa orðin. Rockefeller-blóð handa Bretum. Winthrop Rockefeller, sonur John D. Rockefeller, yngri, læt- ur taka sér einn pela af blóði, sem á að nota við aðgerðir á særðum, brezkum hermönnum. Meira en 11,000 menn og konur i New York hafa látið taka sér blóð handa Bretum.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.