Vikan


Vikan - 13.03.1941, Qupperneq 12

Vikan - 13.03.1941, Qupperneq 12
12 VIKAN, nr. 11, 1941 legur. Cartwright er búinn að hringja til mín þrisvar, fjórum sinnum, til að spyrja um, hvernig gengi. Ég gat ekki gefið honum neinar upp- lýsingar. Hvað kemur til, að þú hringir til mín um þetta leyti nætur?“ „Jú, hlustaðu nú á pabbi." Mick talaði í þrjár, fjórar mínútur og reyndi að skýra málið sem gleggst. „Þannig er nú málum komið,“ sagði hann að lokum. „Ég er á lögreglustöðinni í Ban- bury, þar sem þeir eru allir fjórir vel geymdir. Ég geri ráð fyrir, að Scotland Yard sjái um afganginn. Sjálfur hugsa ég ekki um annað en, hvað ég eigi að gera næst. En ég vil ekki tala um það í símann. Það skeður margt undarlegt, og Lefty Vincent og þorparar hans hafa góða heym, ráð undir rifi hverju og nóga peninga." „Mér er ekkert um, að við skyldum taka að okkur þetta mál, drengur minn,“ sagði faðir hans. „Ef ég hefði vitað, að þú þyrftir blátt áfram að aka með dauðann á hælunum, mundi ég aldrei hafa tekið það að mér. Cartwright hefði líka eins getað snúið sér eitthvað annað.“ „Ég er ekki á sama máli, pabbi,“ sagði Mick. Hann bætti því ekki við, að hann væri einmitt að horfa á Clare Furness. „Jæja, þú ert nú allt af svo þrár, að það þýðir ekkert að stæla við þig. En ég þlakka til, þegar ég sé þig aftur hérna á skrifstofunni og málinu er lokið. Farðu nú varlega, Mick,“ „Því skal ég lofa. En ég þarf að biðja þig að gera dálitið fyrir mig, sem er mjög áriðandi. Þú veizt auðvitað bezt sjálfur, hvernig bezt er að gera það, en ég mundi ráða þér til að gera það í samvinnu við Seotland Yard. Þeir hljóta að hafa eins mikinn áhuga fyrir þvi og við. Ég veit, að þú verður hissa, þegar þú heyrir það. Maðurinn, sem stjórnar þessu öllu fyrir Lefty Vincent er Spider Harrison. Hvernig lízt þér á?“ „Það er ótrúlegt, Mick. Ég er hræddur um, að einhver hafi logið þessu að þér. Spider er allt of lítilfjörlegur til að geta tekið að sér svona verk.“ „Já, en það hlýtur nú samt að vera rétt, pabbi. Ég hefi nefnilega heyrt það, ekki úr einni átt, heldur tveimur. Og hvorugur vissi, að hinn hefði sagt mér það. Þeir voru báðir vissir í sinni sök. Sem sagt, ef þessar upplýsingar eru réttar, og þú getur brugðið fæti fyrir Harrison, held ég, að við getum leikið á Lefty Vincent. Hann veit auðvitað ekkert, hvað skeður á meðan hann er á leiðinni yfir hafið, og þegar hann kemur hingað, vantar hann allar upplýsingar. Hvað finnst þér?“ „Ég á bágt með að trúa þessu, Mick, en ég skal klæða mig undir eins núna og fara upp á lögreglustöð. Ef þetta reynist vera rétt hjá þér, skal ég koma Harrison fyrir, þar sem hvorki Vincent né nokkur af þorpurum hans geta fundið hann. Ég held ég viti, hvar við getum náð honum, nema ef Moffit litli hefir sagt honum eitthvað, og hann þá talið ráðlegast að koma sér fyrir á öruggum stað. Var það nokkuð meira, Mick, því annars vildi ég helzt komast sem fyrst af stað.“ „Aðeins eitt að lokum, pabbi. Stúlkan hefir lát- ið i ljósi þá skoðun, að London muni vera örugg- asti felustaðurinn fyrir hana, af því að hún sé algerlega óþekkt þar. Ég hefi hugsað mikið um þetta, og ég hefi komizt að þeirri niðurstöðu, að það muni ekki vera fjarri lagi. Stærð borgarinn- ar og fólksfjöldi gera það að verkum, að auðveld- ara er að felasigþar en viðasthvarannarsstaðar.“ VIPPA-SÖGUR Vippi í höndum rœningja. ----- Bamasaga eftir Halvor Asklov. - VIPPI vaknaði af værum svefni um miðja nótt. Að visu virtist allt með kyrrum kjörum í húsinu, en þó fann hann það á sérj að eitthvað óvenjulegt var á seyði því að gustur var í herberginu. Dyrnar út að svölunum hljóta að hafa hrokkið upp, hugsaði Vippi litli. En þetta var þó eitthvað undar- legt, því að Madsen kvikmyndastjóri var vanur að sjá um það sjálfur, að þessar dyr væru vel lokaðar. „Ekki dugir að láta þetta halda fyrir sér vöku,“ sagði Vippi við sjálf- an sig. „Hreint loft getur aldrei sak- að mig.“ Síðan sneri hann sér á hina hliðina og bjóst til að sofna aftur í rúminu sínu, þegar hann sá Ijósgeisla leika um herbergið og hreyfast upp og niður, eins og verið væri að leita að einhverju. Ljósið staðnæmdist ekki fyrr en það skein beint í augu hans. „Hvers vegna varpið þér leitar- Ijósi á mig, herra Madsen?" spurði Vippi og varð að loka augunum vegna ofbirtunnar. „Á ég að fara að leika í kvikmynd núna um hánótt ? “ „Uss!“ Einhver rödd, sem hann þekkti ekki, þaggaði niður í honum. „Farðu í garmana þina, en flýttu þér!“ „Á ég að klæða mig núna?" spurði Vippi. „Þarf að taka myndir á nótt- unum líka?“ ,Auðvitað! Flýttu þér nú! Geturðu fært þig í sjálfur?" „Það er naumast! Eins og ég geti ekki klætt mig sjálfur!" sagði Vippi og þótti virðingu sinni misboðið með svona spumingu. „Haldið þér ef til vill, að ég sé smábam?" „Þú ert að minsta kosti enginn risi,“ sagði maðurinn og bældi niður í sér hláturinn. „Hann Madsen kvikmyndastjóri hefir ekkert talað um þetta við mig. . .“ Vippi gat ekki talað út, því að maðurinn greip fram í fyrir hortum og sagði: „Þetta á að koma að óvörum! Hafðu ekki hátt. Það er engin þörf á því að vekja alla i húsinu." „Hvers vegna kveikið þér ekki venjulegt ljós?“ spurði Vippi. „Þú hefir ekkert að gera við meira ljós en þetta," svaraði maðurinn. „Jæja! Sparið þér þá ljósið!“ Með- an Vippi var að klæða sig í fötin, tók hann að hugsa betur um þetta og þótti það ærið grunsamlegt. „Mér þykir það undarlegt, að þér komið til að sækja mig svona um hánótt. Má ég spyrja ..." „Nei, þú mátt ekki spyrja, hvorki um eitt né neitt," svaraði maðurinn ógnandi röddu. Hann gekk nær Vippa, og allt í einu kom pípa í ljós og stefndi beint á vin okkar, sem var forvitinn eins og fyrri daginn og greip báðum höndum um pípuná og spurði: „Hvað er nú þetta?" Og svo gægðist hann inn í pípuna. „Ertu vitlaus! Gættu þín! Komdu ekki við hana! Veiztu ekki, , hvað þetta er? Það er byssa!" En Vippi hafði ekki hugmynd um, hve hættulegt verkfæri þetta var, svo að maðurinn varð óþolinmóður og tók Vippa og flýtti sér út með hann, ekki venjulega leið, heldur niður stiga, sem reistur hafði verið upp að svölunum. Skammt frá húsinu beið bifreið. „Allt í lagi, Georg!" sagði maður- inn, sem sótt hafði Vippa, við bíl- stjórann. Þeir óku af stað í mesta flýti, en Georg sagði: „Þú ert ekki lengi að því, sem lítið er, Steve!" Það var aðdáunarhreimur í röddinni. „Það gekk eins og í sögu!“ sagði Steve og var heldur en ekki hreyk- inn af sjálfum sér. „En að hverju ert þú að hlæja?“ spurði hann í geð- ilskutón, af því að Vippa fór allt í einu að skellihlæja. „Það er svo broslegt að sjá yður með þennan klút fyrir andlitinu. Eig- um við kannske að fara á grímudans- leik ?“ „Á þetta að vera fyndni?" rumdi í Steve, um leið og hann tók af sér klútinn, sem hulið hafði allt andlit hans nema augun. „Hvaða hlutverk leikið þér í kvik- myndinni?" spurði Vippi. „Hlutverk í kvikmyndinni ?“ spurði bílstjórinn glottandi. „Veiztu ekki i höndum hvaða þorpara þú hefir Vippi stökk upp á höndina á bílstjór- anum og beit hann. lent?“ En Vippi litli var svo saklaus, að hann skildi þetta ekki. „Já, þetta gekk betur en ég bjóst við,“ sagði Steve. „Ég þurfti ekki einu sinni að brúka byssuna." Hann stakk skammbyssunni í vasann. „Hvers virði er nú þetta kríli?" spurði bílstjórinn. „Honum verður ekki skilað aftur gegn minna en 10 þús. dollara lausn- argjaldi." Georg skellti með fyrirlitningu í góm. „Eg skil varla, að þessi pott- ormur sé svona mikils virði," sagði hann. „Blöðin segja, að hann muni verða frægasti leikarinn á þessu ári,“ sagði Steve, „svo að kvikmyndastjórinn, uppeldisfaðir hans, kemur til með að borga það, sem upp verður sett, til þess að fá hann aftur." „Hvað eruð þið að tala um?“ spurði Vippi. „Þig varðar ekkert um það,“ svöruðu mennirnir. „Víst varðar mig um það! Af hverju á kvikmyndastjórinn að borga peninga fyrir mig ? Ég er ekki til sölu.“ En nú leið ekki á löngu, þar til Vippi fór að skilja, hvað hér var um að vera, og þá var eins og honum rynni kalt vatn milli skinns og hör- unds. Hann hafði verið svo auðtrúa fífl að láta þessa þorpara ginna sig í gildruna. Mennirnir voru ekki leik- arar. Þeir voru vondir menn, sem höfðu rænt honum og ætluðu að kúga peninga út úr kvikmyndastjóranum. Vippi heimtaði að fá að fara út úr bílnum, en þorpararnir hlógu að honum. Þetta skal ég launa ykkur!" sagði hann fokvondur. Þeir óku fyrir horn og í sömu and- rá stökk Vippi upp á hönd bílstjór- ans og beit hann. Bílstjórinn æpti af sársauka og sleppti snöggvast stýr- inu, svo að bíllinn hentist upp á gangstéttina og nam þar staðar rétt við tærnar á lögregluþjóni, sem varð heldur byrstur á svipinn. Steve greip Vippa og stakk honum í vasa sinn, svo að lögregluþjónninn sæi hann ekki. Mennirnir tveir kepptust við að af- saka þetta framferði sitt, en lög- regluþjónninn spurði þá hverrar spumingarinnar á fætur annari. Alít í einu heyrðist skot inni I bílnum! Lögregluþjónninn flautaði á hjálp og skipaði mönnunum að rétta upp hendurnar og þeir þorðu ekki annað en hlýða. Þeir reyndu að sannfæra lögregluþjóninn um það, að þeir hefðu alls ekki skotið úr byssu og í þetta skipti höfðu þeir á réttu að standa. Vippi hafði lent í sama vasa og byssan og farið að eiga við gikk- inn og þá reið skotið af, en sem betur fór varð engin fyrir því. „Þið komið með mér á lögreglu- stöðina. Það er bannað að bera á sér skotvopn," sagði lögregluþjónn- inn. Þorparamir voru dauðhræddir. Þeir óttuðust, að Vippi kæmi upp úr vasanum og þá hefðu þeir engar af- sakanir og það mundi komast upp, að þeir höfðu rænt drengnum. En Vippi hreyfði sig ekki í vas- anum. Hann féll í yfirlið, þegar skotið reið af og hafði þess vegna . ekki hugmynd um, er hann fór með Steve og Georg á lögreglustöðina.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.