Vikan


Vikan - 13.03.1941, Blaðsíða 13

Vikan - 13.03.1941, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 11, 1941 13 Björn Guðmundsson: Þegar veturinn ríkti. \ Ef við lítum yfir sögu okkar Islendinga, sjáum við á ýmsum stöðum talað um harða vetur, sem stundum komu með skömmu millibili. Stundum hafa þeir komið hver á eftir öðrum og ekki einu sinni teljandi sumar á milli. Það voru ekki fellisvetur, heldur fellisár. Þá var aðstaða manna til að mæta slíkum vetrum öll önnur en hún er nú. Þá var ekki á annað að treysta en heybirgðirnar og þótti því flestum vissast að tefla ekki á neina tvísýnu með ásetn- ing að haustinu. Gömlu mennirnir vissu, hve norðarlega á hnettinum þeir voru staddir og hvers þeir máttu vænta af óblíðri vetrarveðráttu, þegar Fjallkonan var í sínum versta ham. Þeir höguðu sér líka að öllum jafnaði eftir því, sem reynsla liðinna ára hafði kennt þeim. Forsjálni bóndans og starfsþol höfðu mikið gildi fyrir hann. Hann vissi það, að framtíð hans og fjölskyldunnar allrar gat oltið á því, hvort hann dugði vel eða illa í hinni hörðu lífsbaráttu. En þegar tveir harðir vetur og grasleysis- og kuldasumar á milli herjuðu á garð bóndans, varð eðlilega fátt um varnir. Þá dugði skammt forsjálni hans og dugnaður. Þá var bjargarleysi fyrir dyrum og ekki um aðra leið að velja en að slátra búpeningnum ,eða láta hann falla að öðrum kosti. En fáir höfðu brjóst í sér til þess að horfa á slíkt. Sál fjár- mannsins var oft svo nátengd sauðarsál- inni, að þjáningar fjárins voru þjáningar sauðamannsins. Hann fylgdist allnákvæm- lega með líðan þeirra. Oft mun það hafa verið þannig, að þegar heybirgðir voru gengnar til þurrðar, var orðið mjög þröngt í búi með föng handa heimilisfólkinu og skortur fyrir dyrum. Nú er aðstaðan önnur, að því leyti, að hægara er að ná í ýmis konar fóðurbæti til þess að spara heyin eða jafnvel til að koma alveg í staðinn fyrir þau. Fyrir nokkrum áratugum var ekki um slík bjarg- ræði að tala. Á síðari áratugum hefir ekki verið mik- ið hér um harða vetur. Veturinn 1918 þótti kaldur. Þá var frostið stundum 30—40 stig C. Okkur mundi þykja það nokkuð mikill kuldi núna. Veturinn 1935—’36 mun tvímælalaust hafa verið með mestu snjóa- vetrum, sem komið hafa um langt skeið. Hann mun líka verða þeim minnisstæður, er þá voru á Norður- og Austurlandi. Sumstaðar settist hann að um veturnætur eða jafnvel fyrr, en á öðrum stöðum ekki fyrr en um jól. Þessi harðindi héldust svo, mjög undantekningarlítið, fram á sumar. Það var jafnvel komið fram í þriðju viku sumars, þegar kallast mátti sæmilega autt á láglendi. Svo var gaddurinn óhemju mikill og seinn til að fara, eins og skamm- degisgaddur er vanur að vera. Mátti heita að slétt væri af öllu, jafnvel árgilin voru full af gaddi. Allt var yfir að sjá sem ein snjóhvít hjarnbreiða, með steinum upp úr hér og þar. Víða voru þess dæmi, að lág og gömul bæjarhús færu allt að því í kaf og ganga varð niður margar snjótröppur, til þess að komast að dyrunum. Sumstaðar var jafnvel farið út og inn um gluggana, af því að ekki þótti tiltækilegt að halda við opnum gangi að dyrunum. Þegar nokk- uð leið á veturinn urðu sumir heylausir fyrir sauðféð, og margir þegar kom fram á útmánuðina. Það mátti þó heita gott, hversu menn stóðu sig í þessum harða bardaga, þegar tekið er tillit til þess, hvernig menn voru undir hann búnir. Hey- skapartíð hafði verið sæmileg, einkum um miðbik sláttarins og fram undir sláttar- lokin. Þá komu óvenjulega miklar rign- ingar á Austur- og Norðurlandi, sem máttu heita látlausar í 6 daga samfleytt. Ollu þær miklum vatnavöxtum og skriðu- hlaupum, er spilltu túnum, engjum og beitilöndum manna. Þó var það hvergi nærri aðalatriðið. Hitt var meira vert, að rigningin og eftirfarandi langvarandi óþurrkar gerðu það að verkum, að ekki var unnt að halda áfram við heyskapinn. Þar að auki ollu þær miklu tjóni á þeim heyjum, sem búið var að þurrka, ef þau voru ekki í ramlega járnvörðum hlöðum. En víða vantar mikið til ennþá, að þær séu til nema yfir lítinn hluta af heyjaforða manna í sveitum austanlands. Hinn gamli, þjóðlegi útbúnaður stenzt ekki slík ósköp, þegar allar flóðgáttir himinsins ljúkast upp. Þá vilja þau leka, torfþökin, sem prýtt hafa hús okkar frá því er fyrst var reist hér byggð og til skamms tíma. En nú eru járnþökin sem óðast að útrýma þeim, vegna sinna miklu yfirburða, þótt þau séu naumast eins hlý. Heyfyrningar frá undanfarandi vetri voru víðast hvar litlar, og það sem til var af heyi, var ekki gott, því að sumarið 1934 var með allra mestu óþurrkasumrum, sem komið hafa á Austurlandi um langt skeið. I sumum sveitum komu aðeins örfáir þurrkdagar allan heyskapartímann. Víða þurfti heyið að liggja 6—10 vikur frá því að það var slegið og þangað til hægt var að koma því inn. Þá var ekki fengizt um, þótt það væri ekki skrælþurrt. Má því nærri geta, hvernig fóður þetta hefir verið. Enda komust bændurnir að því fullkeyptu að fóðra á því. Þetta er þá í stuttu máli forsaga þess- arra harðinda, sem komu mörgum bónd- anum á vonarvöl. Þegar hey manna voru mjög að þrotum komin, var hafizt handa með útvegun fóðurbætis, til þess að bjarga við bústofninum. Það þurfti skjótra úr- ræða við, þar sem heyin voru svo til þurrðar gengin. En mönnum var það Ijóst, í hvert óefni var komið, og brugðust vel við hjálparbeiðninni. Einkum mun það hafa verið að þakka ötulli og óhvikulli baráttu þeirra Steingríms Steinþórssonar, búnaðar- rrtálastjóra og Páls Zophóníassonar að fóð- urbætirinn kom í tæka tíð til að bjarga bú- stofni manna á Héraði og í Vopnafirði. Að vísu var til allmikið af fiskmjöli í land- inu og var tekið fyrir útflutning á því. En það var bara hvergi nærri nóg til þess að fullnægja þörfum manna og hinni miklu eftirspurn. Það þurfti líka að kaupa mikið af korni frá útlöndum, og það kostaði ærið fé. En um það mátti vitanlega ekki fást, þar sem bústofn f jölda bænda var í veði. Flestar sveitir höfðu birgt sig upp með eitthvað af fóðurbæti um haustið, en þær birgðir gengu skjótt upp, þegar þurfti að spara heyið. Þó að það tækist að koma fóðurbætinum á tilsettar hafnir í tæka tíð, var það oft miklum erfiðleikum bundið fyrir menn að ná honum heim til sín. Þá átti víða eftir að flytja hann um langan veg á snjóbílum og sleðum. Ferðir þessar kostuðu mikið erfiði og þrautseigju og tóku oft marga daga. Af Fljótsdalshéraði lá leið manna um Egilsstaði á Völlum og yfir Fagradal til Reyðarfjarðar. Þá var fastur gististaður manna á Egilsstöðum. Var þar vel að ferðamönnum búið og þeim sýnd hin mesta gestrisni og reynt að greiða fyrir þeim á ýmsan hátt. Þess var líka full þörf eftir 15—20 klukkustunda útivist, með korn- æki uppi á Fagradal, í ófærð og slæmum veðrum. Enda komust menn oft í hann krappan og fengu sig fullreynda. En með þrautseigju og þohnmæði sigruðust menn á erfiðleikunum. Þrátt fyrir uggvænlegar horfur, tókst að koma í veg fyrir felli og mátti segja að útkoman væri dágóð, þar sem mjög lítil vanhöld urðu á skepnum um vorið. Þegar við hugleiðum þetta, hlýtur ósjálf- rátt að vakna hjá okkur spurningin: Hvað hefði annar eins vetur og þessi þýtt hjá okkur fyrir nokkrum áratugum? Því er fljótsvarað. Hann hefði haft í för með sér gerfelli á harðindasvæðinu. En hann er aðeins ofurlítið sýnishorn af mörgum slík- um eða verri vetrum, sem komið hafa hér á landi. Áður fyrr voru bara engin ráð til að verja bústofninn falli, þegar heyið þvarr. En jafnaðarlega settu menn þá betur á og tefldu lítt á tvísýnu. En öllum má ofbjóða. Og þegar heyleysi var fyrir dyrum, var ekki nema um tvennt að velja: niðurskurð eða að láta skepnurnar verða hungurdauða. Hvort. tveggja voru harðir kostir. Má nærri geta, að íslenzkum bænd- um hefir ekki verið hlátur í hug á slíkum stundum. Oft var það líka, að matarforði handa mönnunum var orðinn naumur, þegar þrotin var björg fyrir búpeninginn. Fylgdist það oft mikið að. Hvílíkur fögnuður hefir fyllt hjörtu f jár- mannanna, er þeir sáu ósk sína um hláku

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.