Vikan


Vikan - 24.04.1941, Síða 14

Vikan - 24.04.1941, Síða 14
14 VIKAN, nr. 17, 1941 Faðir og sonur. Framh. af bls. 3. an á svipinn. Hann sat stundarkorn og það lak úr fötunum hans. Svo stóð hann á fætur. „Komdu með mér,“ sagði hann. Ég stóð upp og fór með honum út. Ég var steinhissa, en alveg óhræddur. Hann fór eftir forugum götuslóða, sem lá inn í dal, eina mílu fyrir utan bæinn. I daln- um var tjörn. Við gengum þegjandi. Mað- urinn, sem allt af var sítalandi, var þagn- aður. Ég vissi, hvað til stóð, og sú undarlega tilfinning greip mig, að ég væri með ókunn- ugum manni. Ég veit ekki, hvort það var ætlun föður míns. Þó held ég ekki. Tjörnin var stór. Það var enn þá helli- rigning og eldingum brá fyrir öðru hvoru. Við stóðum á grasigrónum tjarnarbakkan- um, þegar faðir minn tók fyrst til máls, og í myrkrinu og rigningunni var einhver annarlegur hreimur í rödd hans. „Farðu úr fötunum," sagði hann. Ég leit undrandi á hann og fór að afklæða mig. Eldingu brá fyrir, og ég sá, að hann var kominn úr öllum fötunum. Hann fór út í tjörnina, tók hendina á mér og dró mig á eftir. Það getur verið, að ég hafi verið of hræddur til að geta talað. Fram til þessa hafði mér aldrei virzt faðir minn gefa mér neinn gaum. Og hvað meinti hann með þessu ? Ég var ekki vanur að synda, en hann lagði hend- ina á mér á öxl sér og synti af stað út í myrkrið. Hann var herðabreiður og góður sund- maður. I myrkrinu fann ég þróttinn í starf- andi vöðvum hans. Við syntum þvert yfir tjörnina og til baka aftur, þangað sem við höfðum skilið eftir fötin okkar. Það var hvasst og rigningunni létti ekki. Stundum synti faðir minn á bakinu, og þá tók hann alltaf hendina á mér og færði hana þannig, að hún hvíldi stöðugt á öxl hans. Öðru hvoni brá fyrir leiftri og þá sá ég greini- lega andlit hans. Það var eins og fyrr um kvöldið í eld- húsinu, alvarlegt og raunamætt. Ég sá þetta aðeins í leiftursvip og svo varð allt dimmt í kringum okkur aftur, og storm- urinn og regnið geisaði allt í kring. Ég var altekinn tilfinningu, sem ég hafði aldrei þekkt áður. Ég skynjaði nálægð föður míns með undarlegri samkend. Það var eins og við værum tveir einir í heiminum. Það var eins og mér hefði verið kippt út úr sjálfum mér, út úr heimi skólafélaga minna, út úr þeim heimi, sem ég blygðaðist mín í vegna föður míns. Hann var orðinn blóð af mínu blóði, hold af mínu holdi, þessi þróttmikli sundmaður, sem ég hélt mér dauðahaldi í í myrkrinu. Við syntum þögulir og klæddum okkur þögulir í rennvot fötin og héldum heim. Það var lampaljós í eldhúsinu, og þegar GLEÐILEGT SUMAR! Nýja Efnalaugin. * V V V V v 1 S^LEÐILEGT á)UMAR! $ v v V V V V y, Eggert Kristjánsson & Co. X v í V V V V * í GLEÐILEGT SUMAR! Vigfús Guðbrandsson & Co. ■iiiii111111111111111111111111iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinlll■ll■lllll■■■l■■ll■lll■l■■l1111111111111111111 'i',f,'if,fif,fififi','i',',',',',',',',fi'ififi'i' I € LEÐILEGT lUMAR! Sláturfélag Suðurlands. f^f,',',',',',',',fif,f,',f,f^',-',',',',',',',',f,'j-f,',f,f, GLEÐILEGT SUMAR! Raftækjaverzlunin LJÓSAFOSS. GLEÐILEGS SUMARS óskar öllum viðskiptavinum sínum ■ ■ Stefán Gunnarsson, skóverzlun. : við komum inn, holdvotir, svo að vatnið lak úr okkur, var móðir mín þar fyrir. Hún brosti til okkar. Ég man, að hún kall- aði okkur ,,stráka“. „Hvað hafið þið verið að gera, strákar?" spurði hún, en faðir minn svaraði ekki. Hann rauf ekki þögn- ina, sem hann hafði hjúpað sig með allt kvöldið. Hann sneri sér við og leit á mig. Svo fór hann út úr eldhúsinu og mér fannst einhver nýr og áður óþekktur virðu- leiki yfir framkomu hans. Ég fór upp stigann upp í herbergið mitt, háttaði í myrkrinu og fór upp í rúm. Ég gat ekki sofnað og mig langaði ekki til að sofna. I þetta skipti vissi ég, að ég var sonur föður míns. Hann kunni að segja sögur, og ég ætlaði líka að segja sögur, þegar ég væri orðinn stór. Það getur jafn- vel verið, að ég hafi hlegið lágt þarna í myrkrinu. Ef ég hefi gert það, þá hefir það verið vegna þess, að ég vissi, að ég mundi aldrei framar óska mér að eignast annan föður. GLEÐILEGT SUMAR! Rakarastofa Sigurðar Ólafssonar. Dávaldurinn. Framh. af bls. 7. Ég þáði boðið, og þrem dögum seinna lögð- um við af stað. Þegar við nálguðumst þorpið, komu stríðsmenn höfðingjans búnir skjöldum og spjótum til móts við okkur og fögnuðu okkur. Samúð þeirra var sýnilega okkar megin. En þegar til átti að taka fannst galdralæknirinn hvergi, og við fréttum, að hann væri í áríðandi erindagerðum í næsta þorpi. Við settumst niður og biðum eftir að hann kæmi. En þegar liðið var að kvöldi, varð okkur ljóst, að hann mundi hafa talið sér hyggilegast að vera fjarverandi. Við ætluðum nú að fara, en stríðsmennimir báðu þá Ba’ba Pila að færa sér sönnur á þessa yfirnáttúrlegu hæfileika sína. Að- eins fáir þeirra höfðu séð hann dáleiða, því að galdralæknirinn hafði bannað þeim að eiga nokkuð saman við hvíta galdralækn- irinn að sælda. Peder bað þá að setjast í grasið og byrjaði svo að tala til þeirra. með sinni þýðu, tilbreytingarlausu röddu, en höfðinginn og ég settumst niður þar skammt frá. Svo kom hið áhrifamikla augnablik, þeg- ar hermennirnir fengu skipun um að sofna. Þeir féllu til jarðar með alvæpni eins og þeir hefðu verið brytjaðir niður með vél- byssuskothríð. Það var undarleg sjón að sjá þessa stóru, sterku menn hníga niður og falía í djúpan svefn. En skyndilega kom óvæntur atburður fyrir. Galdralæknirinn kom — en ekki í ,,einkennisbúningi“ sínum. Hann var í jakka og buxum. Titlestad þekkti hann þó bersýnilega og bað hann að fara inn í hóp- inn og reyna að vekja einhvern. Maðurinn gaut augunum illilega til Titlestad, en gekk svo djarflega inn á milli sofandi hermann- anna og skipaði þeim að vakna. Ég stóð á öndinni, þegar ég sá, að sumir þeirra bærðu á sér. Ætlaði svarta galdra- lækninum eftir allt saman að takast að hrósa sigri yfir hvíta manninum ? Nokkrir voru þegar seztir upp. En þá heyrði ég hina rólegu, þýðu rödd Titlestad, og hópurinn féll á ný í djúpan svefn og vaknaði ekki, hvað sem galdra- læknirinn pataði og æpti. Þetta var ótvíræður sigur fyrir Title- stad. Galdralæknirinn reyndi að skýra það fyrir höfðingjanum, að ástæðan til þess, að honum hefði ekki tekizt betur, væri sú, að hann hefði ekki verið í læknisfötum sínum. Titlestad brosti og bað hann að fara í þau, og skyldi hann þá svæfa hann líka. Höfðinginn gerði gys að galdralækninum,. sem læddist sneyptur burtu.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.