Vikan


Vikan - 12.06.1941, Qupperneq 15

Vikan - 12.06.1941, Qupperneq 15
VIKAN, nr. 24, 1941 15 Arður til hluthafa. Á aðalfundi félagsins þ. 7. þ. m. var sam- þykkt að greiða 4% — fjóra af hundraði — í arð til hluthafa fyrir árið 1940. aðalskrifstofu i' Arðmiðar verða innleystir á félagsins í Reykjavík, og á afgreiðslum félags- ins út um land. H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS. : Mikid af faliegum Sumarkjólaefnum • nýkomið Komid meðan úrvalið er nóg. I Laugaveg 46 Meðferð ungbarna. Framhald af bls. 10. eldri má venja á að sofa allt að 8 timum í striklotu. Stundum þarf þó að snúa þeim, laga til undir þeim, láta þurt undir þau eða þvílíkt. Pela- bömum hættir stundum við upp- þembu. Getur þá verið g-ott að reisa þau upp til hálfs í rúminu, eða láta þau setjast upp snöggvast; þau fá þá oft ropa og hægist við það og sofna svo strax aftur. En ef þetta ráð skyldi nú bregðast, má reyna að gefa barninu nokkrar skeiðar af vel volgu vatni, soðnu. Sé þessum ráðum fylgt, mun það reynast, að barnið verður rólegra, og móðirin kemst þá hjá þvi að sitja með það stundum saman til að hugga það. Hér að framan hefir verið minnst á það, að hver móðir á að gefa ná- kvæmar gætur að því, hvort barn hennar dafnar viðunanlega eða hefir hæfilega framför (viktun). Rétt er að setja það á sig, að fyrstu 3 mán- uðina (að fráteknum fyrsta % mán- uðinum) þarf hvert brjóstbarn að fá ’/a af þunga sinum af brjóstamjólk daglega; næstu 3 mán. ’/,; þá er það orðið misserisgamalt, en úr því þarf það ekki nema J/8 af þunga sínum af mjólk. Annars verður vikið nánar að þessu síðar, þar sem talað verður um gerfifæðu. Ef það er einhver vörutegund, er yður i vanhagar um, þá talið við okkur eða { skrifið. — Við munum gera tilraun til | þess að greiða úr vandræðum yðar. | 60WUD IEMHÍPT’COf Fiskhöllin Borðið fisk og sparið. Það er alveg áreiðanlegtl Trúboði einn að nafni Volge, í Dakota hefir starfað meðal Indíána í Norður- Ameríku í 55 ár. Hann er svo stálminnug- ur, að hann man upp á dag hverja einustu vígslu, skírn og greftrun, sem hann hefir leyst af hendi. Stærsti vörubíll í heimi er í eigu flutn- ingafélags eins í Liverpool og er kallaður „Kata“. Á honum hefir meðal annars ver- ið fluttur eimvagn, og hvalur, sem vóg 70 tonn. ,,Kata“ er 24 metra löng, er á 14 hjólum, getur borið 140 tonn og ekið með 10 kílómetra hraða á klukkutíma. Fjórir menn stjórna henni, tveir frammi í og tveir aftur í, og er símasamband á milli þeirra. Þýzkur f jallaleiðsögumaður að nafni Walter Stroutz ,,smíðar“ allt af bindin sín sjálfur. Hann býr þau til úr furu, sem hann heflar næfur þunna og málar svo á eftir með öllum regnbogans litum. Bindið festir hann með gúmmíteygju. Sumar bakteríutegundir eru ótrúlega lífseigar. Til er tegund, sem getur lifað, og jafnvel nærst, í eins baneitruðum sótt- hreinsunarvökva og karbólsýru. * Lord Howe-eyjan, sem liggur 575 km. í austur frá Ástralíu er sannkölluð jarðnesk paradís. Þessi fagra eyja er aðeins 20 km. í þvermál, og íbúamir 150 að tölu, eiga hana sjálfir. Þeir hafa ofan af fyrir sér með því að safna aldinum af viltum pálm- um — starf, sem tekur tvo klukkutíma á viku. * Berber í Algier hafa undarlegar skoð- anir á sameign. Oft er það, að þrír menn eiga saman eitt fíkjutré. Einn á stofninn, annar greinarnar og þriðji jörðina, sem tréð stendur á. 1. Já, 18% af líkamanum er kolefni. 2. Níu: New York, Chicago, Buenos Aires, Philadelphia, Detroit, Rio de Janeiro, Los Angeles, Mexico City og Sao Paulo. 3. Póllandi. 4. Magnús Gíslason. 5. 1 Jugoslavíu. 6. Arabiskt höfuðfat. 7. Venezuela. 8. Bandaríkjamaðurinn Ernest Hemingway. „Og sólin . .. “ þýddi Karl Isfeld, en „Vopnin . :. “ H. K. Laxness. 9. Milli 63% og 66% stigs norðurbreiddar. 10. Seinni hluta vetrar 1905.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.