Vikan - 21.08.1941, Page 1
Nr. 34, 21. ágúst, 1941
Hvor fann
Ameríku
Leifur heppni eða
Bjarni Herjólfsson?
Dr. Jón Dúason.
Málverk eftir C. Kroghs.
Nýlega eru út komin fyrstu heftin af
hinu mikla riti dr. Jóns Dúasonar
um „Landkönnun og landnám fslend-
inga í Vesturheimi". Er hér á ferðinni eitt
hið merkilegasta safn upplýsinga um
landafundi forfeðra vorra, siglingar þeirra
og afdrif landnemanna, sem enn hefur
komið á prent á einum stað. Þeir, sem
kynnzt hafa riti dr. Jóns að meiru en því,
sem út er komið, geta gerzt um það sagt,
að þar er ekki einasta saman kominn mikill
fróðleikur, heldur eru þar settar fram hin-
ar djörfustu kenningar, rökstuddar með
oddi og egg, og nýstárlegar niðurstöður
fengnar út frá áður þekktum og óþekkt-
um heimildum. Þegar fyrstu heftin, sem
út eru komin, eru með þeim einkennum,
sem hér voru sögð, en þegar fram í ritið
sækir, rignir bókstaflega yfir lesandann
hinum mikilvægustu spurningum og svör-
in sótt í sæg heimildarrita. Að þessu leyti
á rit dr. Jóns Dúasonar skylt við stórkost-
lega landkönnunarför, þar sem ekki er far-
ið yfir láð og lög, heldur rakin spor ís-
lenzkra landkönnuða, kannaðar allar til-
tækilegar heimildir og landkönnunarsagan
sögð eftir þeim.
f tilefni af útkomu þessa rits hefir Vik-
an snúið sér til dr. Jóns Dúasonar og lagt
fyrir hann nokkrar spurningar í sambandi
við ritið, þar sem það snertir mjög svo
fyrstu sögu af hvítum mönnum á megin-
landi Ameríku, en nú hafa fyrir rás við-
burðanna skapazt ný tengsl milli íslands
og Bandaríkja Norður-Ameríku rúmum
950 árum eftir að fyrsti íslendingurinn
sigldi þar að landi. —
Dr. Jón Dúason er fimmtugur að aldri.
Meiri hluta ævi sinnar hefir hann helgað
sögulegum rannsóknum og einkanlega ein-
beitt sér við rannsókn á réttarstöðu Græn-
Framhald á bls. 3.