Vikan


Vikan - 21.08.1941, Side 6

Vikan - 21.08.1941, Side 6
6 VIKAN, nr. 34, 1941 Stolin hamingja. Nöðruaugað" andaði djúpt og ýtti við vini sínum, stóra Jeep, sem " var starfsfélagi hans. „Sjáðu,“ sagði hann og deplaði augun- um af ákafa. „Þetta er fyrirtak. Það er sjóliði að gera hosur sínar grænar hjá henni.“ Stóri Jeep skellti í góm. Jeep var hund- ingi og þegar hann sá, að málið var að verða til lykta leitt, þá var hann með myndavélina með sér. „Þetta getur orðið bærileg fúlga.“ Hann horfði aftur þangað. „Hver er þessi strákur ?“ spurði hann. „Mér finnst ég kannast við hann.“. „Hvar hefir þú kynnst svona strákum?“ spurði „Nöðruaugað" hæðnislega. „Hvað kemur það eiginlega málinu við, hver hann er? Við þurfum bara að ná myndinni.“ Það var auðvelt. Maður velur bara ein- hvern, karl eða konu. Síðan fylgir maður þeim, sem hefir orðið fyrir valinu og nær við gott tækifæri mynd, sem fórnardýrið vill gjarnan kaupa. Góða mynd, skiljið þér, faðmlög eða óvarkárt augnablik. Skemmtileg vinna, vegna þess að þá fylgist maður með merkilegu fólki. I sein- asta mánuði hafði það t. d. verið Charley van Poole, milljónamæringurinn, sem spil- ar austurlenzkan knattleik. Að lokum hafði Charley yfirgefið „Garðveitingahúsið“ með ungri stúlku. Óframkölluð myndin hafði orðið 750 dollara virði. Að hugsa sér! Nú var það nýja stjarnan Nell Tate. Og Nell var falleg. Hún var hér í Hollywood að leika í fyrstu kvikmyndinni sinni. Hún hafði orð fyrir að fara einförum og vera einmana eins og Greta Garbo. Slíkar mann- eskjur voru einmitt beztu tekjulindirnar, af því að þær voru hræddar við svona smá myndir. Þrátt fyrir orðróminn, þá var Nell þama úti í kvöld. Og hvert fór hún? Beint í sterkustu ljósin! IJt á Venice Pier, getið þið ýmyndað ykkur annað eins! I hring- ekjuna, í skriðbrautina og nú fer hún þarna með einhverjum strák! Það var eng- inn efi á því, að þetta var stórgróði. „Hún SIMÁSAGA EFTIR PAUISCHUBCRT ætti að verða töluvert há í verði þessi!“ hvíslaði „Nöðruaugað“ sigri hrósandi. „Ef hún borgar ekki, þá látum við kvikmynda- stjórann og dagblöðin hafa myndina!“ * En það einkennilegasta af öllu, var að Nell Tate skyldi sjálfri vera mjög mikið niðri fyrir. Stórar kvikmyndastjömur fá ekki oft tækifæri til að gera, það sem þær langar sjálfar til að gera. Þeim gæti dottið í hug að fara niður að ströndinni og vera þar innan um annað fólk, en þá komast þær að þeirri niðurstöðu, að lífið er ein eilífðar bók, sem safnað er í eiginhandarritum. Þegar þær fara eitthvað, þá þekkjast þær og þá er ekki griður gefinn. En nú var Nel 3300 mílur frá Times Square, enda þótt hún væri enn í Holly- wood, en hér þekktist hún síður. „Halló,“ hafði sjóliðinn sagt og vissi ekki, hver hún var. „Komdu, við skulum fara í skriðbraut- ina! Þetta er fyrsta fríið mitt og þú ert einmitt það, sem mig vantaði!“ Hún hafði aldrei áður farið niður að ströndinni og farið í skriðbrautina. Sjó- liðinn lagði handlegginn utan um hana í gegnum dimmu göngin. Hann reyndi jafn- vel að kyssa hana og hélt fast í hendina á henni. Að hugsa sér að hún, sem vann sér fyrir 57000 dollurum á ári og vissi hvað hún var falleg, skyldi roðna út undir eyru, þegar sjóliðinh sagði, að honum geðjaðist vel að henni. Lengst úti á Venice Pier undir stærstu skriðbrautinni er dimmt. Þar blandast há- vaðinn frá skemmtistaðnum við brimniðinn. Utan af dimmu Kyrrahafinu kemur upp- ljómað skip, sem er að koma alla leið frá Herfangar. Italskur aðmiráll (í miðið) og aðstoðarmaður hans (til hægri) eru hér í yfirheyrzlu. Brezkur liðsforingi (til vinstri) er að yfirheyra þá í flotabækistöð Breta í Tobruk, eftir að Bretar náðu borginni á sitt vald. Mis- munur einkennisbúninga Bret- ans og Italanna hlýtur alltaf að vekja athygli. Þegar Tobruk féll, tóku Bretar einn aðmírál, fjóra yfirhershöfðingja og 14000 her- menn til fanga. Asíu. Sjórinn er spegilsléttur og ilminn af saltvatninu leggur fyrir vitin. Handleggur sjóliðsforingjans hélt utan um hana, hann þrýsti henna að sé og varir þeirra mættust. En á sama augnabliki og Nell fann varir sjóliðans kviknaði ljós stóra Jeeps, svo að þau fengu ofbirtu í augun, og það var eins og einhver dýr helgidómur hefði verið rof- inn. Nell hafði stolið ofurlítilli hamingju, stolið henni frá Broadway og Hollywood, frægð og auðæfum — augnabliks hamingju með sjóliða, sætari hamingju, en nokkur hafði eignast, sem hafði komið til Venice Pier til að leita að hamingjunni; og þá komu þessir tveir menn með myndavél! „Jeep!“ sagði annar þeirra háðslega. „Ég vissi ekki að það væri neinn hér. Jeep, við hefðum ekki átt að taka myndina, rétt á meðan stúlkan var að kyssa .. .“ Setningin varð aldrei lengri, því að hægri hnefi sjómannsins lenti beint í andliti hans. „Heyrið þér!“ kveinaði litla „Nöðru- augað“ aumingjalega. En nú hafði stóri Jeep þekkt sjómann- inn. „Nei, nú lýst mér á, „Nöðruauga“,“ öskr- aði hann. ,,Hlauptu.“ En það var of seint að hlaupa, því að bryggjan var full af lögregluþjónum og öðrum mönnum. Nell sagði ekkert, þangað til lögreglu- þjónarnir voru farnir og þau voru ein eftir. Hún var of særð og óánægð til að geta sagt mikið. Henni leið eins og barni, sem hefir verið rifið út úr barnalegri hugmynd sinni um lífið. „Þér vissuð, hver ég var,“ sagði hún við sjóliðann. „Þér vissuð það alltaf!“ Hann hristi höfuðið. „Ég vissi, að þess- ir menn voru að elta yður, það er allt og sumt. „Þér kysstuð mig — rétt til þess að fá sönnun.“ Þetta var það, sem særði hana mest. „Trúið þér því í raun og veru?“ „Þér eruð ekki einu sinni sjóliði. Ekk- ert nema vanalegur . . .“ „Er ég ekki sjóliði? Heyrið þér nú; fyrir tíu dögum keypti flotinn skipið mitt til að nota það í flotanum, og ég er sjóliði á því — og svo segið þér, að ég sé ekki sjóliði! Ég kom í land eins og hver annar sjóliði og reyndi* að vermda fallegustu stúlkuna í heiminum frá því að tveir þrjót- ar kúguðu fé út úr henni. Þessir sömu ná- ungar kúguðu 750 dollara út úr mér í seinasta mánuði, þegar ég var enn að spila austurlenzka knattleikinn.“ „Afsakið þér,“ sagði Nell. „Þér leggið of mikið á ímyndunarafl mitt.“ Sjóliðinn brosti. „Eigið þér við, að þér hafið ekki vitað, að ég er Charley van Poole? Var kossinn þá bara vegna sjálfs míns?“ Það var eitthvað sérstakt við það, hverpig hann tók aftur utan um Nell ... og það var líka eitthvað sérstakt við augnaráðið, sem Nell sendi honum. „Jæja, í hjarta yðar eruð þér ekkert annað en sjóliði," hvíslaði hún í eyra hans.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.