Vikan


Vikan - 25.09.1941, Síða 4

Vikan - 25.09.1941, Síða 4
4 VTKAN, nr. 39, 1941 auka vald sitt, en tvær þeirra skildu og önnur tvisvar. Út af giftingu einnar dóttur sinnar komst Snorri í f jandskap við bróðurson sinn, Sturlu Sighvatsson, og var þá samheldni Sturlunga farin út um þúfur. Snorri gerði árið 1224 helmingafélag við Hallveigu Ormsdóttur. Hún var þá auðug- ust kona á Islandi, og varð þá Snorri rík- asti maður landsins. Á þessum árum voru miklar deilur með höfðingjum, róstur og vígaferli, samning- ar og svik, og er hér ókleift að lýsa af- skiptum Snorra af þeim málum, sem mið- uðu öll að því að auka völd hans og auð. Sturla Sighvatsson kom heim til Islands haustið 1235 og rak þá erindi Hákonar konungs og hugðist fyrst að ráða niður- lögum Snorra og fór svo, að hann flæmdi Snorra frá búi og ríki í Borgarfirði og flýði hann suður á Nes. Árið eftir fór Snorri utan, enda mun hann hafa búizt við, að til stórtíðinda drægi á Islandi. Næsta sumar voru þeir, sem verið höfðu mestir andstæðingar Snorra, felldir í bar- daga á Örlygsstöðum. Fór Snorri, í banni konungs, vorið 1239 til Islands og tók þar sín fyrri völd viðstöðulaust. Hákon konungur sendi Gissuri Þorvalds- syni boð um, „að hann skyldi annað hvort koma Snorra á sinn fund eða taka hann af lífi“. Fastheldni Snorra á fé fékk óvin- um hans átyllu til að fara á hendur hon- um. Gissur kom í Reykholt aðfaranótt 23. september 1241 með sjötíu manns. Snorri flúði í kjallara og var eltur þangað. Símon knútur bað Áma höggva hann. „Eigi skal höggva,“ sagði Snorri. „Högg þú,“ sagði Símon. „Eigi skal höggva,“ sagði Snorri. Eftir það veitti Ámi honum banasár og báðir þeir Þorsteinn unnu á honum. Þannig var Snorri Sturluson veginn, vamarlaus á næturþeli, af ótíndum böðl- um, fyrir atbeina erlends konungs, en snilldarverk hans, HeimslcrLigla og Snorra- Edda, munu halda nafni hans á lofti um aldur og ævi. „Snorri Sturluson var ekki einn af þeim mönnum, sem þurfa að beina öllum kröft- um sínum að einu marki til þess að geta komið nokkm í verk, því að trauðla hefir nokkur Islendingur lifað svo fjölbreyttu lífi sem hann. Hann var lögsögumaður, eigandi margra goðorða, átti í sífelldum deilum, bæði á alþingi og í héraði, og reisti rönd við mestu höfðingjum, sem honum vom samlendir. Hann fór tvívegis utan, sótti heim stórhöfðingja bæði í Noregi og Svíþjóð, og þá þar nafnbætur, gjafir mikl- ar og marga sæmd aðra. Hann átti ekki einungis hlut í, hver afskipti þeirra Há- konar konungs og Skúla hertoga urðu af Islandi, heldur virðist hann vera ráðinn í að taka sinn þátt í deilum þeirra konungs og hertoga, eftir að sundur var dregið um samþykki þeirra. Hann lagði mikla stund á að safna auði, átti bú á mörgum höfuð- bólum, var hinn „mesti fjárgæzlumaður", . .. „hagur á allt það, er hann tók höndum til og hafði inar beztu forsagnir á öllu því, er gera skyldi“ ... Að því skapi var hann heimsmaður. Hann var skartmaður í klæðaburði, hélt miklar veizlur og glæsi- legar og hefir unað sér vel við góðan drykk í dýmm kemm. Og hann var eins og Jón Loftsson fósturfaðir hans „mjög fenginn fyrir kvennaást", og átti börn með mörg- um konum. Þó er sagan enn ekki nema hálfsögð. Snorri var helzta skáld Islands á sinni tíð, og hefir varla nokkur maður annar haft slíkt vald á tungunni til bragþrauta. Hann samdi Eddu, Ólafs sögu helga, Heims- kringlu og ef til vill fleiri sögur. I ritum hans haldast frásagnarlist og vísindaleg dómgreind fastar í hendur en í nokkmm öðmm íslenzkum fornritum, og þau bera þess óræk vitni, að Snorri hefir haft djúp- tæka þekkingu á öllum sviðum þjóðlegra fræða íslenzkra. Má því vel kalla hann and- légan brennidepil aldar sinnar.“ Fulltrúi Vichy-stjórnarinnar skrifar undir. Eftir 35 daga bardaga gekk landstjóri Vichystjórnarinnar í Sýrlandi, Dentz hershöfðingi, að kröfum Bandamanna. — Á myndinni sést fulltrúi Vichy-stjóm- arinnar, Andre de Verdillac, vera að skrifa undir skilmálana. „Fljúgandi virki“ gera dagárásir. Brezk flugvélaráhöfn sést hér vera að fara upp í eitt af „fljúgandi virkjunum", sem eru búin til í Ameríku. Þeir eru að fara til dagárásar á höfnina í Brest, þar sem þeir hæfðu þýzka orustuskipið ,,Gneisenau“ með þungum sprengjum. Þýzkir fangar I eyðimörkum Afríku. I bardögum, sem hafa verið háðir í brennandi hitum Afríkueyðimarkanna hafa Bretar gert mörg áhlaup á stöðvar Þjóðverja með góðum árangri og tekið marga þýzka og ítalska fanga. — Á myndinni sjást þýzkir fangar, sumir særðir, vera að koma til brezks fangelsis i eyðimörkinni. Ástralskur sprengjuflugmaður vinnur Viktoríukrossinn. Ástralska sprengjuflugmann- inum H. I. Edwards, sem er 26 ára gamall, hefir verið veittur Viktoríukrossinn fyrir mikla hugrpýði. — Hann stjómaði einni af áhættumestu dagárás- um Englendinga, sem gerðar hafa verið. Árásarstaðurinn var mjög vel varið iðnaðarver við Bremen. Hann flaug stundum í minna en 50 feta hæð og árásin bar mjög mikinn árangur.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.