Vikan - 21.05.1942, Síða 3
VIKAN, nr. 16, 1942
3
Valur Gíslason (til vinstri) og: Aifred Andrésson sem Grímur í „Öldum"
eftir séra Jakob Jónsson.
Alfred Andrésson leikari.
Framhald af forsíðu.
þrennt er, eftir Ridley, og Eruð þér frímúrari, og lék líka í þeim á
Akureyri og Isafirði og er oss tjáð, að hann hafi haft mikla ánægju
af að leika á báðum þessum stöðum. í Öldum hafði Alfred lítið
hiutverk, alvarlegs eðlis, en fór prýðilega með það. Þeir, sem vit
hafa á þessum hlutum, telja eitt bezta hlutverkið hans hafa verið
innheimtumaðurinn í Tengdapabbi, eftir Geijerstan. Það var ger-
hugsað og meðferðin sérstaklega góð.
Alfred Andrésson hefir aldrei fengið eins stórt hlutverk og í
„Nú er það svart, maður!“ ,,revyunni“, sem frumsýnd var mánu-
daginn 11. þ. m. Annar höfundur hennar sagði við oss, að svo
mætti segja, að ,,revyan“ væri samin fyrir Alfred, enda ber hann
leikinn algerlega uppi og vakti mikla hrifningu leikhúsgesta. Er
það augljóst, að vér eigum nú engan gamanleikara honum fremri.
„Revyan 1942: Nú er það svart, maður! Klessumyndir í fjórum
sjatteringum“, er bráðsmellin og skemmtileg, brandararnir eru lif-
andi og Alfred kann að segja þá. Hann sýnist mjög öruggur (þótt
hann ef til vill skjálfi á beinunum af leiksviðshrolli!), hver setn-
ing er sögð svo greinilega, að hún missir ekki marks og hreyfingar
allar hnitmiðaðar. Alfred virðist fæddur leikari og hefir í raun-
inni fengið allt of fá tækifæri til að reyna verulega á kraftana og
sýna, hvað í honum býr. En hann er svo hlédrægur maður, að
ólíklegt mun vera, að honum hafi nokkurntíma komið til hugar
að trana sér fram eða ýta á eftir því, að hann fengi mikil verkefni.
Alfred sem Kristján búðarmaður í
Pilti og stúlku og ArndísBjörnsdóttir.
Alfred Andrésson er og ákaf-
lega vinsæll gamanvísnasöngv-
ari og þó að svo kunni að vera,
að honum þyki ekki alltaf gam-
an að þurfa að vera skemmti-
legur, þá er ekki hægt að sjá
það á honum, því að hann kemur
öllum í gott skap — og slíkir
menn eru dásamlegir!
Sveisteinn og- úlfhundurinn Karakúl
•í „Forðum í Flosaporti".
Brynjólfur <t. h.) og Alfred sem Smart í Stundum og stundum ekki.
Alfred sem „IJegistörinn"
i „Nitouche".
Hér sést ung, amerísk stúlka,
Katherine Hubbard, vera að
hengja upp berjaklasa á aðal-
götunni í Pasadena í Kaliforníu.
Það er verið að skreyta borgina
í tilefni af miklum hátíðarhöld-
um til þess að fagna sumrinu.
Frú Churchill dansar.
Yngismær hengir
upp berjaklasa.
Frú Winston Churchill, kona
forsætisráðherra Bretlands, sést
hér vera að dansa við verka-
mann, sem vinur við hergagna-
framleiðslu. Þetta var á skemmt-
un í Norður-Englandi.